Fékk tveggja ára bann fyrir að gefa leikmönnum peninga eftir leik Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. október 2020 11:01 Odell Beckham Jr. fagnarhér með liðfélögum sínum í Cleveland Browní leik á móti Pittsburgh Steelers. AP/Don Wright
NFL-leikmaðurinn Odell Beckham Jr. má ekki koma nálægt neinu hjá Louisiana State University fótboltaliðinu næstu tvö árin eftir að hafa brotið reglur með því að gefa leikmönnum peninga í fagnaðarlátum háskólaliðsins í byrjun þessa árs. NFL-stjarnan mætti með tvö þúsund dollara í seðlum niður á völl og gaf leikmönnum háskólaliðs LSU eftir að liðið varð háskólameistari í janúar. Það er bannað samkvæmt reglum NCAA. Yfirmenn Louisiana State University tóku þá ákvörðun að loka dyrunum á Odell Beckham Jr. næstu tvö árin en á sama tíma þarf skólinn að ganga í gegnum erfiðleika hans vegna. LSU has banned Odell Beckham Jr. from its football facilities for two years related to the NCAA's investigation into improper booster payments to its football players, first reported by Sports Illustrated.More on the penalties: https://t.co/Cod97v5kt6 pic.twitter.com/5XmhQ50ZUG— SportsCenter (@SportsCenter) October 21, 2020 Leikmenn í bandaríska háskólafótboltanum mega ekki þiggja neinar greiðslur og LSU fékk alls konar refsingar fyrir það sem Odell Beckham Jr. gerði kvöldið sem LSU varð háskólameistari. Liðið missti meðal annars átta skólastyrki næstu tvö árin og skólanum var einnig gert erfiðara fyrir í að sannfæra mögulega framtíðarleikmenn liðsins að koma í skólann. Odell Beckham Jr. er fyrrum leikmaður LSU og mætti á úrslitaleikinn þar sem LSU vann 42-25 sigur á Clemson 13. janúar síðastliðinn. Beckham Jr. spilar nú með Cleveland Browns í NFL-deildinni og er enn að lifa á risasamning sem hann fékk á sínum tíma frá New York Giants. LSU is banning Odell Beckham Jr. for two years from their facility for handing out cash after its national title win, per @SInowIt s also removing eight scholarships as a penalty for booster payment violations(via @MorganLagreeTBP)pic.twitter.com/UlH0lNJNmv— Bleacher Report (@BleacherReport) October 21, 2020 Beckham sló um sig með því að mæta með alla þessa peningaseðla og fagnaði sigrinum með því að gefa fjórum leikmönnum liðsins seðlana niður á vellinum eftir leikinn. Hann fékk síðan að fagna sigrinum með þeim inn í búningsklefa líka. Odell Beckham Jr. skrifaði á sínum tíma undir fimm ára samning sem átti að skila honum 90 milljónum dollara eða 12,5 milljarða íslenskra króna. Hann fékk 17 milljónir dollara í laun fyrir síðasta tímabil og á að fá 14,2 milljónir fyrir núverandi tímabil.
NFL Mest lesið Mari Järsk sigurvegari Bakgarðshlaupsins Sport Mari meyr eftir sigurinn Sport Áflogaseggir fá ekki að mæta aftur á völlinn Körfubolti Leik lokið: Breiðablik - Valur 2-3 | Manni færri héldu gestirnir út Íslenski boltinn Stórfurðuleg atburðarás þegar markvörður KR sá rautt Íslenski boltinn Þorleifur horfði á Íslandsmet sitt falla: „Kom á óvart“ Sport Crystal Palace lék sér að Man United Enski boltinn Þambar kakó og rjóma eftir magnað afrek: „Upp og niður eins og lífið“ Sport Freyr nærri kraftaverki: „Þetta var fokking taugatrekkjandi“ Fótbolti Baunað á Brady: „Þín verður ávallt minnst sem tíkar Eli Manning“ Sport Fleiri fréttir Leik lokið: Breiðablik - Valur 2-3 | Manni færri héldu gestirnir út Uppgjör: Grindavík - Njarðvík 69-82 | Njarðvík í úrslit Crystal Palace lék sér að Man United Þjálfari Luka og Kyrie framlengir Van Dijk vill hjálpa til við að skrifa næsta kafla Liverpool Mari meyr eftir sigurinn Fjórir frá vegna meiðsla: „Dagurinn ekkert frábær á skrifstofunni“ Sara Björk hafði betur gegn Alexöndru Eyddi öllum Liverpool-myndum Mjölnisfólk fylgist með bakgarðshlaupurum: „Ótrúlegir íþróttamenn“ „BLE-bræður eru brjálaðir!“ Lýkur Gylfi markaþurrð Vals á Kópavogsvelli? Þorleifur horfði á Íslandsmet sitt falla: „Kom á óvart“ Nánast uppselt á leik kvöldsins Þambar kakó og rjóma eftir magnað afrek: „Upp og niður eins og lífið“ „Þetta er ekki fyrir hvern sem er“ Áflogaseggir fá ekki að mæta aftur á völlinn Slógu Íslandsmetið saman Dómarinn verður með myndavél á höfðinu Baunað á Brady: „Þín verður ávallt minnst sem tíkar Eli Manning“ Freyr nærri kraftaverki: „Þetta var fokking taugatrekkjandi“ Bæjarar skoði að ráða ten Hag Öll mörkin í gær: Sjáðu hvernig HK vann meistarana og kóngurinn komst á blað Vann mótið fárveikur og fór á sjúkrahús Fimm ára bið á enda hjá Norris Luku hundrað ára bið Noregs og það bitnaði á þjálfurunum Lopetegui tekur við West Ham Lýsti Haaland sem „ofdekruðum krakka“ Stórfurðuleg atburðarás þegar markvörður KR sá rautt Aðeins einum leik frá ótrúlegu meti Sjá meira