Þingflokkur Miðflokksins skreppur verulega saman eftir kosningarnar í gær, fer úr níu þingmönnum í þrjá. Flokkurinn náði sjö mönnum á þing árið 2017 en fékk liðstyrk frá Flokki fólksins þegar Karl Gauti og Ólafur Ísleifsson skiptu yfir í kjölfar Klaustursmálsins svonefnda árið 2018.
Karl Gauti segir í samtali við Vísi að greinilegt sé að flokkurinn hafi ekki náð til kjósenda að þessu sinni þrátt fyrir að hann hafi að sínu mati barist fyrir góðum málefnum.
„Við þurfum auðvitað bara að leggjast yfir það og skoða hvað var að og hvað klikkaði. Er það eitthvað í auglýsingum eða eitthvað annað?“
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, mætti hvorki í umræðuþátt stjórnmálaleiðtoga á Sprengisandi á Stöð 2 og Bylgjunni né Ríkisútvarpinu í morgun. Hann hefur ekki gefið kost á viðtali til þessa.
Meira fylgi eftir Klaustursmálið
Klaustursmálið vakti mikla athygli og reiði á sínum tíma en þá urðu nokkrir þingmenn Miðflokksins og Flokks fólksins uppvísir af óviðeigandi ummælum um þingkonur á öldurhúsi í Reykjavík. Þeir Karl Gauti og Ólafur og voru reknir úr þingflokki Flokks fólksins í kjölfarið.
Engu að síður vill Karl Gauti ekki meina að Klaustursmálið skýri gengi Miðflokksins í kosningunum í gær. Hann bendir á að flokkurinn hafi mælst með meira fylgi fyrir ekki svo löngu síðan og enn meira fyrir tveimur árum eftir að málið kom upp.
„Þannig að það er eitthvað að kynningunni, auglýsingunum eða flækjustiginu í okkar stefnumálum, eitthvað þar,“ segir hann.
Af þingmönnunum sex úr Klaustursmálinu verða aðeins þeir Sigmundur Davíð og Karl Gauti áfram á þingi. Bergþór Ólason og Anna Kolbrún Árnadóttir náðu ekki kjöri en Gunnar Bragi Sveinsson og Ólafur Ísleifsson buðu sig ekki fram til endurkjörs.
Ná viðspyrnu
Hann segir að það verði viðbrigði að vera í þriggja manna þingflokki í stað níu áður. Auk Karls Gauta náðu Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, og Birgir Þórarinsson sæti á þingi.
„Þetta er auðvitað breytt landslag en þrátt fyrir allt erum við inni á þingi. Þá eigum við kost á því að ræða málefnin og benda á okkar málefni. Ég er auðvitað feginn því að við skulum haldast inni sem var alls ekki uppi á borðum á tímabili í gærkvöldi en smá lagaðist eftir því sem leið á nóttina. Það gefur okkur viðspyrnu til að halda áfram,“ segir Karl Gauti.
Ætlar að óska eftir skýringum á miklum sveiflum á milli talna
Karl Gauti gerir verulega athugasemdir við talningu atkvæða í Suðvesturkjördæmi í nótt. Miklar sveiflur hafi verið á milli talna. Miðflokkurinn hafi þar verið með um eitt prósent atkvæða í sumum tölum en endaði á að fá 4,5%.
„Þetta er ekki eðlileg talning. Það hefur eitthvað misfarist þarna og ég mun óska eftir skýringum á því hvað hefur gerst,“ segir hann.
Vill hann meina að augljóslega hafi atkvæðabúnt með atkvæðum Miðflokksins týnst eða gleymst á meðan á talningunni stóð.
„Þetta veldur manni áhyggjum yfir hvernig framkvæmd talningar er,“ segir Karl Gauti sem efast þó ekki um lokaniðurstöðurnar.