Víðir fjarverandi á fundi dagsins

Anna Birna Jensdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunarheimilisins Sóltúns, verður gestur fundarins.
Anna Birna Jensdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunarheimilisins Sóltúns, verður gestur fundarins. Ljósmynd/Lögreglan

Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og embætti landlæknis boða til upplýsingafundar fyrir fjölmiðla klukkan 14:00 í dag í Katrínartúni 2, 2. hæð.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir og Alma D. Möller landlæknir fara yfir stöðu mála varðandi framgang COVID-19 faraldursins hér á landi, ásamt Rögnvaldi Ólafssyni, aðstoðaryfirlögregluþjóni hjá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra.

Gestur fundarins verður Anna Birna Jensdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunarheimilisins Sóltúns.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert