Hluti nemenda haldi sig heima og aðrir komi með nesti vegna myglu Árni Sæberg skrifar 23. janúar 2023 20:15 Mygla hefur greinst á nokkrum stöðum í Flataskóla. Vísir/Sigurjón Niðurstöður úr sýnatökum í Flataskóla í Garðabæ benda til þess að loka þurfi nokkrum rýmum í skólanum til viðbótar vegna myglu. Nemendur í þriðja og sjöunda bekk þurfa að halda sig heima næstu tvo daga og aðrir nemendur þurfa að taka með nesti vegna lokunar mötuneytis skólans.
Þetta kemur fram í tölvupósti sem sendur var á forráðamenn barna við skólann, fréttastofa hefur póstinn undir höndum. Mygla greindist fyrst í Flataskóla úr sýnum sem tekin voru í október síðastliðnum. Í kjölfarið var farið í heildarúttekt innan skólans. Í tölvupóstinum segir að áhersla hafi verið lögð á að grípa skjótt til aðgerða og að Garðabær vinni náið með verkfræðistofunni Mannvit, sem heldur utan um sýnatökur og aðgerðir. „Mannvit upplýsti í dag, 23. janúar, um fyrstu niðurstöður úr sýnatökum sem fram fóru í desember og janúar en þær benda til þess að loka þurfi nokkrum rýmum til viðbótar í skólanum. Um er að ræða matsal og leikskóladeild skólans en einnig tvær kennslustofur 7. bekkja, eina stofu 3. bekkja, eina stofu 6. bekkja og sérkennslurými,“ segir í tilkynningunni. Til þess að geta brugðist við breyttum aðstæðum muni nemendur í þriðja bekk og sjöunda bekk þurfa að vera heima næstu tvo daga. Starfsemi leikskólans muni einnig liggja niðri næstu tvo daga. Mötuneytinu skellt í lás Þá segir að þeir nemendur sem munu geta mætt í skólann á morgun, þriðjudag, muni þurfa að taka með sér nesti í skólann vegna lokunar mötuneytisins. Frá og með miðvikudegi muni Matartíminn, sem rekur mötuneyti skólans, sjá nemendum í mataráskrift fyrir nesti. Þá segir að á næstu tveimur dögum muni starfsmenn skólans vinna að endurskipulagningu fyrir þá árganga sem um ræðir og forráðamenn verði áfram upplýstir um stöðu mála. Frekari niðurstaða sýnataka sé enn beðið og að Mannvit hafi ráðlagt Garðabæ að grípa til framangreindra ráðstafana í samræmi við verklag bæjarins. Óvissa með framhaldið Í tölvupóstinum segir að næstu skref verklagsins séu að loka umræddum rýmum með loftþéttri lokun á meðan viðgerðir á þeim standa yfir. Beðið sé eftir endanlegum niðurstöðum sýnatöku og þá verði hægt að leggja heildarmat á ástand skólans og í kjölfarið ráðast í endurbætur þar sem þörf er á. Komi til þess verði afmörkuðum svæðum lokað með loftþéttri lokun á meðan viðgerðir standa yfir. Víðtækar hreingerningar verði framkvæmdar strax eftir lagfæringar ásamt hreinsun loftræstikerfis og að lokum muni Mannvit sjá um eftirfylgni en sýnataka fari aftur fram tveimur til þremur mánuðum eftir að viðgerðum er lokið.
Garðabær Skóla - og menntamál Mygla Grunnskólar Tengdar fréttir Mygla í grunnskólum Garðabæjar: Bæjarstjórn lítur málið alvarlegum augum Mygla hefur greinst í tveimur grunnskólum í Garðabæ. Foreldrar eru ósáttir við hversu seint var brugðist við ábendingum og gagnrýna skort á upplýsingagjöf. Bæjarstjóri lofar allsherjarúttekt og endurbótum. 21. desember 2022 09:35 Skýrslan sem hvarf Samfélag byggir á trausti. Við treystum því að hagsmunir okkar séu varðir af þeim sem kjörnir eru til ábyrgðarstarfa á opinberum vettvangi og að yfirvöld séu traustsins verð, ekki síst þegar kemur að heilsu barnanna okkar. Á haustdögum, eftir að jarðvegssveppur fannst í Miðgarði, lagði Garðabæjarlistinn fram ítarlega fyrirspurn um viðbrögð og forvarnir bæjarins við raka- og mygluskemmdum. 17. janúar 2023 17:31 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Litaðir seðlar til skoðunar og málið á mjög viðkvæmu stigi Innlent Úrskurðurinn felldur úr gildi Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Yrði gagnkynhneigður maður spurður sömu spurningar? Innlent Sinueldur í Munaðarneslandi Innlent Sagðist ætla að nota tíu milljón króna kókaín allt sjálfur Innlent Íslensk stjórnvöld haldin „sjúkri undirgefni“ Innlent Þrjú hundruð handtekin í Columbia-háskóla Erlent Sér eftir Landsdómsmálinu: „Ég myndi aldrei gera þetta svona aftur“ Innlent „Það er hart sótt að okkar fólki“ Innlent Fleiri fréttir Icelandair flýgur til Færeyja að nýju Stutt í næsta gos komi til gosloka „Það er hart sótt að okkar fólki“ Nemendur Flóaskóla slá í gegn með Langspilin sín Háskólanemar halda lautarferð og stofna hreyfingu fyrir Palestínu Jarðhræringar á Reykjanesi, flug til Færeyja og verkalýðsdagurinn Úrskurðurinn felldur úr gildi Vill hinn almenna launamann á þing Sinueldur í Munaðarneslandi Íslensk stjórnvöld haldin „sjúkri undirgefni“ Barn á Akureyri greindist með kíghósta Íslensk fjara á lista yfir bestu strendur heims Beint: Hátíðarhöld á verkalýðsdaginn 2024 Sniglar hægja á umferð Yrði gagnkynhneigður maður spurður sömu spurningar? Verkalýðsbaráttan aldrei verið jafn mikilvæg Einkamálefni forsetaframbjóðanda, verkalýðsdagurinn og háskólamótmæli „Hinsegin fólk þekkir vel að vera smættað niður í einkalíf sitt“ Hátíðardagskrá víða um land á verkalýðsdaginn Litaðir seðlar til skoðunar og málið á mjög viðkvæmu stigi Sagðist ætla að nota tíu milljón króna kókaín allt sjálfur Arnór Sighvatsson settur varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika Sér eftir Landsdómsmálinu: „Ég myndi aldrei gera þetta svona aftur“ Íslenskar stjörnur fái peninga að gjöf til að leggja undir í veðmálum Hjólastólinn í „tengdamömmuboxi“ á toppi bílsins Gæti dregið til tíðinda á næstu klukkustundum Fallið frá ráðningarferli og Hermann fylgir Sigurði Inga Allt að fimm milljóna króna sekt á hvern fisk Gamla stjarnan þótti ekki henta nútímakröfum Ekkert eftirlit með veðmálasíðum, landris við Svartsengi og milljónasektir fyrir eldislax Sjá meira
Mygla í grunnskólum Garðabæjar: Bæjarstjórn lítur málið alvarlegum augum Mygla hefur greinst í tveimur grunnskólum í Garðabæ. Foreldrar eru ósáttir við hversu seint var brugðist við ábendingum og gagnrýna skort á upplýsingagjöf. Bæjarstjóri lofar allsherjarúttekt og endurbótum. 21. desember 2022 09:35
Skýrslan sem hvarf Samfélag byggir á trausti. Við treystum því að hagsmunir okkar séu varðir af þeim sem kjörnir eru til ábyrgðarstarfa á opinberum vettvangi og að yfirvöld séu traustsins verð, ekki síst þegar kemur að heilsu barnanna okkar. Á haustdögum, eftir að jarðvegssveppur fannst í Miðgarði, lagði Garðabæjarlistinn fram ítarlega fyrirspurn um viðbrögð og forvarnir bæjarins við raka- og mygluskemmdum. 17. janúar 2023 17:31