Ungverska ungstirnið sem Íslendingar mæta með draumamark í gær Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 22. október 2020 16:00 Dominik Szoboszlai fagnar glæsilegu marki sínu fyrir Red Bull Salzburg gegn Lokomotiv Moskvu í Meistaradeild Evrópu í gær. getty/Michael Molzar
Dominik Szoboszlai skoraði stórglæsilegt mark þegar Red Bull Salzburg gerði 2-2 jafntefli við Lokomotiv Moskvu í A-riðli Meistaradeildar Evrópu í gær. Hinn nítján ára Szoboszlai er ungverskur landsliðsmaður og mætir Íslendingum í umspili um sæti á EM í Búdapest 12. nóvember. Szoboszlai er sparkviss með afbrigðum eins og hann sýndi í leiknum í gær. Á lokamínútu fyrri hálfleiks fékk hann boltann á vítateigshorninu vinstra megin eftir hornspyrnu. Szoboszlai beið ekki boðanna, lét vaða og boltinn fór í slána og inn. Hann jafnaði þarna metin í 1-1. Mörkin úr leiknum má sjá hér fyrir neðan. Klippa: Salzburg 2-2 Lokomotiv Moskva Szoboszlai er mikill aukaspyrnusérfræðingur eins og hann sýndi í leik Ungverjalands og Tyrklands í Þjóðadeildinni í síðasta mánuði. Hann skoraði þá með mögnuðu skoti í stöng og inn af löngu færi. ! This free-kick by Hungary wonderkid Dominik Szoboszlai = #NationsLeague | @MLSZhivatalos pic.twitter.com/23BKazKGvA— UEFA EURO 2020 (@EURO2020) September 6, 2020 Szoboszlai fór til Austurríkis 2016 þegar hann gekk í raðir Liefering. Eftir tvö ár þar fór hann til Salzburg þar sem hann hefur þrisvar sinnum orðið austurrískur meistari. Á síðasta tímabili var Szoboszlai valinn besti leikmaður austurrísku úrvalsdeildarinnar. Hann skoraði þá níu mörk og lagði upp fjórtán í 27 deildarleikjum. Szoboszlai hefur leikið tíu leiki fyrir ungverska A-landsliðið og skorað tvö mörk, bæði með skotum beint úr aukaspyrnum.
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Sara hrundi niður listann eftir leiðréttingar Sport Davíð Tómasi bárust ljót skilaboð eftir leik: „Fokking mongolitið þitt“ Körfubolti Rashford: Nú er nóg komið Enski boltinn Virk sprengja úr seinni heimsstyrjöldinni undir leikvangi Mainz Fótbolti „Krakkarnir í stúkunni eru byrjaðir að taka upp á þessu líka“ Körfubolti Sjáðu og heyrðu sjónvarpslýsanda sturlast yfir Brynjólfi Fótbolti Littler stríddi stuðningsmönnum Liverpool Sport Sjáðu ótrúlegan flautuþrist Þorvaldar Orra Körfubolti Leikmaður Newcastle tók meirapróf Enski boltinn „Tel mjög vafasamt að klukkan hafi verið sett af stað á réttum tíma“ Körfubolti Fleiri fréttir Íslendingarnir áberandi í jafntefli Í beinni: Real Sociedad - Real Madrid | Ná fjórtán stiga forskoti með sigri Fékk prófessorsnafnið frá Gaupa: „Ég er bölvaður nörd“ Marta hættir í landsliðinu eftir Ólympíuleikana Víkingar fengu góða sumargjöf Leikmaður Newcastle tók meirapróf Amnesty segir að FIFA rúlli út rauða dreglinum fyrir Sádana Stórleikur í Garðabænum og Fram mætir þriðju deildarliðinu Rashford: Nú er nóg komið Sjáðu og heyrðu sjónvarpslýsanda sturlast yfir Brynjólfi Berglind Björg komin með félagaskipti í Val Finnst De Bruyne betri en Gerrard og Lampard Slot staðfestir að hann vilji taka við Liverpool Virk sprengja úr seinni heimsstyrjöldinni undir leikvangi Mainz „Frábær úrslit fyrir okkur og félagið“ „Fyrst og fremst var þetta vinnuframlag frá öllum“ Ivan Toney á innkaupalista Manchester United Júlíus Magnússon með sitt fyrsta mark fyrir Fredrikstad Magnaðasta mark sumarsins á fyrsta degi þess? Einstefna í Brighton Uppgjörið: Keflavík - Breiðablik 2-1| Sami Kamel afgreiddi Blika KR fékk ungan Svía fyrir gluggalok Bikarmeistararnir örugglega áfram eftir smá hikst 350 þúsund krónur i sektir og tveir fá þriggja mánaða bann Tíu Grindvíkingar unnu í Eyjum Æfði með FH en fékk ekki samning og skipti síðan í Hauka Bikarmeistararnir bjóða frítt á völlinn „Hún á eftir að fá að skína aðeins meira“ Hamrén hafnaði 388 milljóna samningi Krókur Liverpool á móti bragði Sjá meira