Rapp einvígi á milli íþróttalýsenda

Drakos og Vedius í þætti hjá Travis Gafford.
Drakos og Vedius í þætti hjá Travis Gafford. Skjáskot/YouTube/Travis Gafford

Myndband var birt á opinera Twitter-aðgangi evrópsku deildarkeppninnar í League of Legends þar sem þekktu lýsendurnir Vedius og Drake eru að horfa á Arcane þáttaröðina, rökræða svo um aðalpersónurnar en taka að lokum lagið og rappa fyrir áhorfendur.

Önnur þáttaröð í bígerð

Arcane þáttaröðin hefur náð gífurlegum vinsældum og kom sér á lista yfir mesta áhorfið á einungis nokkrum dögum. Nú þegar hefur Riot Games staðfest að önnur sería af Arcane muni koma út og sé í bígerð.

Mikil vinna hefur verið lögð í myndbandið sem og lagið en er það fullkomnlega í samræmi við útgefið efni frá Riot Games, sem stendur fyrir tölvuleiknum League of Legends og keppnissenunni, því fyrirtækið er vel þekkt fyrir að gefa út hágæða mynd- og skemmtiefni.

Hér að neðan má horfa á myndbandið og hlusta á lýsendurna rappa.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert