Svifryk mælist aftur langt yfir heilsuverndarmörkum Eiður Þór Árnason skrifar 6. apríl 2021 14:53 Svifryk er að stórum hluta malbiksagnir. Vísir/Vilhelm Styrkur svifryks var rúmlega tvöfalt hærri en heilsuverndarmörk gera ráð fyrir á mælistöð við Grensásveg í Reykjavík í morgun. Hægur vindur er í borginni, götur þurrar og búist við svipuðum aðstæðum næstu daga.
Vika er liðin frá því að síðast var varað við háum styrki svifryks í borginni. Áfram er gert ráð fyrir háum styrk svifriks og köfnunarefnisdíoxíðs í dag og í fyrramálið, einkum við umferðargötur. Eru íbúar hvattir til að skilja bílinn eftir heima á morgun. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg en klukkan 10 í dag var styrkur svifryks á Grensásvegi 102 míkrógrömm á rúmmetra og köfnunarefnisdíoxíðs 28 míkrógrömm á rúmmetra. Í mælistöðinni í Bústaðaveg/Háaleitisbraut var styrkur svifryks 104 míkrógrömm á rúmmetra og köfnunarefnisdíoxíðs 14 míkrógrömm á rúmmetra. Sólarhringsheilsuverndarmörkin fyrir svifryk (PM10) eru 50 míkrógrömm á rúmmetra og 75 míkrógrömm á rúmmetra fyrir köfnunarefnisdíoxíð. Frestuðu gatnaþrifum Köfnunarefnisdíoxíðmengun kemur frá útblæstri bifreiða og er mest á morgnanna og í eftirmiðdaginn þegar umferð er mest og veldur ertingu í lungum og öndurvegi. Uppspretta svifryks er uppspænt malbik, jarðvegsagnir, salt og sót úr útblæstri bifreiða. Fram kemur í tilkynningu að mars og apríl hafi oft reynst erfiðir hvað svifryksmengun varðar á höfuðborgarsvæðinu og aðstæður í dag hafi ekki hjálpað til. „Ráðgert var að þrífa götur í dag en það frestast sökum frostakafla sem nú stendur yfir. Búist er við svipuðum veðurfarsaðstæðum áfram og því líkur á svifryks- og köfnunarefnisdíoxíðmengun einkum við umferðargötur núna seinni partinn og í fyrramálið. Æskilegt er að sem flestir hvíli bílinn í fyrramálið og fari með öðru móti til og frá vinnu. Þannig geta þau sem eru viðkvæm í öndunarfærum og börn notið útivistar betur,“ segir í tilkynningu borgarinnar. Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur fylgist náið með loftgæðum og sendir frá sér viðvaranir og leiðbeiningar ef ástæða þykir til. Hægt er að fylgjast með styrk svifryks og annarra mengandi efna á vef Umhverfisstofnunar.
Umferð Reykjavík Samgöngur Umhverfismál Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Það er norskur sigur í dag“ Innlent Íslendingur í gæsluvarðhaldi vegna Hamraborgarmálsins Innlent Halla vill skikka ungmenni í samfélagsþjónustu Innlent Betra að fá óþægilegu málin fram fyrr en seinna Innlent Búinn að skila inn undirskriftum eftir „óvenjulegan“ frest Innlent Hafa engin varnarvirki til að hörfa í Erlent Samþykktu verkfallsaðgerðir á Keflavíkurflugvelli Innlent Hundruð lögreglumanna í viðbragðsstöðu vegna mótmæla í UCLA Erlent Friðrik skipaður sendiherra í Póllandi Innlent Eldur í ruslageymslu í Hafnarfirði Innlent Fleiri fréttir Afkoma borgarinnar versnar um níu milljarða króna milli ára Samþykktu verkfallsaðgerðir á Keflavíkurflugvelli Útimarkaðurinn í Mosó hættir Atli Þór ráðinn til Pírata: „Við ætlum að koma flokknum í ríkisstjórn“ Biðlistinn á Stígamótum styttist í fyrsta sinn í þrjú ár Ný skoðanakönnun á morgun og Pallborð klukkan 14 Áfram landris og óvissa um framhaldið Tryggja þurfi tímabundin afnot náttúruauðlinda í stjórnarskrá Búinn að skila inn undirskriftum eftir „óvenjulegan“ frest „Það er norskur sigur í dag“ Grindvíkingar opna bakarí og veitingastað á ný Bakarí og veitingastaður opna í Grindavík á ný Friðrik skipaður sendiherra í Póllandi Halla vill skikka ungmenni í samfélagsþjónustu Íslendingur í gæsluvarðhaldi vegna Hamraborgarmálsins Betra að fá óþægilegu málin fram fyrr en seinna Eldur í ruslageymslu í Hafnarfirði Seinni umferð biskupskjörs hefst á hádegi í dag Icelandair flýgur til Færeyja að nýju Stutt í næsta gos komi til gosloka „Það er hart sótt að okkar fólki“ Háskólanemar halda lautarferð og stofna hreyfingu fyrir Palestínu Jarðhræringar á Reykjanesi, flug til Færeyja og verkalýðsdagurinn Úrskurðurinn felldur úr gildi Vill hinn almenna launamann á þing Sinueldur í Munaðarneslandi Íslensk stjórnvöld haldin „sjúkri undirgefni“ Barn á Akureyri greindist með kíghósta Íslensk fjara á lista yfir bestu strendur heims Beint: Hátíðarhöld á verkalýðsdaginn 2024 Sjá meira