Testcovid.is, þrjár skimunarstöðvar sem Öryggismiðstöðinni starfrækir í samstarfi við Sameind rannsóknarstofu, hefur gert samning við Sjúkratryggingar Íslands um gjaldfrjáls hraðpróf vegna Covid-19. Greint er frá þessu í fréttatilkynningu.

Þeir sem eru á leið á fjölmenna viðburði þar sem krafist er nýlegrar niðurstöðu í hraðprófi geta þannig leitað á fleiri staði til gjaldfrjálsrar skimunar en áður. Testcovid.is skimunarstöðvarnar eru við Kringluna, á BSÍ og við Aðaltorg í Reykjanesbæ.

„Það eru stór tíðindi að hraðprófin séu ókeypis fyrir alla. Þau kostuðu áður 6.900 kr. en eru sem sagt ókeypis núna sem skiptir auðvitað miklu máli fyrir fólk. Sérstaða okkar er að fólk getur bókað tíma hjá okkur á netinu og það er engin biðröð þegar fólk mæti í skimun. Það er mikil eftirspurn eftir hraðprófum og við heyrum að fjölmargir aðilar eru að fara af stað með stærri viðburði, t.d. busaböll í menntaskólum, árshátíðir, íþróttaleiki, tónleika og aðra menningarviðburði. Við getum þjónustað stóra hópa í einu og allir eiga sína tímabókun,“ segir Ómar Brynjólfsson, framkvæmdastjóri AVIÖR, sem er svið innan Öryggismiðstöðvarinnar sem sér um rekstur skimunarstöðvanna, í fréttatilkynningu.

„Hraðprófin sem um ræðir eru afar nákvæm Antigen próf frá Siemens sem skila niðurstöðu á 15-20 mínútum. Prófið er framkvæmt með stroku í nefkok og niðurstaða er send með QR kóða í tölvupósti til viðkomandi um leið og hún liggur fyrir,“ segir í niðurlagi tilkynningarinnar.