Mikilvægt að fólk sé vakandi fyrir Alzheimer Nadine Guðrún Yaghi skrifar 21. september 2020 22:57 Ellý Katrín Guðmundsdóttir og Magnús Karl Magnússon. Vísir/Egill
Kona með Alzheimer og eiginmaður hennar segja gríðarlega mikilvægt að fólk sé vakandi um sjúkdóminn og rétti þeim sem þurfa fram hjálparhönd. Ellý Katrín greindist með Alzheimersjúkdóminn fyrir fjórum árum, þá 51 árs gömul. Hún starfaði þá sem borgarritari. Eftir greininguna vann hún í hlutastarfi á umhverfissviði þar til í fyrra. Hún ákvað strax að vera hreinskilin um sjúkdóminn. „Það var svo mikið pukur um þennan sjúkdóm. Hann er náttúrulega erfiður þessi sjúkdómur,“ segir Ellý, en bætir við að það hafi hjálpað henni gríðarlega mikið að opna sig. „Svo eru það þessi verkefni sem fyrir okkur eru einföld verkefni, en verða svolítið flóknari. Eins og að leggja á borð, hvert diskurinn fer og í hvaða röð hnífapörin fara niður,“ segir Magnús Karl Magnússon, eiginmaður Ellýar. Ellý hafi gert ferlið auðveldara með því að vera ekki að fela neitt. „Hreinskilnin gefur fólki tækifæri á að sýna ást og umhyggju og kannski minna á að þegar svona stór leyndardómur er þá verða einfaldar spurningar eins og „hvernig hefur þú það?“ flóknar þegar stærsta fréttin er ósögð,“ segir Magnús. Í dag er alþjóðlegi Alzheimerdagurinn. Ellý og Magnús héldu fyrirlestur á rafrænni málstofu Alzheimersamtakanna í tilefni dagsins. Yfirskrift málstofunnar er styðjandi samfélag fyrir fólk með heilabilun. Magnús segir gríðarlega mikilvægt að fólk sé vakandi um sjúkdóminn og rétti fram hjálparhönd til dæmis í matvöruverslunum. „Eins og þið sjáið, Ellý lítur ekki út eins og hún sé sjúklingur. Þetta er ósýnilegur sjúkdómur að mörgu leyti þannig að fólk þarf að vera vakandi. Það þarf ekki endilega að spyrja hvort það sé með heilabilun heldur hvort það geti aðstoðað þegar fólk sér að einhver veit ekki alveg hvað hann á að gera.“ Hann hvetur alla til að gerast svokallaðir heilavinir, fólk þurfi ekki að hræðast Alzheimer. „Fólk er hrætt við þennan sjúkdóm. Við þurfum bara að tala um hann eins og hverja aðra sjúkdóma – lífið heldur áfram.“
Heilbrigðismál Eldri borgarar Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Innlent Of þung en annars hraust á Ozempic Innlent Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Innlent Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Innlent Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Innlent Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Innlent Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Innlent Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu Innlent Myndband sýnir árás Diddy Erlent Fleiri fréttir 40 tungumál eru töluð í leik- og grunnskólum Árborgar Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Þungar áhyggjur af þyngdarstjórnunarlyfjum Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Nauðsynlegt að fresta atkvæðagreiðslu um umdeilda verksmiðju Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Of þung en annars hraust á Ozempic Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Lífleg og skrautleg kosningabarátta að mati forsætisráðherra Dregur saman með efstu frambjóðendum Mesta kvika frá því að kvikugangurinn myndaðist Nota sykursýkislyf til að léttast og Rottweilerhundar bjóða í partý Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Sendiherra, sveitarstjóri og bæjarstjóri skipuð í nefnd Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Stuðningslán með ríkisábyrgð fyrir grindvísk fyrirtæki Skipið leggur úr höfn „Alls ekki svo að við tútturnar séum að taka yfir“ Framkvæmdir hafnar við brú yfir Fjarðarhornsá Sjá meira