Þetta kemur fram í tilkynningu frá Samherja. Birgir Össurarsson, sölu-og markaðsstjóri Ice Fresh Seafood, sem annast sölu afurða Samherja, segir þetta ánægjuleg tímamót.
„Við teljum skynsamlegt að merkja vöruna sem best og undirstrika þannig gæða íslenskan Landlax og íslenska Landbleikju. Síðast en ekki síst viljum við að neytendur séu vel upplýstir um uppruna vörunnar, framleiðsluhætti og fleiri mikilvæga þætti,“ segir Birgir.
„Samherji fiskeldi hefur framleitt landeldisfisk í um tvo áratugi. Allar stöðvar fyrirtækisins eru með alþjóðlegar vottanir og einungis er notast við gæða fóður í eldinu og öllum þáttum er stýrt með það að leiðarljósi að tryggja bestu mögulegu eldisaðstæður fyrir fiskinn. Sala á laxi og bleikju á kröfuhörðum alþjóðlegum mörkuðum hefur gengið vel og ég er sannfærður um að neytendur fagna þessum áherslubreytingum.“