Sagði Aubameyang að þakka fyrir að geta sofið í rúmi Sindri Sverrisson skrifar 20. nóvember 2020 17:01 Pierre-Emerick Aubameyang er klár í slaginn með Arsenal um helgina. Getty/Visionhaus
Mikel Arteta, knattspyrnustjóri Arsenal, segir að landsliðsferli Pierre-Emerick Aubameyang sé ekki lokið þó að landsliðsþjálfari Gabons hafi gefið það í skyn. Aubameyang er mættur aftur til Lundúna eftir Afríkuför sína í landsleikjahléinu og tilbúinn að mæta Leeds á sunnudaginn. Markahrókurinn birti um síðustu helgi myndir af sér og sofandi liðsfélögum úr landsliði Gabons, á flugvellinum í Gambíu, þar sem þeir biðu þess að fá að komast inn í landið. Það gekk loksins, sex klukkustundum eftir lendingu, en leikurinn fór fram um kvöldið og Gabon tapaði. Aubameyang birti myndir frá flugvellinum í Instastory. Þjálfari Gabons, Patrice Neveu, sagði eftir leik að svona nokkuð yrði til þess að Arsenal myndi ekki leyfa Aubameyang að spila fyrir landsliðið. Leikmenn á hæsta stigi íþróttarinnar ættu ekki að þurfa að sofa á flugvallargólfi. „Stundum gerist eitthvað óvænt“ Aðspurður hvort Neveu hefði rétt fyrir sér, um að Arsenal myndi meina Aubameyang að spila fyrir landsliðið sitt, svaraði Arteta: „Nei. Auðvitað var það áfall að sjá heilan leikmannahóp við svona svefnaðstæður. En ég trúi því staðfastlega að menn séu alltaf að reyna sitt besta og að landslið Gabons hafi reynt að skipuleggja hlutina með sem bestum hætti. Stundum gerist eitthvað óvænt og þetta var ákveðin reynsla.“ „Ég sagði við Auba: „Nýttu þessa reynslu. Ég er viss um að þú hefur ekki sofið á gólfinu í mörg ár, svo nýttu þetta til að sjá það næst þegar þú leggst upp í rúm hvað það er þægilegt og gott og hve heppinn þú ert“,“ hefur enska blaðið Metro eftir Arteta. „Það er ekki hægt að breyta þessu eða spóla til baka svo það þarf að horfa fram á við. Ég vona að þetta gerist ekki aftur og að leikmenn okkar fái þá hvíld sem þeir þurfa,“ sagði Arteta.
Enski boltinn Tengdar fréttir Arteta gerði eins og Wenger og sagðist ekki hafa séð slagsmálin Mikel Arteta greip til gamals bragðs úr smiðju Arsenes Wenger er hann var spurður um slagsmál á æfingu Arsenal. 20. nóvember 2020 14:30 Mest lesið Tveir nítján ára handteknir fyrir nauðgun Enski boltinn Bergrós aftur best í heimi og fjögur frá Íslandi í undanúrslitum Sport Sjáðu mömmu Remy Martin syngja og dansa á hliðarlínunni Körfubolti Slapp við rautt þrátt fyrir fólskubrot: „Einhver þarf að útskýra þetta fyrir mér“ Enski boltinn Infantino: Stórkostlegt að hitta Þorvald Fótbolti Danijel Djuric á markið: Annars hefði ég aldrei fagnað svona Íslenski boltinn Liverpool hefur viðræður við Arne Slot Enski boltinn „Það er ekkert plan B“ Handbolti Ungir strákar þarna úti sem gætu spilað á HM á Íslandi Handbolti „Ég hefði bara átt að taka leikhlé“ Handbolti Fleiri fréttir Í beinni: Man. Utd. - Sheffield Utd. | Botnliðið mætir á Old Trafford Í beinni: Everton - Liverpool | Bítlaborgarslagur Liverpool hefur viðræður við Arne Slot Slapp við rautt þrátt fyrir fólskubrot: „Einhver þarf að útskýra þetta fyrir mér“ Tveir nítján ára handteknir fyrir nauðgun Fyllir Slot upp í tómarúmið sem Klopp skilur eftir sig? Segir sína menn ekki verðskulda Evrópusæti Segir sitt hlutverk að fá leikmenn til að trúa á verkefnið Skytturnar tylltu sér á toppinn með stæl Skorar tíðast allra en missir enn af leikjum Liverpool Segir viðbrögð fjölmiðla til skammar Højlund kvartaði yfir því að Fernandes gæfi ekki nógu oft á sig Heldur tryggð við Aston Villa þrátt fyrir áhuga annarra liða „Sýna að þetta sé Chelsea FC en ekki Cole Palmer FC“ Fannst Pogba týna sjálfum sér eftir að hann varð heimsmeistari Segir að Ten Hag sé búinn að vera Forest vill hljóðupptöku dómaraherbergins frá leiknum gegn Everton Var sagður taka við Liverpool en hefur rætt við West Ham „Kem því ekki í orð hversu léleg frammistaðan var“ Hjólaði alla leið frá Mongólíu til að sjá United spila Antony gagnrýndur fyrir fagnið „Úrslitin kostuðu Ten Hag starfið“ Ratcliffe hljóp maraþon og dreif sig svo á Wembley Ásaka dómara um óheilindi og hlutdrægni „Hefði hann klippt táneglurnar værum við ekki að ræða þessa vítaspyrnukeppni“ B-deildarliðið hársbreidd frá því að fara alla leið Liverpool jafnar efsta sætið að stigum Palace menn fóru mjög illa með West Ham Everton vann og er nú fimm stigum frá fallsæti Sá sem bjargaði starfi Sir Alex gæti ýtt Ten Hag nær dyrunum Sjá meira
Arteta gerði eins og Wenger og sagðist ekki hafa séð slagsmálin Mikel Arteta greip til gamals bragðs úr smiðju Arsenes Wenger er hann var spurður um slagsmál á æfingu Arsenal. 20. nóvember 2020 14:30