Nagelsmann: Ég er knattspyrnuþjálfari, ekki fyrirsæta Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 29. október 2020 19:00 Nagelsmann er ekki mikið fyrir að vera í þjálfaraúlpunni á hliðarlínunni. Vincent Mignott/Getty Images
Topplið þýsku úrvalsdeildarinnar, RB Leipzig, heimsótti Old Trafford í Meistaradeild Evrópu í gærkvöld. Leipzig mætti þar Manchester United sem hefur átt erfitt uppdráttar á heimavelli til þessa á leiktíðinni en það var ekki raunin í gær. Lærisveinar Ole Gunnar Solskjær voru með tögl og haldir nær allan leikinn en það var varamaðurinn Marcus Rashford sem sökkti Þjóðverjunum með þremur mörkum á aðeins sextán mínútum. Þrátt fyrir 5-0 sigur Man United þá var klæðaburður Julian Nagelsmann – þjálfara Leipzig – til umræðu að leik loknum. Hinn 33 ára gamli Nagelsmann er talinn nokkurskonar undrabarn í þjálfun enda á þeim aldri að hann ætti frekar að vera spila heldur en að þjálfa. Nagelsmann hefur oftar en ekki vakið athygli fyrir „áhugaverðan“ klæðaburð á hliðarlínunni og gerði það svo sannarlega í gær. Honum til mikils ama. Julian Nagelsmann did not want to discuss his suit pic.twitter.com/0tQ5IKbnaZ— ESPN FC (@ESPNFC) October 29, 2020 „Ekki tala svona mikið um klæðaburð minn, ég klæðist því sem mér sýnist. Ég er knattspyrnuþjálfari, ekki fyrirsæta,“ sagði Nagelsmann í viðtali eftir leik er gefið var til kynna að engin heppni fylgdi jakkanum sem hann klæddist á Old Trafford. Klæðaburður Nagelsmann hefur ekki mikil áhrif á getu hans á hliðarlínunni enda er hann eins og áður sagði mikilsmetinn þjálfari í Evrópuboltanum. Fór Leipzig í undanúrslit Meistaradeildarinnar á síðustu leiktíð undir hans stjórn og tróna sem stendur á toppi þýsku úrvalsdeildarinnar. Hér að neðan má til að mynda sjá klæðaburð Nagelsmann í undanúrslitaleiknum gegn Paris Saint-Germain á síðustu leiktíð. Nagelsmann á hliðarlínunni í leiknum gegn PSG á síðustu leiktíð.EPA-EFE/David Ramos Það verður því gaman að sjá hverju Nagelsmann klæðist er liðin mætast í síðari leik sínum í H-riðli Meistaradeildarinnar þann 8. desember næstkomandi.
Fótbolti Meistaradeild Evrópu Mest lesið Ómar Ingi skaut Evrópumeisturunum áfram eftir vítakeppni Handbolti Bucks í sögubækurnar eftir sigurinn á Pacers Körfubolti FH fékk tvær sektir frá KSÍ Íslenski boltinn Dortmund leiðir þökk sé þrumuskoti Füllkrug Fótbolti Fengið nóg af því að vera ruslakista fyrir viðbjóð frá fólki Körfubolti Uppgjörið: ÍBV - FH 39-38 | ÍBV tryggði sér oddaleik eftir vítakastkeppni Handbolti Dagskráin í dag: Stórleikir og stórstjörnur út um allt Sport Elín Jóna færir sig á milli félaga á Jótlandi Handbolti „Féllu dómar í dag sem voru að mér fannst ansi augljósir“ Handbolti Óheflaði Eyjapeyinn Kári Kristján: „Töpum aldrei í vítakeppnum“ Handbolti Fleiri fréttir FH fékk tvær sektir frá KSÍ Dortmund leiðir þökk sé þrumuskoti Füllkrug Logi kom inn af bekknum og skoraði í stórsigri Mark dæmt af Bjarka og dramatík hjá Alexöndru Sjáðu mörkin úr stórleiknum í München Júlíus og félagar unnu frækinn bikarsigur á Rosenborg Kenndi gráðugum Kim um bæði mörkin gegn Real Madrid Lewandowski gæti verið seldur á brunaútsölu Barcelona Bellingham reyndi að taka Kane á taugum fyrir vítið Heillaóskum rigndi yfir fimmtán ára hetju Fram í skólanum „Vestri hefur verið að taka leikhlé“ Courtois ekki með Belgíu á EM Einvígið galopið eftir jafntefli í Þýskalandi „Þú veist alveg svarið við þessu“ Sextán ára og skoraði hjá Arsenal eins og Rooney forðum Víkingar bjóða Grindvíkingum í Víkina á morgun „Real Madrid lofaði mér að ég yrði arftaki Modric“ Félögin sömdu um að banna Sigurbergi að spila Tuchel fullyrti að Gnabry muni skora á móti Real Madrid í kvöld Þrír Íslendingar í liði umferðarinnar Gáttaðar á því að fyrirliði Víkings var settur á bekkinn Guy Smit sendir frá sér afsökunarbeiðni Keflavík og Aftureldingu spáð sigri í Lengjudeildunum Bara Eiður Smári og Bjargvætturinn höfðu skorað fyrir sextán ára afmælið Sjáðu ungar hetjur bjarga Fram og Stjörnunni Hundfúll og ýtti ungum KR-krökkum frá sér: „Ekki fallegt að sjá“ „Mo Salah sá sem að gekk of langt“ Valur sýndi Berglindi meiri áhuga en Breiðablik Fótboltafortíð fjölskyldunnar í sviðsljósinu í viðtali DR við Andra Lucas Manchester-liðin og Aston Villa á móti því að eyðsluþak verði sett á Sjá meira