Flestir sýni stöðunni skilning en útgöngubann reynist mörgum þungbært Vésteinn Örn Pétursson skrifar 5. apríl 2021 12:05 Fosshótel Reykjavík er notað sem sóttkvíarhótel. Foto: Vilhelm Gunnarsson/Vilhelm Gunnarsson Tvö hundruð og tuttugu manns dvöldu á sóttkvíarhótelinu við Þórunnartún í nótt. Í morgun bættist einn gestur við á hótelinu, en sá hafði komið frá skilgreindu hááhættusvæði í gegn um London. Upplýsingafulltrúi Rauða krossins segir flesta gesti sýna stöðunni skilning.
Gunnlaugur Bragi Björnsson, upplýsingafulltrúi Rauða krossins, segir erfitt að leggja mat á hversu margir flugfarþegar verði skikkaðir til dvalar á hótelinu í dag. Í dag eru þrjú flug áætluð hingað til lands. Frá Stokkhólmi, Kaupmannahöfn og Barcelona. Af þessum þremur er Stokkhólmur eina borgin sem skilgreind er inni á hááhættusvæði. Gunnlaugur segir þá brögð að því að fólk sé ósátt við að vera skikkað til að taka út sína sóttkví á hótelinu, þegar það hafi í önnur hús að venda. Starfsfólk sýni því skilning. „En á móti finnst mér okkar gestir langflestir vera að sýna stöðunni líka skilning, og okkar starfsfólki. Við vitum að margir eru kannski ósáttir, en flestir eru yfirvegaðir og vilja bara gera gott úr þessu saman.“ Eitt tilvik hefur verið tilkynnt til lögreglu, þar sem gestur á hótelinu ákvað að yfirgefa hótelið. Gunnlaugur segir það mál vera á borði lögreglu. Hann segir þá að umræða síðustu daga, um mögulegt ólögmæti þess að skikka fólk til sóttkvíar á hótelinu hafi ekki haft teljandi áhrif á starfsfólk. Hann segir þó að gott verði að fá úr því skorið hvort reglugerðin sem starfsemi hótelsins byggir á standist lög. Opnanlegir gluggar en engin útivera Gunnlaugur áréttar að hægt sé að opna glugga hótelherbergjanna, þrátt fyrir orðróm um annað. „Það er alrangt. Ég efast einhvern veginn um að þetta væri fjögurra stjörnu hótel ef gluggar í herbergjum væru ekki opnanlegir.“ Tekið hefur verið fyrir alla útivist gesta á hótelinu, en óljóst var í fyrstu hvort reglugerðin heimilaði útivist gesta eða ekki. Gunnlaugur segir það hafa reynst mörgum gestum erfitt að fá ekki að fara í stuttar gönguferðir, líkt og leyfilegt er þegar fólk er í heimasóttkví. „Menn töldu að um þessa sóttkví myndi gilda það sama og um heimasóttkví. Að fólk hefði frelsi til að fara í stutta göngutúra. Svo í rauninni þegar túlkun á reglugerðinni frá heilbrigðisráðherra lá fyrir, þá tekur hún alveg fyrir að fólk í sóttvarnarhúsi fari út fyrir hússins dyr meðan á sóttkví stendur," segir Gunnlaugur.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Tengdar fréttir Vilja ekki dvelja á sóttkvíarhótelinu með þriggja mánaða barn sitt Hjón með þriggja mánaða gamalt barn eru á meðal þeirra sem hafa leitað til lögmanns í því skyni að bera ákvörðun stjórnvalda um skyldudvöl þeirra á sóttkvíarhótelinu í Þórunnartúni undir dómstóla. 4. apríl 2021 14:28 Hvorki heimild né vilji til þess að hindra för fólks Ein tilkynning hefur verið send til lögreglu vegna einstaklings sem ákvað að yfirgefa sóttkvíarhótelið í Þórunnartúni, þar sem fólki er gert að dvelja eftir komuna til landsins. Það heyrir til undantekninga að fólk vilji yfirgefa hótelið að sögn upplýsingafulltrúa Rauða krossins, sem segir heilt yfir hafa gengið mjög vel að taka á móti gestum. 4. apríl 2021 14:14 Sumir lagt á flótta á meðan aðrir djamma Dæmi eru um að fólk hafi lagt á flótta úr sóttkvíarhótelinu við Þórunnartún. Óánægju virðist gæta á meðal gesta og hafa tveir lagt fram kæru til héraðsdóms. 3. apríl 2021 12:16 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Innlent Viðtal á Stöð 2 kveikir upp í færeyskum stjórnmálum Erlent Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Innlent Einhver í herberginu segi ekki satt Innlent Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Innlent Baldur vinsælasta plan B Innlent Fara fram á farbann Innlent Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju Erlent Gríðarleg fjölgun á dvalarleyfum til Víetnama á grundvelli sérfræðiþekkingar Innlent Boða sérstakan bæjarstjórnarfund vegna bréfs Eggerts Innlent Fleiri fréttir Skólastjóradrama í Kóraskóla fær óvæntan endi Bein útsending: Ársfundur Landspítala Mótfallinn sjálfsafgreiðslu á Bessastöðum Ríkisstjórnin boðar til blaðamannafundar Fordæma brottvísun mansalsþolenda og vilja nýja stefnu Slökktu eld á Seltjarnarnesi Mögulegt umboðsleysi stjórnar Aðventista gæti skipt Ölfyssinga máli Fara fram á farbann Sjómenn í haldi og ÁTVR í bobba Bréf First Water veldur ringulreið í bæjarstjórn Ölfuss Konráð nýr efnahagsráðgjafi ríkisstjórnarinnar Umhverfis- og loftslagsmálin „Icesave okkar tíma“ Boða sérstakan bæjarstjórnarfund vegna bréfs Eggerts Skipstjórinn og stýrimaðurinn fluttir til Reykjanesbæjar Gríðarleg fjölgun á dvalarleyfum til Víetnama á grundvelli sérfræðiþekkingar „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Baldur vinsælasta plan B Bein útsending: MenntaStefnumót í Reykjavík Treysta sér til þess að vernda þjóðkirkjuna Magnús Geir vill fimm ár í viðbót í Þjóðleikhúsinu Telur ekki óeðlilegt að sýna mótmælendum samstöðu Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Einhver í herberginu segi ekki satt „Við erum ekki hlutlaus þjóð“ Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Vendingar í nýrri könnun og mannbjörg á ögurstundu Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Spyr hvort eðlilegt sé að ráðherrar taki þátt í erlendum mótmælum Sjá meira
Vilja ekki dvelja á sóttkvíarhótelinu með þriggja mánaða barn sitt Hjón með þriggja mánaða gamalt barn eru á meðal þeirra sem hafa leitað til lögmanns í því skyni að bera ákvörðun stjórnvalda um skyldudvöl þeirra á sóttkvíarhótelinu í Þórunnartúni undir dómstóla. 4. apríl 2021 14:28
Hvorki heimild né vilji til þess að hindra för fólks Ein tilkynning hefur verið send til lögreglu vegna einstaklings sem ákvað að yfirgefa sóttkvíarhótelið í Þórunnartúni, þar sem fólki er gert að dvelja eftir komuna til landsins. Það heyrir til undantekninga að fólk vilji yfirgefa hótelið að sögn upplýsingafulltrúa Rauða krossins, sem segir heilt yfir hafa gengið mjög vel að taka á móti gestum. 4. apríl 2021 14:14
Sumir lagt á flótta á meðan aðrir djamma Dæmi eru um að fólk hafi lagt á flótta úr sóttkvíarhótelinu við Þórunnartún. Óánægju virðist gæta á meðal gesta og hafa tveir lagt fram kæru til héraðsdóms. 3. apríl 2021 12:16