Árásin í Vetlanda ekki rannsökuð sem hryðjuverkaárás Atli Ísleifsson skrifar 4. mars 2021 11:48 22 ára karlmaður gekk um í miðbæ Vetlanda í gær og særði átta manns með eggvopni. AP/Mikael Fritzon Saksóknari í Svíþjóð segir að árásin sem gerð var í sænska bænum Vetlanda í sænsku Smálöndunum í gær sé ekki rannsökuð sem hryðjuverkaárás. 22 ára karlmaður gekk þar um í miðbæ Vetlanda og særði átta manns með eggvopni. Lögregla skaut manninn áður en hann var handtekinn, en árásin stóð yfir í alls nítján mínútur.
Talsmenn lögregluyfirvalda útilokuðu ekki í gær að um hryðjuverkaárás hafi verið að ræða, en saksóknari greindi frá því í dag að árásin verði ekki rannsökuð sem slík, heldur sem tilraun til morðs. SVT hefur eftir saksóknaranum Adam Rullman að umfangsmikil rannsókn standi nú yfir þar sem hald hafi verið lagt á ýmis gögn eftir húsleit hjá manninum. Hann segist ekki geta gefið upp um ríkisfang mannsins, en að hann hafi „tengingu við annað land“ og hafi verið búsettur í Vetlanda síðustu ár. Lögregla hefur áður greint frá því að hinn handtekni hafi áður komið við sögu lögreglu vegna smærri brota. Hann hafi verið yfirheyrður í nótt vegna árásarinnar í gær. Ástand þriggja þeirra sem ráðist var á í gær er sagt vera lífshættulegt og þá eru tveir til viðbótar sagðir alvarlega særðir. Aðrir eru sagðir vera minna særðir.
Svíþjóð Tengdar fréttir Átta sárir eftir axarárás í smábæ í Svíþjóð Að minnsta kosti átta manns særðust þegar karlmaður gekk berserksgang í smábænum Vetlanda, um 190 kílómetra suðaustur af Gautaborg. Sænskir fjölmiðlar segja að maðurinn hafi verið vopnaður öxi. Maðurinn var handtekinn eftir að lögreglumenn særðu hann skotsárum. 3. mars 2021 19:58 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Starfsmaður Base Parking á 170 á bíl viðskiptavinar Innlent Ákærður fyrir leynilega nektarmynd í Nauthólsvík Innlent Lokuðu þorpi í leit að svörum um hvarf tveggja ára drengs Erlent Próftökubann og refsingar fyrir svindlara Innlent Stærsti gígurinn orðinn „formfagur“ Innlent Vill að Færeyjar fái nýjan flugvöll Erlent „Þetta er dagurinn til að skella sér á skíði“ Innlent Hviður allt að 35 metrar á sekúndu og hætt við sandfoki Innlent Lýsisskip strandaði í Fáskrúðsfirði Innlent Umfangsmikið verkefni að hreinsa til eftir slysið Erlent Fleiri fréttir Umfangsmikið verkefni að hreinsa til eftir slysið Vill að Færeyjar fái nýjan flugvöll Nærri fjörutíu taldir af eftir loftárásir Ísraela á Sýrland Lokuðu þorpi í leit að svörum um hvarf tveggja ára drengs Átta ára stúlka sú eina sem lifði rútuslys af Voru sérstaklega varaðir við árás frá ISKP Kallaði eftir aðstoð dráttarbáts skömmu fyrir slysið Rafmyntakóngurinn í 25 ára fangelsi Fundu lík tveggja verkamanna sem voru á brúnni Stjórnmálamaðurinn Joe Lieberman látinn Segir árásarmennina hafa ætlað til Belarús Taíland skrefinu nær því að leyfa samkynja hjónabönd Dómararnir virtust efast um réttmæti málsins gegn FDA Skammar lögreglu fyrir að nota lego til að dylja andlit sakborninga Japanskt fyrirtæki skiptir ungbarnableyjum út fyrir fullorðinsbleyjur Þeir sem fóru í ána taldir látnir Sakar Bandaríkjamenn og Breta um aðkomu að árásinni Kenna öryggisráðinu um „galnar“ kröfur Hamas Skipið varð vélarvana rétt áður en það hafnaði á brúnni Segja minnst sjö bíla hafa fallið í ána Assange verður ekki framseldur strax Leita fólks í ánni eftir að brúin hrundi Hverjir eru ISKP? Skæðasti angi Íslamska ríkisins teygir anga sína til Moskvu Strangtrúaðir æfir yfir því að verða mögulega skikkaðir til herþjónustu Brú hrundi eftir árekstur í Baltimore Gerðu húsleit hjá Diddy í Los Angeles og Miami Beinir spjótunum enn að Úkraínu Stórmál fari Ísrael ekki eftir ályktun öryggisráðsins Netanjahú í fýlu við Biden Lækka trygginguna meðan Trump áfrýjar Sjá meira
Átta sárir eftir axarárás í smábæ í Svíþjóð Að minnsta kosti átta manns særðust þegar karlmaður gekk berserksgang í smábænum Vetlanda, um 190 kílómetra suðaustur af Gautaborg. Sænskir fjölmiðlar segja að maðurinn hafi verið vopnaður öxi. Maðurinn var handtekinn eftir að lögreglumenn særðu hann skotsárum. 3. mars 2021 19:58