Páll blæs á sögusagnir þess efnis að hann sé arftaki Davíðs Jakob Bjarnar skrifar 16. apríl 2021 10:33 Páll segist þurfa að standa í rökræðum við fólk á þinginu sem telur sig vita að hann sé á leið í ritstjórastól Moggans. En það hefur enginn hringt. vísir/vilhelm Páll Magnússon alþingismaður þvertekur fyrir það að hann sé á leið í ritstjórastól Morgunblaðsins.
Páll var gestur Bítisins í morgun þar sem hann gerði upp feril sinn á þinginu en eins og fram hefur komið hefur hann tilkynnt um að hann ætli ekki að gefa kost á sér fyrir komandi alþingiskosningar. Strax í kjölfarið komu fram kenningar þess efnis að ástæðan hlyti að vera sú að honum hafi verið lofað ritstjórastóli uppi í Hádegismóum hvar Morgunblaðið hefur bækistöðvar sínar. Páll hefur mikla reynslu úr fjölmiðlum sem spannar á fjórða áratug. Var hann meðal annars bæði fréttastjóri Stöðvar 2 og Bylgjunnar og síðar útvarpsstjóri. Davíð Oddsson ritstjóri hjá Morgunblaðinu er orðinn 73 ára gamall og þó ern sé hlýtur hann að vera farinn að líta til þess að setjast í helgan stein. Og meðritstjóri hans og framkvæmdastjóri blaðsins jafnframt, Haraldur Johannessen, mun vart sjá út úr augum vegna álags. Þarna hlyti röskur Páll að geta lagt gjörva hönd á plóg, vildu ýmsir meina sem rýndu í þessi spil. Páll var spurður út í þetta í útvarpsþættinum, hvað hann væri að fara að gera og hvort þetta væri rétt, sem sagan segði? „Neineinei, þessi saga er svo lífsseig að ég þarf að standa í rökræðum niðri í þingi út af þessu. Þar sem fólk telur sig vita. Það hefur bara enginn hringt. En þá er sagt: Ég veit nú allt um þetta,“ sagði Páll og taldi þetta af og frá.
Fjölmiðlar Alþingi Vistaskipti Bítið Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Ók blindfullur við Grímsvötn og hótaði að drepa alla Innlent Langt í að þeir nái sér að fullu Innlent Vopnuð rán tíðari en fólk gerir sér grein fyrir Innlent Óttast að saga slökkviliða á Íslandi glatist Innlent Tveir látnir eftir að bíll hafnaði í sjónum við Stokkhólm Erlent Á ofsahraða undir áhrifum fíkniefna Innlent Karlremba sé komin í tísku Innlent Fengu aðstoð sérsveitar og Gæslunnar við handtöku við Grímsvötn Innlent Arnar Þór vantaði sex meðmæli upp á Innlent Efnahagsstefnan sé að ýta fólki í verðtryggð lán Innlent Fleiri fréttir Vopnuð rán tíðari en fólk gerir sér grein fyrir Óttast að saga slökkviliða á Íslandi glatist Plokkdagurinn mikli haldinn hátíðlegur um land allt Á ofsahraða undir áhrifum fíkniefna Efnahagsstefnan sé að ýta fólki í verðtryggð lán Ók blindfullur við Grímsvötn og hótaði að drepa alla Langt í að þeir nái sér að fullu Lögregla með eftirför í Vogahverfi Íslandsferðin sem breyttist í martröð Fundu hræ fimm hvolpa í Mosfellsbæ Fengu aðstoð sérsveitar og Gæslunnar við handtöku við Grímsvötn Sigurvin dró smábát í land Vill að fréttastofa RÚV biðji Maríu Sigrúnu afsökunar Lögreglan lofar góðu vegaeftirliti á Suðurlandi í sumar Landskjörsstjórn tilkynnir á morgun hvaða listar eru gildir Mögulega að hægjast á landrisi í Svartsengi Karlremba sé komin í tísku Voru með stæla og neituðu að fara upp úr fyrr en löggan mætti Arnar Þór vantaði sex meðmæli upp á Sprengisandur: Peningastefna, ESB og lagareldi Lögregla kölluð út vegna ungmenna til leiðinda í sundlaug Svakalegt að sjá fylgisaukningu Höllu Hrundar Minni lyfjanotkun og meiri vellíðan í sérstöku heilabilunarþorpi Mennirnir tóku annan starfsmannanna hálstaki Líklegt að það styttist í brotmörk Helga lenti einnig í vandræðum Eiríkur og Ástþór fá frest til að bæta við undirskriftum Hættuástand í Grindavík og æsispennandi forsetakosningar Gefur lítið fyrir útskýringar fréttastjórans Handteknir á hlaupum eftir vopnað rán í Reykjavíkurapóteki Sjá meira