Tilkynnti um fjögurra vikna útgöngubann og bað bólusetta afsökunar Atli Ísleifsson skrifar 20. október 2021 10:53 Krisjanis Karins er forsætisráðherra Lettlands. Hann ávarpaði þjóð sína á mánudagskvöldið. Getty Forsætisráðherra Lettlands tilkynnti á mánudag um fjögurra vikna útgöngubann vegna mikillar fjölgunar kórónuveirusmita í landinu síðustu daga. Á sama tíma bað hann bólusetta landsmenn afsökunar á að þurfa að grípa til þessara aðgerða, en bólusetningarhlutfall í Lettlandi er eitt það lægsta í ríkjum ESB.
Forsætisráðherrann Krisjanis Karins sagði á fréttamannafundi að heilbrigðiskerfi landsins væri undir svo miklu álagi vegna faraldursins að stjórnvöld telji nauðsynlegt að grípa aftur til harðra aðgerða. Eina leiðin út úr stöðunni væri að koma á útgöngubanni og að bólusetja landsmenn í auknum mæli. Karins ávarpaði þjóð sína eftir neyðarfund ríkisstjórnarinnar á mánudaginn. Einungis 54 prósent fullorðinna í Lettlandi eru nú fullbólusettir og er hlutfallið umtalsvert lægra en meðalhlutfallið hjá ríkjum ESB, það er um 74 prósent. Karins nýtti tækifærið og bað bólusetta í landinu afsökunar á að þeir þurfi að leggja á sig þessar hertu aðgerðir. „Ég verð að biðja alla bólusetta afsökunar á að þeir þurfi að leggja á sig þessar byrðar. Og ég veit að það er erfitt. En þetta verður að vera svona, þar sem aðrar manneskjur er ekki bólusettar. Og ef við berum ekki þessar byrðar þá munum við öll líða fyrir,“ sagði Karins. Samkvæmt nýju reglunum verður skólum, veitingastöðum, verslunum og menningarstofnunum gert að loka. Einungis matvöruverslunum og apótekum verður heimilt að hafa opið. Þá verður útgöngubanni framfylgt milli átta á kvöldin og til fimm á morgnana. Nýgengi innanlandssmita, það er fjöldi smitaðra á hverja 100 þúsund íbúa undanfarnar tvær vikur, er nú 1.313,8 í landinu, samanborið við 186,0 hér á landi.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Lettland Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Innlent Einhver í herberginu segi ekki satt Innlent Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Innlent Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Innlent Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Innlent Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Innlent „Við erum ekki hlutlaus þjóð“ Innlent Óvinnufær eftir harkalegt fall þegar strappur slitnaði Innlent Fólk muni ekki borga 200 þúsund fyrir „heimili sem það notar sem sumarbústað“ Innlent Skipstjórinn og tveir stýrimenn handteknir vegna sjóslyssins Innlent Fleiri fréttir „Einfari“ ákærður fyrir tilræðið við Fico Hver er Robert Fico? Neyðarástandi lýst yfir á Nýju-Kaledóníu eftir miklar óeirðir Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Hægriflokkar ná saman um myndun ríkisstjórnar Samið um kappræður í júní og september Fico ekki talinn í lífshættu Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Þetta er vitað um árásarmanninn Biden skorar á Trump Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Þverpólitískar tillögur um viðbrögð vegna gervigreindar FIFA byrjað að vinda ofan af umbótum eftir spillingarhneykslið Fulltrúar Talíbana á ráðstefnu í Ósló Fyrsta opinbera málverkið af konunginum Karli III afhjúpað í gær Gróðureldar ógna olíuvinnslumiðstöð í Kanada Gríðarleg leit gerð að mönnum sem frelsuðu fanga í Frakklandi Skriðdrekar Ísraelshers komnir inn í íbúðahverfi í Rafah Framámaður AfD sektaður fyrir að nota slagorð nasista Vill bjóða NATO að byggja nýjan flugvöll í Færeyjum Þorir að veðja bjór á að hún verði áfram forsætisráðherra Lokað á grein um barnadráp í Bretlandi Drápu fangaverði og hjálpuðu fanga að strjúka „Rússnesku lögin“ samþykkt í Georgíu Bendlaði Trump beint við þagnargreiðslurnar Losnar af réttargeðdeild eftir allt saman Blinken í óvænta heimsókn til Kænugarðs Megrunarlyfin nýjasta vopnið gegn hjartasjúkdómum? Fjöldi látinna á Gasa á reiki Færeyingar fjölga vindmyllum til að draga úr olíukyndingu Sjá meira