Landlæknir fer með ákvörðun Persónuverndar fyrir dóm Hólmfríður Gísladóttir skrifar 29. apríl 2024 11:28 Alma Möller landlæknir. Landlæknisembættið hefur ákveðið að krefjast þess fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur að hann ógildi ákvörðun Persónuverndar frá 27. júlí 2023 þar sem embættið var sektað um tólf milljónir króna vegna öryggisveikleika á vefnum Heilsuvera.is.
Samkvæmt tilkynningu landlæknisembættisins í fyrra uppgötvaðist öryggisveikleikinn þann 8. júní 2020 en hann náði til afmarkaðs hluta mæðraverndar og samskiptahluta á Mínum síðum á Heilsuvera.is. Á innan við klukkustund var veikleikinn staðfestur af Origo, sem rekur Heilsuveru, og vefnum lokað. Þá tók um fimm klukkustundir að laga veikleikann og koma kerfinu aftur í notkun. Persónuvernd var gert viðvart samdægurs en í úrskurði Persónuverndar, þremur árum síðar sökum Covid-19, var komist að þeirri niðurstöðu að landlæknisembættið hefði ekki tryggt öryggi upplýsinga á hluta Heilsuveru með fullnægjandi hætti. Þá sagði að starfsmenn embættisins hefðu gefið Persónuvernd misvísandi og villandi upplýsingar við meðferð málsins varðandi umfang öryggisveikleikans. Í tilkynningu landlæknisembættisins um þá ákvörðun að fá úrlausn málsins fyrir dómstólum segir að embættið telji ákvörðun Persónuverndar efnislega ranga, auk þess sem meðferð málsins sé ekki samboðin „þeim reglum sem eru til grundvallar íslensku réttarríki“. Ákvörðunin sé meðal annars til þess fallin að grafa undan öryggismenningu og persónuvernd og fæla annars ábyrga aðila frá því að tilkynna um öryggisbresti og atvik er varða öryggi upplýsingakerfa. „Embætti landlæknis gerir margvíslegar og alvarlegar athugasemdir við starfshætti og málsmeðferð Persónuverndar í málinu. Þar á meðal telur embættið að bæði form- og efnisannmarkar séu á ákvörðun Persónuverndar, forsendur ákvörðunarinnar séu rangar og að rannsókn málsins af hálfu Persónuverndar hafi verið ófullnægjandi. Að auki byggi sektarákvörðun á ólögmætum og ómálefnalegum sjónarmiðum. Þá telur embætti landlæknis mikilvægt að fá umfjöllun dómstóla um ýmis þau atriði persónuverndarlaga sem uppi eru í þessu máli og máli skipta bæði fyrir embætti landlæknis og almennt séð,“ segir í tilkynningunni. Úrskurður Persónuverndar.
Heilbrigðismál Persónuvernd Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Vísbending um að flutningaskip hafi hvolft bátnum Innlent Fólk muni ekki borga 200 þúsund fyrir „heimili sem það notar sem sumarbústað“ Innlent „Blaut tuska í andlit Félags eldri borgara í Reykjavík“ Innlent Leigan fyrir 100 fermetra hús í Grindavík 62.500 á mánuði Innlent Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Erlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Manni bjargað úr sjónum í nótt eftir að bátur hans sökk Innlent Vilja sinna Íslendingum á Spáni betur Innlent Meinleysisgrey sem séu lífríkinu afar mikilvæg Innlent Skikkar ríkislögreglustjóra til að rannsaka stjórn aðventista Innlent Fleiri fréttir Færa almannavarnastig niður á óvissustig vegna vatnslagnarinnar Fólk muni ekki borga 200 þúsund fyrir „heimili sem það notar sem sumarbústað“ Vísbending um að flutningaskip hafi hvolft bátnum Skikkar ríkislögreglustjóra til að rannsaka stjórn aðventista Sjóslys, Þórkatla og framtíð Play Kvikusöfnunin áfram stöðug Tóku niður íslenska svikasíðu með FBI Hafna tilboðum í áætlunarflug milli Reykjavíkur og Hornafjarðar Segir rangt að gjaldskylda á nagladekk sé í skoðun „Blaut tuska í andlit Félags eldri borgara í Reykjavík“ Vilja sinna Íslendingum á Spáni betur Dregið úr hrinunni við Sýlingarfell Slapp við meiðsli á höfði og hrygg Leigan fyrir 100 fermetra hús í Grindavík 62.500 á mánuði Manni bjargað úr sjónum í nótt eftir að bátur hans sökk Um 800 börn bíða eftir leikskólaplássi í Reykjavík Meinleysisgrey sem séu lífríkinu afar mikilvæg Sjö smáskjálftar við Sýlingarfell og Veðurstofan fylgist vel með „Þetta reddast“ voru fyrstu orðin sem hann lærði Lögreglan þurfi nauðsynlega auknar rannsóknarheimildir Mikill meirihluti hlynntur dánaraðstoð Fátt ef nokkuð stöðvar eldislaxinn Segir seinlæti First Water stórfurðulegt Hæstiréttur segir tíma í flugvél vera vinnutíma Vill ræða brottvísun til Nígeríu í nefnd: „Skelfileg ásýnd á þessu máli“ Gjörbreytt bílpróf en segja hvergi slegið af kröfum Fagna framfaraskrefi ráðherra en vilja afnema tilvísanakerfið Þórdís í sendinefnd til Georgíu vegna umdeildra laga Maðurinn fannst heill á húfi Hundaskítur fyrir utan kosningamiðstöð Baldurs vekur spurningar Sjá meira