Frekari liðsauki til Búdapest

Garðbæingurinn Dagur Gautason er á leiðinni til Búdapest.
Garðbæingurinn Dagur Gautason er á leiðinni til Búdapest. mbl.is/Kristinn Magnússon

Dagur Gautason, leikmaður Stjörnunnar í úrvalsdeild karla í handknattleik, hefur verið kallaður inn í íslenska landsliðshópinn sem tekur þátt í Evrópumótinu sem fram fer í Ungverjalandi og Slóvakíu. Þetta kom fram í fréttatilkynningu sem HSÍ  sendi frá sér í dag.

Alls hafa ellefu leikmenn íslenska liðsins greinst með kórónuveiruna síðan á miðvikudaginn í síðustu viku og hafa einungis fjórtán leikmenn verið á skýrslu hjá liðinu í síðustu leikjum.

„Guðmundur Guðmundsson hefur ákveðið að kalla þá Dag Gautason leikmann Stjörnunnar og Bjarni Ófeigur Valdimarsson leikmann FK Skövde HK til móts við landsliðið,“ segir í tilkynningu HSÍ.

„Dagur og Bjarni koma til Búdapest í kvöld og í fyrramálið,“ segir ennfremur í tilkynningunni en Ísland mætir Svartfjallandi í lokaleik sínum í milliriðli I í Búdapest á morgun og þarf á sigri að halda til þess að eiga von um sæti í undanúrslitum keppninnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert