Spyr hvar Alþingisappið sé

Sara Elísa Þórðardóttir, varaþingmaður Pírata, vill að komið verði á fót smáforriti þar sem almenningur getur sótt sér upplýsingar um störf þingsins. Forritið mætti fjármagna með sölu á varningi í gegnum netið.

Sara Elísa Þórðardóttir skjáskot Alþingi
Auglýsing

Með Alþing­isapp­inu gæti fólk hlustað og horft á þing­fundi á svip­aðan hátt og gert er með vin­sæl hlað­vörp að mati Söru Elísu Þórð­ar­dóttur vara­þing­manns Pírata sem hvatti þing­menn Alþingis í dag til þess að skoða alvar­lega að koma á fót smá­forriti fyrir þing­ið, Alþing­isapp­inu.



„Þó að yfir­stand­andi heims­far­aldur hafi lagt dauða hönd á flesta fleti dag­legs lífs á ein­hverjum tíma­punkti  þá hefur hann hins vegar gætt almennri tækn­i­notkun og tækni­skiln­ingi stór­auknu lífi. Jafn­vel nefnd­ar­fundir alþingis hafa færst yfir á fjar­fund­ar­form­ið. Eins höfum við séð afburðar smitrakn­ing­arapp þróað hér á met­tíma. En for­seti, hvar er alþingis app­ið?“ spurði Sara Elísa á Alþingi í dag í umræðum um störf þings­ins.



Auglýsing

Fólk gæti vaktað til­tekin þing­mál

Hún sagði slíkt smá­forrit geta gert almenn­ingi kleift að fylgj­ast betur með störfum þings­ins, það gæti haldið fólki upp­lýsti um þing­mál og fólk jafn­vel vaktað til­tekin þing­mál. Þannig væri hægt að fá til­kynn­ingar þegar til­tekin mál er sett á dag­skrá eða þegar atkvæða­greiðsla fer fram um sömu mál. Hún sagði slíkt for­rit einnig geta haft fræðslu­gildi, þar mætti setja inn mynd­bönd um störf þings­ins og þar væri hægt að birta upp­lýs­ingar um kosn­ingar og kosn­inga­nið­ur­stöð­ur.



Að hennar mati væri hægt að fjár­magna gerð slíks smá­forrits með sölu á varn­ingi. „Og þó að lýð­ræðið kosti jú pen­inga, virðu­legi for­seti, þá þyrfti þetta alls ekki að vera dýrt, gæti jafn­vel fjár­magnað sig sjálft með sölu á Alþing­is­varn­ingi í gegnum net­ið.



Önnur þjóð­þing hafa farið svip­aða leið og nefndi Sara Elísa til dæmis breska þjóð­þing­ið. Hvatti hún þing­menn til að skoða þennan mögu­leika og að „upp­færa alþingi enn meira, styrkja beint lýð­ræði og efl­ingu gegn­særrar stjórn­sýslu á þeim formum sem bjóð­ast.“



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent