Valur í Meistaradeild en æfingabann og leikjaleysi setur strik í reikninginn Sindri Sverrisson skrifar 21. október 2020 12:30 Sjö leikmenn Vals eru með landsliðinu í Svíþjóð og því fámennt á æfingum á Hlíðarenda þessa dagana, þar sem þar að auki þarf að fylgja ströngum sóttvarnareglum. vísir/vilhelm
Ríkjandi Íslandsmeistarar Vals í knattspyrnu kvenna fá að vita á morgun hvort þær leika á heima- eða útivelli, og gegn hvaða liði, í fyrri umferð undankeppni Meistaradeildar Evrópu. Ljóst er að Valskonur spila 3. eða 4. nóvember, á Íslandi í Finnlandi eða í Færeyjum, en íþróttir með snertingu eru bannaðar á höfuðborgarsvæðinu til 3. nóvember og hafa verið bannaðar síðustu tvær vikur. Það gerir undirbúning Valsliðsins erfiðan, sem og sú staðreynd að sjö leikmanna liðsins eru nú komnir með íslenska landsliðinu til Svíþjóðar og verða þar fram yfir landsleikinn í Gautaborg 27. október. Eiður Benedikt Eiríksson, aðstoðarþjálfari Vals, tekur undir að undirbúningur fyrir Meistaradeildarleikina sé snúinn. Hann bendir á að mánuður verði liðinn frá síðasta leik Vals þegar liðið leikur í Meistaradeildinni. „Þetta er hálfömurleg staða að vera í. Við höfum verið að æfa með alla leikmenn í sitt hvoru laginu. Þær fengu bara bolta heim og sinna sínu heimaprógrammi. Í gær gat hópurinn komið saman á Hlíðarenda, þó hann telji núna aðeins um tíu leikmenn vegna landsleiksins, en við þurftum að fara eftir reglum um tveggja metra reglu og annað slíkt. Þetta er ekki besti undirbúningurinn en við reynum að gera gott út úr þessu.“ Mæta HJK Helsinki eða KÍ Klaksvík Dregist hefur á langinn að hefja undankeppni Meistaradeildarinnar vegna kórónuveirufaraldursins. Ákveðið var að breyta undankeppninni svo að í henni verða leiknar tvær stuttar umferðir, með stökum útsláttarleikjum í stað þess að leika heima og að heiman. Valur þarf því að vinna tvo leiki (og slá þar með út tvo andstæðinga) til að komast í 32-liða úrslitin. Þangað stefna Valskonur fullum fetum, segir Eiður. Seinni umferð undankeppninnar er 18. og 19. nóvember (þá verður keppni væntanlega hafin að nýju í Pepsi Max-deildinni) og 32-liða úrslitin í jólamánuðinum, 8.-9. og 15.-16. desember. Valskonur eru ríkjandi Íslandsmeistarar en töpuðu fyrir Breiðabliki í toppslagnum 3. október. Síðan þá hefur liðið ekki getað spilað vegna íþróttabanns á höfuðborgarsvæðinu.vísir/hulda margrét Dregið verður í fyrri umferðina á morgun og hefur UEFA skipt liðunum 40 í tíu hópa eftir því hvar í Evrópu þau eru staðsett. Innan hvers hóps eru svo tvö sterkari lið, sem ekki geta mæst, og tvö lægra skrifuð lið. Valur og Vålerenga frá Noregi eru í efri styrkleikaflokki og geta dregist gegn HJK Helsinki frá Finnlandi eða KÍ Klaksvík frá Færeyjum. Sömuleiðis er dregið um það hvaða lið fá heimaleiki. Saman á hóteli í Reykjavík eða úti Eiður segir ljóst að ef Valskonur fái ekki að æfa með hefðbundnum hætti fram til 3. nóvember þá fari liðið í vinnusóttkví á Íslandi verði leikurinn hér, eða til Finnlands eða Færeyja eins fljótt og auðið er. „Ef að við fengjum leik heima á Íslandi hugsa ég að við færum saman á hótel og æfðum saman í „búbblu“ eins og landsliðin hafa verið að gera. Landsliðskonurnar gætu þá komið strax til móts við okkur þar. Sama yrði uppi á teningnum ef við færum í útileik. Þá myndu þær sem eru í landsliðinu hugsanlega koma beint þangað frá Svíþjóð,“ segir Eiður. Þurfa ekki að hætta við eins og handboltaliðin Valur dró handknattleikslið sín úr Evrópukeppnum vegna kórónuveirufaraldursins nú í haust. Eiður segir hins vegar ekkert annað hafa komið til greina en að knattspyrnukonur félagsins myndu spila í Meistaradeildinni. Það sé enda staðreynd að vegna peninga frá UEFA komi Valur svo að segja út á sléttu við að taka þátt í keppninni, og hagnist af þátttöku komist liðið í 16-liða úrslit, en að þátttaka í handboltakeppnunum kosti aftur á móti nokkrar milljónir.
Meistaradeild Evrópu Valur Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið Aðstoðardómarinn bað Bæjara afsökunar: „Þetta er hörmung“ Fótbolti Færeyingar hársbreidd frá fyrsta heimsmeistaramótinu Handbolti Uppgjörið: Ísland - Eistland 50-25 | Stigu bensínið í botn frá fyrstu mínútu Handbolti „Þegar ég var sjö ára í Birmingham dreymdi mig um svona kvöld“ Fótbolti „Ánægður að við sýndum þá hlið að við getum verið góðir í sextíu mínútur“ Handbolti Þakklátur eftir fyrsta landsleikinn: „Tek bara einn dag fyrir í einu“ Handbolti „Ekkert sjálfgefið að valta yfir lið“ Handbolti Stuðningurinn ómetanlegur: „Farið í dýpstu leyndarmálin“ Sport „Á flestum sviðum körfuboltans voru þeir bara betri en við“ Körfubolti Uppgjörið og viðtöl: Grindavík - Keflavík 96-71 | Gulklæddir flengdu Keflvíkinga Körfubolti Fleiri fréttir „Þegar ég var sjö ára í Birmingham dreymdi mig um svona kvöld“ Aðstoðardómarinn bað Bæjara afsökunar: „Þetta er hörmung“ Uppgjörið og viðtöl: Keflavík - Valur 1-2 | Meistararnir komu til baka suður með sjó Joselu hetjan þegar Real Madrid fór í úrslit í enn eitt skiptið „Eitthvað sem þær þurfa að svara fyrir á fundi á morgun“ Uppgjörið og viðtöl: FH - Þróttur 1-0 | Sigurmark á 96. mínútu Uppgjörið og viðtöl: Breiðablik - Stjarnan 5-1| Blikar kláruðu dæmið í fyrri hálfleik Fiorentina aftur í úrslit Sambandsdeildarinnar Gamli FH-ingurinn kom Fredrikstad áfram í bikarnum Dæmdur fyrir aðstoð við morð en valinn í landslið Síle Enrique hneykslaður: „Er þér alvara?“ „Spáin hjálpar okkur frekar en eitthvað annað“ Stolni gullhnöttur Maradona boðinn upp „Mbappé kann ekki að vera hetja“ Gummi Ben og félagar tímamældu leiktafir KR-ingsins Sjáðu Hummels gera það sem Mbappé og félögum tókst ekki Stórveldi með gjörólíka hugmyndafræði berjast um sæti í úrslitum Rekinn þrátt fyrir að vera tilnefndur sem þjálfari ársins „Höfum vaxið með hverjum leik“ Dortmund í úrslit eftir sigur í París Telja að Man United hafi saknað leiðtogahæfileika Martínez Þurfa leyfi til að taka þátt í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð Arnar í tveggja leikja bann Aðeins einn uppalinn Valsmaður í Bestu deild karla „Maður hefur verið milli tannanna á fólki síðan maður var ungur“ „Tveir Víkingar? Ég er bara hissa“ Adam hundfúll og Arnar beint í símann Vatnstjónið vísar Stólum til Akureyrar Forest í bullandi fallhættu vegna bulls í fjármálum Napoli í kapphlaupið um Albert Sjá meira