Allsendis óvíst hvernig Íslendingar taka Glerársandi Snorri Másson skrifar 19. júlí 2021 20:45 Akureyringurinn Baldvin Z er með nýja seríu á leiðinni, Svörtusanda. Stöð 2 Íslenskir áhorfendur eru líklegir til að klóra sér í kollinum sem aldrei fyrr yfir skáldaða og margsamsetta bænum Glerársandi, sem er sögusvið einnar metnaðarfyllstu sjónvarpsseríu síðari tíma hér á landi. Leikstjórinn segir að serían verði „ógeðslega spennandi.“
Eins og sjá má í myndbandinu hér að neðan er nú rekið sjúkrahús og lögreglustöð í Víðinesi á Kjalarnesi rétt suðvestur af Esjunni, eða svo virðist alla vega vera við fyrstu sýn. Í raun og veru er þetta allt saman til sýnis; þetta er hluti af sannfærandi leikmynd sem komið hefur verið fyrir í gamla vistheimilinu, þar sem verið er að leggja lokahönd á tökur á einu allra stærsta kvikmyndaverkefni ársins á Íslandi. Það eru sjónvarpsþættirnir Svörtusandar og sjúkrahúsið og lögreglustöðin verða samkvæmt söguheiminum staðsettir í bæ sem er skáldaður frá grunni, Glerársandi. „Þetta er „dark romantic thriller“ sem segir frá ástum og örlögum fólks í litlu smáþorpi úti á landi, sem við köllum Glerársanda. Þannig að við bjuggum til nýtt þorp á Íslandi. Ég veit ekki hvernig það á eftir að leggjast í fólkið, en þetta er afar spennandi sjónvarpssería sem hefur verið í tökum bara núna síðan í byrjun apríl.“ Leikstjórinn segir að í raun sé líklega verið að fremja Íslandsmet í að skálda saman sögusvið. Saga fyrir Íslendinga, en útlenskir áhorfendur fá vissulega að sjá landið Þættirnir verða átta talsins og verða frumsýndir á Stöð 2 - en einnig hefur verið samið við fjölda erlendra sjónvarpsstöðva um sýningarréttinn. Svörtusandar eru stærsta verkefni sem Baldvin Z hefur tekist á við frá upphafi og er hann þó ábyrgur fyrir stórmyndum á borð við Vonarstræti og Lof mér að falla. „Þetta er saga fyrir Íslendinga, og þetta er saga fyrir eiginlega bara alla.” Í Svörtusöndum finnst lík á sekúndu þrettán, þetta eru spennuþættir og útlendingar sem horfa fá að sjá Ísland - en í kvikmyndatökunni og frásagnaraðferðinni kveður að sögn leikstjórans við nýjan tón í íslenskri kvikmyndagerð. „Ég held að við nálgumst það bara á áhugaverðan hátt í þessari seríu. Útlendingar fá alveg að sjá Ísland, það er engin spurning, en það sem við gerðum sem er mjög skemmtilegt í þessari seríu er að við grípum andrúmsloftið í kringum Kirkjubæjarklaustur og Vík. Fyrstu fjórir þættirnir á meðan við erum að byggja undir það sem koma skal dettur umhverfið hægt og rólega út og persónurnar taka við.” Áður en áhorfendur vita af verði þeir búnir að vera djúpt sokknir í sálarlíf aðalpersónanna þáttum saman, en þær eru eru meðal annars leiknar af Aldísi Amah Hamilton, Þór Tulinius og Aroni Má Ólafssyni. “Ég ætla að segja þau stóru orð að við séum að fara í spennuseríu sem er bara ógeðslega spennandi. Þetta fjallar ekki um hver er morðinginn heldur bara hvað kom fyrir þetta fólk.” Ný Netflix-sería Baltasars Kormáks, Katla, er tekin upp á svipuðum slóðum en staðsetningarnar eru ólíkar. Baldvin segir að sú sería hafi ekki gert nema opna sviðið fyrir fleiri seríum í svipuðum anda.
Mýrdalshreppur Reykjavík Kvikmyndagerð á Íslandi Bíó og sjónvarp Skaftárhreppur Mest lesið „Kveiktum næstum í öllu sumarbústaðalandinu“ Lífið Engir palestínskir fánar í Eurovision-höllinni Lífið Sígó eftir hvern hring og undir lokin þurfti að lyfta Mari upp úr stólnum en hún hljóp af stað Lífið Mikið fjör á opnun kosningaskrifstofu Gnarr Lífið Sjarmerandi og seiðandi á sjötugsaldri Lífið Sagan á bak við djarft listaverk Ásdísar Ránar Lífið Annie Mist og Frederik eignuðust dreng Lífið Hljómborðsleikari ELO fallinn frá Lífið Jón Daði og María Ósk eignuðust dreng Lífið Ný vörulína lagar litabletti í húð Lífið samstarf Fleiri fréttir Lolla í Litlu hryllingsbúðinni:„Þetta er auðvitað geggjað hlutverk“ Jón Daði og María Ósk eignuðust dreng Tíu ár og aukin meðvitund í bransanum Hvetur fólk til þess að leika sér Sígó eftir hvern hring og undir lokin þurfti að lyfta Mari upp úr stólnum en hún hljóp af stað Annie Mist og Frederik eignuðust dreng Hljómborðsleikari ELO fallinn frá Engir palestínskir fánar í Eurovision-höllinni Mikið fjör á opnun kosningaskrifstofu Gnarr Sjarmerandi og seiðandi á sjötugsaldri Nemendur Flóaskóla slá í gegn með Langspilin sín „Kveiktum næstum í öllu sumarbústaðalandinu“ „Nútíminn er trunta“ Sagan á bak við djarft listaverk Ásdísar Ránar Rithöfundurinn Paul Auster er látinn „Eurovision mamman“ með gleði og kærleika að vopni Múgur og margmenni fylgdust með ótrúlegu ostakúluáti „Hin raunverulegu stólaskipti fóru fram í dag“ Óstundvísi Steina sögð kosta tugi milljóna dollara Gerða og glæsilegar gellur á Edition Swing og hópkynlíf fyrir byrjendur! Snorri og Harpa selja á Njálsgötu Halda samstöðutónleika á sama tíma og Ísland keppir í Eurovision Una Torfa negldi slagara með Fleetwood Mac Maikai-hjónin eignuðust stúlku Bitcoin fjárfestar gerðu sér glaðan dag í Grósku Hvernig á að kenna hundi að rekja spor og slaka á Disneydraumurinn varð loks að veruleika Aðalsöngvari The Commitments stígur á svið í Háskólabíói Langþráður draumur Völu Eiríks rættist Sjá meira