Hefur áhyggjur af Bitcoin-kaupum Íslendinga og líkir rafmyntinni við píramídasvindl Eiður Þór Árnason skrifar 1. mars 2021 17:21 Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri. Vísir/Vilhelm Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri varar við kaupum á rafmyntum á borð við Bitcoin og líkir kapphlaupinu við þátttöku í píramídasvindli. Íslendingar versluðu með Bitcoin fyrir um 600 milljónir króna í janúar samkvæmt úttekt Rafmyntaráðs. Virði Bitcoin fór yfir 50 þúsund Bandaríkjadali um miðjan febrúar og kostar nú hver mynt rúmlega 6,2 milljónir króna. „
Bitcoin sem gjaldmiðill lýtur engum landamærum og felur í sér raun og veru mikla sóun þar sem það er mikil orka sem fer í námugröft á þessari mynt,“ sagði Ásgeir í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni en staðfesting færslna með Bitcoin krefst flókinna og orkufrekra tölvuútreikninga. „Maður óttast alltaf þegar fólk fer að leita að svona skjótfengnum gróða og taka þátt í einhverju sem í raun virðist vera hálfgert píramídascheme.“ Til greina komi að gefa út eigin rafmynt Ásgeir fullyrðir að lítið sé vitað um rafmyntina, hvaðan hún komi eða hverjir standi að baki henni. „Þegar maður heyrir að fólk sé farið að kaupa þessa mynt til að reyna að hagnast á því þá fer maður að hafa áhyggjur. […] Ég vara við allri spákaupmennsku og við erum að tala um mjög furðulega eign. Það er eitt að kaupa hlutabréf í fyrirtæki eða skuldabréf gefið út af einhverjum aðila sem er með raunverulegan rekstur og tekjuflæði. Hér er bara gjaldmiðill sem er verið að veðja á að hækki og þetta lítur út fyrir mér svolítið eins og píramídascheme,“ segir Ásgeir og bætir við að Bitcoin hafi fram að þessu aðallega verið notað í svartri og ólöglegri starfsemi. Þannig að Seðlabankinn er ekki að fara að fjárfesta í rafmynt? „Ekki í Bitcoin en það gæti alveg komið til greina að við myndum gefa út sérstaka rafmynt sem væri gefin út fyrir Ísland eða álíka. Þetta hefur verið rætt í þessum seðlabankaheimi og þetta felur í sér ýmsa kosti út frá greiðsluþjónustu og uppgjöri en þetta eru bara vangaveltur enn sem komið er. Ef við lítum á Bitcoin sem gjaldmiðill þá er hann ekkert sérstaklega heppilegur þar sem virðið er svo sveiflukennt.“ Líkir þróuninni við Túlípanaæðið í Hollandi Þar tekur Ásgeir undir með Gylfa Magnússyni, prófessors í viðskiptafræðideild Háskóla Íslands, sem segir að notagildi Bitcoin sé takmarkað. Þetta kemur fram í grein hans í nýjasta tölublaði Vísbendingar sem Kjarninn greinir frá en þar segir Gylfi að óstöðugt gengi og vangeta bálkakeðjutækninnar við að ráða við mikið magn viðskipta spili lykilhlutverk í að rafmyntir hafi ekki orðið að almennilegum greiðslumiðli. Þá líkir hann verðþróun Bitcoin á síðustu vikum við Túlípanaæðið í Hollandi þar sem verð kaupsamninga á Túlipönum rauk upp úr öllu valdi vegna spákaupmennsku og hrundi svo á fyrri hluta 17. aldar. Spáir Gylfi því að margir eigi eftir að tapa miklum fjárhæðum vegna viðskiptanna. „Þeir sem koma með peninga inn á lokametrunum í bólunni koma verst út. Meðalfjárfestirinn mun tapa verulegum hluta sinnar fjárfestingar vegna þess að verðmætasköpunin í heild er ekki núll heldur neikvæð vegna kostnaðarins við námavinnsluna.“
Rafmyntir Efnahagsmál Reykjavík síðdegis Íslenska krónan Seðlabankinn Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Davíð Tómas ráðinn framkvæmdastjóri Viðskipti innlent Ballið búið fyrir fullt og allt á B5 Viðskipti innlent Snýr aftur til Snjallgagna Viðskipti innlent Ráðin forstöðumaður hjá OK Viðskipti innlent Farþegum fjölgaði og sætanýting um 85 prósent Viðskipti innlent „Fólk heldur kannski að það sé saklaust að kaupa eina falsaða tösku“ Atvinnulíf Háttsemi dómara ekki saknæm og Isavia fær því enga milljarða Viðskipti innlent Hætta skerðingum til stórnotenda Viðskipti innlent Krökkunum finnst hálf hallærislegt að mamman kunni Friends þættina utan að Atvinnulíf Þarf að greiða kortareikninginn og meira til í málskostnað Neytendur Fleiri fréttir Hætta skerðingum til stórnotenda Davíð Tómas ráðinn framkvæmdastjóri Farþegum fjölgaði og sætanýting um 85 prósent Ráðin forstöðumaður hjá OK Snýr aftur til Snjallgagna Ballið búið fyrir fullt og allt á B5 Yfir milljón farþegar fyrstu fjóra mánuði ársins Háttsemi dómara ekki saknæm og Isavia fær því enga milljarða Mímir nýr forstöðumaður hjá Högum Matvöruverslun og íbúðir steinsnar frá Keflavíkurflugvelli Röntgen Domus og Orkuhúsið fá ekki að sameinast Viljinn tekinn til gjaldþrotaskipta Spá því að stýrivextir haldist óbreyttir Bein útsending: Ársfundur SFS – Best í heimi? Mun bjóða upp á sömu flugáætlun og Bláfugl áður Grindvíkingar borgi allt að þriðjungi hærri leigu en aðrir Guðný og Sigurður Helgi til SI Tekur við stöðu sviðsstjóra Netöryggismiðstöðvar Íslands Hagnaður Íslandsbanka 5,4 milljarðar á fyrsta fjórðungi Arnar Már nýr aðstoðarforstjóri Vinnunetföng algeng leið fyrir hakkara til að brjótast inn í íslensk fyrirtæki Sjö vilja taka við af Gunnari Hagnaður Landsbankans nam 7,2 milljörðum á fyrstu þremur mánuðum ársins Frumkvöðlar koma saman í Kolaportinu Hefja sölu á íbúðum á Orkureitnum Bein útsending: Stærri styrktækifæri í mannvirkjaiðnaði Lokar Önnu Jónu og segir það mikinn létti Hagnaður Arion dróst saman um tvo milljarða Hefja úthlutun lóða í Vatnsendahvarfi Ráðherra bað um tíu milljarða króna í viðbót í arð Sjá meira