Ný uppfærsla á tölvuleiknum World of Warcraft býður nú upp á fjölbreyttari útlitsstillingar á persónum sem leikmenn spila.
Leikmenn sem spila persónur af kynþáttunum Highmountain Tauren, Lightforged Dranei, Nightborne og Void Elves geta farið á hárgreiðslustofu innanleikjar og breytt útliti persóna sinna eða búið til nýjar persónur með nýjum stillingum.
Hér að neðan eru dæmi um ný útlit í boði en í tilkynningunni sjálfri má skoða fleiri myndir af nýjum útlitum og skrauti sem hægt er að notast við.