Töluvert fleiri fylgdust með Biden en Trump Sylvía Hall skrifar 17. október 2020 08:51 Aðrar kappræður frambjóðendananna áttu að fara fram í gærnótt en hætt var við þær eftir að Trump greindist með Covid-19. Getty
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, og Joe Biden, mótframbjóðandi hans, svöruðu spurningum kjósenda í sjónvarpssal í gærnótt í stað þess að mætast í kappræðum eins og upprunalega stóð til. Frambjóðendurnir voru á sitthvorri stöðinni á sama tíma en hér má lesa umfjöllun Vísis um kosningafundina. Aðrar kappræður frambjóðendananna áttu að fara fram í gærnótt en hætt var við þær eftir að Trump greindist með Covid-19. Var lagt til að þær færu fram í gegnum netið en Trump neitaði því. New York Times greinir frá því að rúmlega 15 milljónir horfðu á Biden á meðan 13,5 milljónir áhorfenda fylgdust með Trump samkvæmt gögnum frá fyrirtækinu Nielsen. Má ætla að það komi illa við forsetann, sem hefur löngum hreykt sér af áhorfendatölum og vinsældum sínum í sjónvarpi. Áhorfsmunurinn þykir enn áhugaverðari í ljósi þess að viðtal Trump var sýnt á þremur sjónvarpsstöðvum, en það var á vegum NBC. Það var einnig sýnt samtímis á MSNBC og CNBV á meðan viðtal Biden var aðeins sýnt á ABC. Samkvæmt áhorfstölunum fjölgaði áhorfendum á viðtal Biden statt og stöðugt og fór áhorfendafjöldinn upp í 16,7 milljónir að meðaltali síðasta hálftímann eftir að viðtalinu við Trump lauk. Þó hafi það ekki haft áhrif á meðaláhorf og hefði áhorfendafjöldi Biden verið meiri þrátt fyrir þennan auka hálftíma. Forsvarsmenn NBC voru harðlega gagnrýndir vestanhafs fyrir að skipuleggja þeirra fund á sama tíma og fundur Biden fer fram. Með því væru þau ekki að gera kjósendum greiða og greindi CNN frá því að starfsmenn NBC News væru verulega ósáttir við ákvörðun stöðvarinnar. Í færslu á Twitter-síðu sinni sagðist forsetinn hafa fengið góð viðbrögð við viðtalinu og þakkaði stuðningsmönnum sínum. Very good reviews on last night’s @NBCNews Town Hall in Miami. Thank you!!!— Donald J. Trump (@realDonaldTrump) October 16, 2020
Donald Trump Forsetakosningar í Bandaríkjunum Bandaríkin Tengdar fréttir Biden og Trump keppa um áhorf Þeir Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, og Joe Biden, mótframbjóðandi hans, munu keppa um áhorfendur í nótt, í stað þess að mætast í kappræðum eins og upprunalega stóð til. Báðir munu þeir svara spurningum kjósenda á sitthvorri sjónvarpsstöðinni og á sama tíma. 15. október 2020 08:47 Trump duglegri við að segja ósatt, eins og áður Þeir Donald Trump, Bandaríkjaforseti, og Joe Biden, forsetaframbjóðandi, mættust ekki í kappræðum í gær eins og til stóð. Þrátt fyrir það voru þeir þó báðir að svara spurningum í sjónvarpi á sama tíma en á mismunandi sjónvarpsstöðvum. 16. október 2020 16:01 Auknar sigurlíkur Biden leiða til aukinnar skotvopnasölu Hlutabréf skotvopnaframleiðenda í Bandaríkjunum hafa hækkað síðustu vikur, að því er virðist í takti við auknar vinsældir Joes Biden. 16. október 2020 12:42 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Sáu ekki andlit huldumanns sem þeir telja vera Pétur Jökul Innlent „Erum hér í kvöld svo þetta gerist ekki í þögn“ Innlent Vænsti maður og harðduglegur Innlent Var í símanum á 142 kílómetra hraða áður en hann lést Innlent Heimafæðingum fjölgar og teljast eðlilegri en áður Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Mig langaði bara að drepa þennan mann“ Innlent Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi vegna ofsaaksturs undir áhrifum Innlent Bíllinn í happdrætti Ástþórs úr hans eigin smiðju Innlent Næsta gos gæti hafist á hverri stundu Innlent Fleiri fréttir Færeyingar fjölga vindmyllum til að draga úr olíukyndingu Ein blóðugasta kosningabarátta í manna minnum „Rússneskum lögum“ hraðað áfram þrátt fyrir hávær mótmæli Þrír menn ákærðir í Bretlandi vegna tengsla sinna við Hong Kong Staðfestir flokkun AfD sem öfgasamtaka Sló eigið met á Everest Kórónuveirufaraldurinn ekkert miðað við sýklalyfjaónæmi Aftur barist í norðurhluta Gasa á meðan þúsundir flýja Rafah Aðskilnaðarsinnar að missa þingmeirihluta í Katalóníu Pútín skiptir um varnarmálaráðherra Fjölbýlishús hrundi í Belgorod Fyrsti lifandi svínsnýrnaþeginn er látinn Mótmælin gegn „rússnesku“ lögunum stækka enn Palestína fær aukna þáttöku á allsherjarþingi SÞ Hundruð létust í flóðum Fyrirskipa þúsundum að yfirgefa Rafah Hollenska söngvaranum bannað að keppa í kjölfar „hótana“ Evrópa böðuð bleiku Líklegt að Ísraelar hafi brotið alþjóðalög með bandarískum vopnum Hefja árásir nærri Karkív Selenskí bauð Bjarna á friðarfund í Sviss Reyndu aftur að fá málið fellt niður vegna Stormy Daniels Segja lögregluþjón hafa bankað á rangar dyr og skotið ungan mann Ísraelsstjórn vígreif þrátt fyrir viðsnúning Bandaríkjamanna Færeyingar áforma 4.500 króna aðgangseyri á alla ferðamenn Börnum safnað saman og þau skotin Skotið á íbúa Rafah og heilbrigðiskerfi Gasa hrunið Ellefu slasaðir eftir að flugtak Boeing 737 mistókst Lýsa hræðilegu ofbeldi fyrir sjóslys þar sem tugir létu lífið Takmarkar hernaðaraðstoð verði gerð árás á Rafah Sjá meira
Biden og Trump keppa um áhorf Þeir Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, og Joe Biden, mótframbjóðandi hans, munu keppa um áhorfendur í nótt, í stað þess að mætast í kappræðum eins og upprunalega stóð til. Báðir munu þeir svara spurningum kjósenda á sitthvorri sjónvarpsstöðinni og á sama tíma. 15. október 2020 08:47
Trump duglegri við að segja ósatt, eins og áður Þeir Donald Trump, Bandaríkjaforseti, og Joe Biden, forsetaframbjóðandi, mættust ekki í kappræðum í gær eins og til stóð. Þrátt fyrir það voru þeir þó báðir að svara spurningum í sjónvarpi á sama tíma en á mismunandi sjónvarpsstöðvum. 16. október 2020 16:01
Auknar sigurlíkur Biden leiða til aukinnar skotvopnasölu Hlutabréf skotvopnaframleiðenda í Bandaríkjunum hafa hækkað síðustu vikur, að því er virðist í takti við auknar vinsældir Joes Biden. 16. október 2020 12:42