Persónuvernd svarar Kára Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 13. janúar 2022 12:52 Persónuvernd hefur sent Kára Stefánssyni bréf. Vísir Stjórn Persónuverndar hefur birt bréf sem hún sendi í dag á Íslenska erfðagreiningu, vegna ummæla Kára Stefánssonar, forstjóra fyrirtækisins um ákvörðun Persónuverndar sem Kári hefur gagnrýnt mjög.
Forsaga málsins er sú að Persónuvernd komst að þeirri niðurstöðu í desember að Vinnsla Landspítalans (LSH) og Íslenskrar erfðagreiningar (ÍE) á persónuupplýsingum í tengslum við rannsókn þeirra á Covid-19 samrýmdist ekki persónuverndarlögum. Úrskurðurinn lýtur fyrst og fremst að því að blóðsýni hafi verið tekin í viðbótarhluta rannsóknarinnar, áður en Vísindasiðanefnd veitti heimild fyrir þeim hluta rannsóknarinnar. Því er haldið fram að ekki sé heimilt samkvæmt lögum að hefja vinnslu persónuupplýsinga í þágu rannsókna áður en leyfi siðanefndar liggur fyrir. Kári var ekki sáttur við þessa niðurstöðu og hét hann því að fá henni hnekkt fyrir dómstólum, en nánar má lesa um mótbárur Kára við ákvörðun Persónuverndar hér að neðan. Í bréfi stjórnar Persónuverndar til Íslenskrar erfðagreiningar segir að tilefni bréfsins séu að Kári hafi „ítrekað fullyrt í fjölmiðlum að Persónuvernd hafi talið það ólögmætt þegar ÍE skimaði, f.h. sóttvarnalæknis, fyrir SARS-Cov-2-veirunni og mótefnum við henni á árinu 2020.“ Bréfið undirritað af stjórn Persónuverndar Bendir Persónuvernd á að stofnunin hafi komist að þeirri niðurstöðu að við framkvæmd skimunar fyrir SARS-CoV-2-veirunni og mótefnum við henni á fyrri hluta árs 2020 hefði verið farið að ákvæðum persónuverndarlöggjafarinnar í meginatriðum, þar á meðal hvað snerti aðkomu ÍE að skimuninni. „Sú fullyrðing forstjóra ÍE að Persónuvernd telji fyrirtækið hafa gerst brotlegt við lög við skimunina er því ekki rétt,“ segir í bréfinu. Þar er hins vegar bent á ákvörðun Persónuverndar þar sem fjallað var um aðdraganda viðbótarrannsóknarinnar. „Fyrir lá að eftir að sótt hafði verið um rannsóknarviðbótina, en áður en hún var samþykkt af Vísindasiðanefnd, voru blóðsýni tekin úr öllum inniliggjandi sjúklingum á Landspítala með COVID-19 án upplýsts samþykkis þeirra. Þá lá fyrir að sýnin voru send ÍE og að þar voru gerðar á þeim mótefnamælingar,“ segir í bréfinu. „Af þessu tilefni var leitað skýringa frá ÍE og Landspítala. Fram kom í svörum ÍE að þetta hefði verið þáttur í klínískri vinnu og að niðurstöður hefðu verið sendar Landspítala. Af hálfu spítalans kom hins vegar fram að engar niðurstöður tengdar kennitölum sjúklinga hefðu borist honum. Persónuvernd vísaði til þess að vinnsla persónuupplýsinga skal vera lögmæt, sanngjörn og gagnsæ gagnvart hinum skráða, svo og þess að hún skal eiga sér skýrt tilgreindan tilgang. Í ljósi þeirra misvísandi skýringa sem borist höfðu taldi Persónuvernd að vinnsla persónuupplýsinga hjá Landspítala og ÍE í tengslum við sýnatökuna hefði ekki samrýmst þessum kröfum, segir ennfremur.“ Hvergi hafi verið vikið að því að Íslensk erfðagreining hafi gerst brotleg við lög við skimun á fólki, en bréfið er undirritað af stjórnarmeðlimum stjórnar Persónuverndar.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Persónuvernd Íslensk erfðagreining Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Þetta breytti mér mjög mikið sem persónu“ Innlent Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Innlent „Eldgosið virðist í andarslitrunum“ Innlent Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Innlent Ný sýn fékk meirihluta Innlent Búast má við slyddu Veður Bíll logaði í Vesturbænum Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Slagsmál enduðu með nefbroti Innlent Tuga enn saknað og 55 látnir Erlent Fleiri fréttir „Þetta breytti mér mjög mikið sem persónu“ Ný sýn fékk meirihluta Slagsmál enduðu með nefbroti Bíll logaði í Vesturbænum „Eldgosið virðist í andarslitrunum“ Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Öruggara Suðurland“ – nýtt og spennandi verkefni Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Landsmenn ánægðir með frammistöðu Höllu Tómasdóttur í kappræðunum Sló til starfsmanns og beit viðskiptavin „Skrímsladeildin“ hafi skorið upp herör gegn mótframbjóðendum Katrínar Hefur ekki áhuga á slúðurfréttum af öðrum frambjóðendum Tólf tíma tökudagar og svo forsetaframboð Hvernig ætlar ríkið að sækja milljónirnar 360 sem Haraldur gaf? Flottustu Mustang bílarnir landsins til sýnis í dag Halla Hrund eigi langt í land með að tryggja sér embættið Rýnt í forsetakappræður og fylgst með Bakgarðshlaupi „Ég get ekki annað en sagt satt“ Ríflega fjörutíu prósent líst illa á Katrínu „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Sigu niður í Gretti sterka og dældu úr honum sjó Ók á tvö hundruð með lögguna á hælunum Sólríkasta byrjun árs í Reykjavík í 77 ár Hafa rukkað þá sem valda sinubruna um kostnað við útkall Ótrúlegustu aðskotahlutir gera óskunda í dósatalningarvélum Fjöldi verkfallsboðana á Keflavíkurflugvelli áhyggjuefni Kosið um sameiningu Húna- og Skagabyggðar í júní Nýjustu skoðanakannanir, verkfallsaðgerðir á flugvellinum og týndur gaffall Halla Hrund líka vinsæll annar kostur Kolbeinn hafi strokið kynfæri stúlkunnar ítrekað Sjá meira