Magdalena Andersson forsætisráðherra aftur á ný Atli Ísleifsson skrifar 29. nóvember 2021 12:59 Magdalena Andersson er 34. í röðinni og fyrsta konan til að gegna embætti forsætisráðherra Svíþjóðar. EPA Magdalena Andersson, formaður sænskra Jafnaðarmanna, var endurkjörin í dag í embætti forsætisráðherra en hún sagði af sér á dögunum eftir að hafa fyrst kvenna aðeins setið í embætti í sjö klukkustundir. Andersson sagði af sér í síðustu viku í kjölfar þess að Græningjar ákváðu að ganga úr ríkisstjórn.
Í Svíþjóð er það þannig að meirihluti þingmanna þarf að umbera forsætisráðherrann, það er ekki greiða atkvæði gegn. Í atkvæðagreiðslu sem lauk nú skömmu fyrir klukkan 13 að íslenskum tíma greiddu 175 þingmenn Jafnaðarmanna, Græningja, Vinstriflokksins og Miðflokksins ýmist atkvæði með Andersson eða sátu hjá (101 greiddi atkvæði með og 74 sátu hjá). 173 þingmenn Moderaterna, Kristilegra demókrata, Svíþjóðardemókrata og Frjálslyndra greiddu atkvæði gegn tillögunni. Andersson, sem verður 34. forsætisráðherra Svíþjóðar og fyrsta konan til að gegna embættinu, hefur verið fjármálaráðherra landsins frá árinu 2014. Hún tók við embætti formanns Jafnaðarmannaflokksins fyrr í mánuðinum af Stefan Löfven. Andersson sagði af sér á miðvikudaginn, sjö tímum eftir að meirihluti þingsins hafði samþykkt hana sem nýjan forsætisráðherra, eftir að Græningjar tilkynntu að þeir myndu segja skilið við ríkisstjórn landsins eftir að fjárlagafrumvarp borgaralegu flokkanna á þingi, stjórnarandstöðuflokkanna, náði fram að ganga á þinginu. Sögðust leiðtogar Græningjar ekki vilja stýra landinu með fjárlögum sem hægriöfgaflokkur, það er Svíþjóðardemókratar, hafi komið að því að smíða. Jafnaðarmenn og Græningjar hafa myndað saman minnihlutastjórn í Svíþjóð frá árinu 2014, en Andersson mun nú leiða minnihlutastjórn Jafnaðarmanna, en þingkosningar fara fram í landinu í september næstkomandi. Má ljóst vera að stjórnin verður ein sú veikasta í sögu landsins, enda háð því að þrír þingflokkar verji hana vanstrausti, auk þess að stjórnun mun þurfa að stýra landinu á fjárlögum stjórnarandstöðunnar. Þar sem Andersson hefur nú tekið við embætti forsætisráðherra Svíþjóðar gegna fjórar konur nú embætti forsætisráðherra á Norðurlöndum – Andersson í Svíþjóð, Katrín Jakobsdóttir á Íslandi, Mette Frederiksen í Danmörku og Sanna Marin í Finnlandi. Jonas Gahr Støre tók við embætti forsætisráðherra í Noregi af Ernu Solberg í síðasta mánuði.
Svíþjóð Þingkosningar í Svíþjóð Tengdar fréttir Tilnefnir Andersson á nýjan leik Forseti sænska þingsins hefur aftur tilnefnt Magdalenu Andersson, formann sænskra Jafnaðarmanna, sem nýjan forsætisráðherra landsins. Atkvæðagreiðslan mun fara fram í sænska þinginu næsta mánudag. 25. nóvember 2021 14:41 Andersson segir af sér eftir sjö tíma í embætti Magdalena Andersson hefur sagt af sér sem forsætisráðherra Svíþjóðar eftir sjö tíma í embætti. Þetta gerir hún í kjölfar þess að Græningjar tilkynntu að þeir segi skilið við ríkisstjórn landsins eftir að fjárlagafrumvarp borgaralegu flokkanna á þingi, stjórnarandstöðuflokkanna, náði fram að ganga á þinginu í dag. 24. nóvember 2021 16:31 Fyrst kvenna til að gegna embætti forsætisráðherra í Svíþjóð Magdalena Andersson, formaður sænska Jafnaðarmannaflokksins, er nýr forsætisráðherra Svíþjóðar. Hún tekur við embættinu af Stefan Löfven og er jafnframt fyrsta konan í sögu landsins til að gegna embættinu. 24. nóvember 2021 09:07 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Straumhvörf í veðrinu Innlent Pallborðið: Vika í framboðsskil og línur að skýrast Innlent Ísraelar gera árás á Íran Erlent Hættir með Matargjafir á Akureyri með sorg í hjarta Innlent Myndband sýnir þjófana í Hamraborg hafa lítið fyrir hlutunum Innlent Helga ekki tilbúin að henda inn handklæðinu Innlent Sakaður um fjölda afbrota: Ungar stúlkur einar heima urðu skelkaðar þegar hann ruddist inn Innlent Kæra bónda eftir að 29 naut fundust dauð Innlent Segjast hafa skotið niður dýrmæta sprengjuflugvél Erlent Handtekinn í tengslum við áform um að ráða Selenskí af dögum Erlent Fleiri fréttir Hefur mátt sitja undir svívirðingum um sjálfan sig Segjast hafa skotið niður dýrmæta sprengjuflugvél Handtekinn í tengslum við áform um að ráða Selenskí af dögum Ísraelar gera árás á Íran Kennedy-fjölskyldan lýsir yfir stuðningi við Biden Bandaríkin stöðvuðu fulla aðild Palestínumanna að SÞ Hrunið í gömlu kauphöllinni heldur áfram Afsalta sjó til drykkjar í þurrki í Barcelona Eiginmaður Sturgeon ákærður fyrir fjárdrátt Mega koma til að snæða í Grindavík en aðeins í rútu Johnson í erfiðri stöðu Hafa vitneskju um mögulegan dvalarstað Íslendings sem flýr réttvísina Útsendarar Rússa sakaðir um skipulagningu árása í Þýskalandi Mikill mannskaði eftir sögulegt úrhelli í eyðimörkinni Kjarnorkuknúin drónaþyrla mun leita að lífrænum sameindum á Títan Sendi ösku í allt að þriggja kílómetra hæð Ákærður fyrir að nota slagorð SS-sveitanna á fjöldafundi Stjórnvöld í Katar að endurskoða sáttasemjarahlutverk sitt Réði lífvörð eftir árásina á bandamann Navalnís Borgarstjóri sakaður um brot gegn dóttur sinni Hæsta vindmylla heims á landi reist í Danmörku Þingforsetinn segist ekki ætla að fara fet Ísraelar sagðir búnir að ákveða að svara fyrir sig Boðflennusæfíll hrellir Kanadamenn Mannskæð loftárás Rússa í Norður-Úkraínu Toppurinn á spírunni fundinn: „Margir í sjokki og enn að ná sér“ Kóralrif fölna á heimsvísu í fjórða skiptið á þremur áratugum Eins og hálfs árs úrkoma á einum sólarhring í Dubai Ítarleg úttekt á þjónustu við börn með kynama þungur áfellisdómur Greitt fyrir aðgengi andstæðinga þungunarrofs inn á heilbrigðismiðstöðvar Sjá meira
Tilnefnir Andersson á nýjan leik Forseti sænska þingsins hefur aftur tilnefnt Magdalenu Andersson, formann sænskra Jafnaðarmanna, sem nýjan forsætisráðherra landsins. Atkvæðagreiðslan mun fara fram í sænska þinginu næsta mánudag. 25. nóvember 2021 14:41
Andersson segir af sér eftir sjö tíma í embætti Magdalena Andersson hefur sagt af sér sem forsætisráðherra Svíþjóðar eftir sjö tíma í embætti. Þetta gerir hún í kjölfar þess að Græningjar tilkynntu að þeir segi skilið við ríkisstjórn landsins eftir að fjárlagafrumvarp borgaralegu flokkanna á þingi, stjórnarandstöðuflokkanna, náði fram að ganga á þinginu í dag. 24. nóvember 2021 16:31
Fyrst kvenna til að gegna embætti forsætisráðherra í Svíþjóð Magdalena Andersson, formaður sænska Jafnaðarmannaflokksins, er nýr forsætisráðherra Svíþjóðar. Hún tekur við embættinu af Stefan Löfven og er jafnframt fyrsta konan í sögu landsins til að gegna embættinu. 24. nóvember 2021 09:07