Sendifulltrúar Sameinuðu þjóðanna sakaðir um lygar af herforingjastjórninni Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 25. október 2021 10:03 Min Aung Hlaing, æðsti herforingi mjanmarska hersins í Mjanmar. Herforingjastjórnin er síður en svo sátt með nýja skýrslu sendifulltrúa Sameinuðu þjóðanna í landinu um stöðuna þar eftir valdaránið. EPA-EFE/STRINGER Herforingjastjórnin í Mjanmar hefur sakað sendifulltrúa Sameinuðu þjóðanna hafi notað óáreiðanlegar heimildir og brotið á fullveldi ríkisins í skýrslu sem þeir unnu fyrir alþjóðastofnunina.
Miklar óeirðir hafa riðið yfir landið síðan mjanmarski herinn tók völd þann 1. febrúar síðatliðinn. Herinn hefur verið sakaður um ýmis ódæðisverk og að hafa beitt óhóflegu valdi gegn almennum borgurum. Herforingjastjórnin hefur þó kennt „hryðjuverkamönnum“, sem starfi með stjórnarandstöðunni, um ófriðinn. Fréttastofa Reuters greinir frá. Utanríkisráðuneyti herforingjastjórnarinnar er síður en svo sátt með skýrslu sendifulltrúanna Christine Schraner Burgener og Tom Andrews. Samkvæmt ráðuneytinu sýni skýrslurnar mynd sem sé langt frá raunveruleikanum og sýni í raun bara fyrir fram ákveðnar hugmyndir Sameinuðu þjóðanna um stöðuna í Mjanmar. Schraner Burgener, sem hefur sinnt hlutverki sendifulltrúa fyrir SÞ undanfarin þrjú ár, sagði í síðustu viku að herforingjastjórnin hafi engan áhuga á að koma til móts við alþjóðasamfélagið. Þá verði ólíklegra með hverjum deginum að hægt verði að snúa þróuninni í landinu við. Herforingjastjórnin hefur sakað sendifulltrúana um að hafa stuðst við óáreiðanlegar dánartölur í skýrslu sinni, hafi sakað stjórnina um ýmislegt misjafnt án þess að færa fyrir því sönnur og að hafa gert lítið úr meintu ofbeldi sem almenningur hafi beitt í atlögum gegn hernum. Þá hafi það ekki verið tekið fram í skýrslunni að herinn hafi tekið völd vegna kosningasvindls sem hafi verið framið í kosningum á síðasta ári. Alþjóðastofnanir og samtök hafa í auknum mæli gagnrýnt framgang herforingjastjórnarinnar og tilkynnti ASEAN, Samband Suðaustur-Asíuríkja, í síðustu viku að yfirherforingi herforingjastjórnarinnar í Mjanmar fengi ekki að taka þátt í næstu ráðstefnu sambandsins.
Mjanmar Sameinuðu þjóðirnar Tengdar fréttir Herforingjastjórnin ætli að sleppa 5.600 stjórnarandstæðingum lausum Herforingjastjórnin í Mjanmar segist ætla að sleppa 5.600 pólitískum föngum lausum. Þetta var tilkynnt aðeins dögum eftir að yfirherforingjanum var meinað að mæta á leiðtogafund Sambands Suðaustur-Asíuríkja fyrir að takast ekki að koma á friði í landinu. 18. október 2021 13:47 Mjanmarski herinn handtekur lækna þrátt fyrir metfjölda smitaðra Mjanmarski herinn hefur handtekið fjölda lækna sem hafa starfað í framlínunni í baráttunni gegn Covid-19. Læknarnir hafa starfað sjálfstætt með kórónuveirusjúklingur en heilbrigðiskerfið er að þolmörkum komið í landinu þar sem fjöldi smitaðra hækkar með verjum deginum sem líður. 22. júlí 2021 10:48 Blaðamaður Reuters felldur í átökum við Talibana Danish Siddiqui, blaðamaður og ljósmyndari Reuters fréttaveitunnar, féll í bardögum stjórnarhers Afganistans og Talibana við landamæri Afganistans og Pakistans í morgun. Siddiqui var á ferð með afgönskum hermönnum þar sem þeir reyndu að ná aftur tökum á bænum Spin Boldak. 16. júlí 2021 10:29 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Mikill viðbúnaður vegna bráðra veikinda Innlent Ráðherrar hafi verið ítrekað varaðir við gjöf Haraldar Innlent Sat saklaus í unglingafangelsi í tvö ár Innlent Íransforseti fórst í þyrluslysinu Erlent „Ég stóð bara með sóttvarnalækni“ Innlent Saksóknari Alþjóðlega sakamáladómstólsins vill handtaka Netanjahú og Hamas-liða Erlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Erfitt að ímynda sér meiri harðlínumann en Raisi Innlent Fimm stríðsþristar á leiðinni til landsins Innlent Handtökuskipun á hendur forsætisráðherra og kjaradeila Innlent Fleiri fréttir Spánverjar kalla sendiherrann heim í kjölfar ummæla Milei Sigur fyrir Assange sem fær að áfrýja framsali Saksóknari Alþjóðlega sakamáladómstólsins vill handtaka Netanjahú og Hamas-liða Komst loks út í geim sextíu árum síðar Íransforseti fórst í þyrluslysinu Leitin enn ekki borið árangur Tveir látnir og fimm saknað eftir slys í Dóná Diddy biðst afsökunar á „ófyrirgefanlegri hegðun“ Óljóst hvort þyrlan sé fundin Íranski forsetinn í óljósu þyrluslysi Færeyingar draga í land með ferðamannaskatt Bæjarstjóri sakaður um að vera njósnari: „Enginn veit hver hún er“ Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Ástand Fico enn alvarlegt Býst við aukinni sókn Rússa Beitti neitunarvaldi gagnvart umdeildum fjölmiðlalögum Myndband sýnir árás Diddy Færeyingar felldu frumvarp um fóstureyðingar Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Segir Rússa ekki hafa í hyggju að taka Kharkív Viðtal á Stöð 2 kveikir upp í færeyskum stjórnmálum Reyndi að kveikja í bænahúsi gyðinga og var skotinn til bana Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju „Einfari“ ákærður fyrir tilræðið við Fico Hver er Robert Fico? Neyðarástandi lýst yfir á Nýju-Kaledóníu eftir miklar óeirðir Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Hægriflokkar ná saman um myndun ríkisstjórnar Samið um kappræður í júní og september Fico ekki talinn í lífshættu Sjá meira
Herforingjastjórnin ætli að sleppa 5.600 stjórnarandstæðingum lausum Herforingjastjórnin í Mjanmar segist ætla að sleppa 5.600 pólitískum föngum lausum. Þetta var tilkynnt aðeins dögum eftir að yfirherforingjanum var meinað að mæta á leiðtogafund Sambands Suðaustur-Asíuríkja fyrir að takast ekki að koma á friði í landinu. 18. október 2021 13:47
Mjanmarski herinn handtekur lækna þrátt fyrir metfjölda smitaðra Mjanmarski herinn hefur handtekið fjölda lækna sem hafa starfað í framlínunni í baráttunni gegn Covid-19. Læknarnir hafa starfað sjálfstætt með kórónuveirusjúklingur en heilbrigðiskerfið er að þolmörkum komið í landinu þar sem fjöldi smitaðra hækkar með verjum deginum sem líður. 22. júlí 2021 10:48
Blaðamaður Reuters felldur í átökum við Talibana Danish Siddiqui, blaðamaður og ljósmyndari Reuters fréttaveitunnar, féll í bardögum stjórnarhers Afganistans og Talibana við landamæri Afganistans og Pakistans í morgun. Siddiqui var á ferð með afgönskum hermönnum þar sem þeir reyndu að ná aftur tökum á bænum Spin Boldak. 16. júlí 2021 10:29
Saksóknari Alþjóðlega sakamáladómstólsins vill handtaka Netanjahú og Hamas-liða Erlent
Saksóknari Alþjóðlega sakamáladómstólsins vill handtaka Netanjahú og Hamas-liða Erlent