Segir almannahagsmunum Hafnfirðinga fórnað Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 22. október 2020 23:22 Sigurður Þ. Ragnarsson, bæjarstjórnarfulltrúi Miðflokksins í Hafnarfirði. Vísir/Vilhelm
Sigurður Þ. Ragnarsson, fulltrúi Miðflokksins í bæjarstjórn Hafnarfjarðar, segir almannahagsmunum Hafnfirðinga hafa verið fórnað þegar bæjarráðið samþykkti í morgun tillögu meirihluta bæjarstjórnarinnar um að taka tilboði félags lífeyrissjóða um kaup á 15,42 prósenta hlut bæjarins í HS Veitum. „Þetta er svartur dagur í dag þegar meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks ákváðu að selja hlut Hafnarfjarðar í orkuveitufyrirtækinu HS-Veitum,“ skrifar Sigurður í færslu sem hann birti á Facebook. Hann bendir á að hlutur Hafnarfjarðarbæjar í HS Veitum hafi frá árinu 2013 hækkað um 2 milljarða. Hafnarfjarðarbær hefur samþykkt að selja 15,42 prósenta hlut sinn í HS Veitum. mynd/ stefán Tilboðið sem samþykkt var hljóðar upp á 3,5 milljarða króna en endanleg ákvörðun um söluna verður tekin á fundi bæjarstjórnar í næstu viku. „Staða stærri sveitarfélaga landsins er skelfileg. Úr því verður að bæta með úrræðum sem ríkisvaldið getur ekki hundsað því 90% verkefna sveitarfélaga er lögboðin þjónusta. Eftir þessum aðgerðum vill meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks ekki bíða heldur drífa í að selja gullgæsina sem margfaldað hefur verðgildi sitt,“ skrifar Sigurður. Meirihluti bæjarstjórnar ákvað í vor að hefja undirbúning að sölu hlutarins í HS Veitum sem vakið hefur mikla gagnrýni minnihlutans. Þá hefur hópur Hafnfirðinga staðið fyrir því undanfarna mánuði að safna undirskriftum og krefja bæjarstjórnina að setja, þá fyrirhugaða sölu, í íbúakosningu en bar það ekki árangur sem erfiði. Meirihlutinn hefur í umræðu um söluna bent til slæmrar fjárhagsstöðu bæjarins vegna kórónuveirufaraldursins. Segir meðal annars í fundargerð bæjarráðs frá því í morgun að salan dragi verulega úr lánsfjárþörf bæjarins og þar með afborgunum og vaxtagreiðslum til framtíðar. „Framundan eru blómatímar hjá HS-veitum s.s. rafvæðing hafnanna, fiskeldi og fleira sem gera mun verðmæti hlutabréfa HS-veitna enn meira. Fram hjá þessum hagsmunum vill meirihlutinn í Hafnarfirði horfa,“ skrifar Sigurður. „Þetta mun á endanum hækka verð til neytenda þótt þröngur rammi sé til þess nú en hingað til hefur það ekki þvælst fyrir löggjafarvaldinu að breyta lögum, enda lög mannanna verk. Skammtímasjónarmið ráða hér því algjörlega ferðinni hjá meirihlutanum.“
Hafnarfjörður Orkumál Tengdar fréttir Ég myndi hlæja ef þetta væri ekki svona sorglegt Nýlega birtust fréttir af áhuga Samherja á fiskeldi í Helguvík, verkefni sem mun auka gríðarlega framtíðartekjumöguleika HS Veitna. Rafvæðing hafna og skipaflotans er einnig risaverkefni sem mun auka framtíðartekjumöguleika HS Veitna. 22. október 2020 14:00 Vísar á bug fullyrðingum um baktjaldamakk vegna fyrirhugaðrar sölu á hlut í HS Veitum Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarstjóri Hafnarfjarðar, vísar á bug fullyrðingu Samtaka um íbúalýðræði um að baktjaldamakk hafi átt sér stað vegna fyrirhugaðrar sölu á 15,42 prósenta eignarhlut Hafnarfjarðarbæjar í HS Veitum. 6. júlí 2020 13:48 Segir skammvinnan gróða fólginn í sölu á hlut Hafnarfjarðar í HS Veitum Ábyrgðarmaður undirskriftasöfnunar um að knýja fram íbúakosningu í Hafnarfjarðarbæ vegna fyrirhugaðrar sölu á hlut bæjarins í HS Veitum segir það ekki vekja traust að meirihluti bæjarstjórnarinnar hafi hafið undirbúning á sölunni áður en samþykkt var í bæjarráði að fara í söluna. 6. júlí 2020 13:04 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Verkefnið skapi níutíu störf og meðallaunin verði um 1,4 milljón á mánuði Innlent Svona var Pallborðið með Höllu, Katrínu og Steinunni Ólínu Innlent Leiðin í vinnuna smám saman þrefaldast: „Þetta er eins og í einhverri bíómynd“ Innlent Grunaður um að hafa ráðið konu sinni bana Innlent Sjálfstæðisflokkurinn kvelji barnafólk með vettlingagjörningi Innlent Fluttur á sjúkrahús eftir að ekið var á Útlendingastofnun Innlent Össur segir Jóni Gnarr að „hætta að væla“ Innlent „Það er ástæða fyrir því að farið er í að rannsaka þetta andlát“ Innlent Biðst afsökunar á að hafa kallað skemmdarvarginn „fífl“ Innlent Halla Hrund fjórfaldar fylgi sitt á milli kannanna Innlent Fleiri fréttir Ofbeldisbrotum fjölgar á sama tíma og lögreglumönnum fækkar Landeigendur höfða mál gegn ríkinu vegna Hvammsvirkjunar Fannst hennar tími vera kominn Sakar ríkisstjórnina um að ætla að afhenda fiskeldinu firðina til eilífðar Miðflokkurinn staðfestir sig sem þriðji stærsti flokkurinn Leiðin í vinnuna smám saman þrefaldast: „Þetta er eins og í einhverri bíómynd“ Ákærð fyrir að hafa orðið syni sínum að bana Stórfjölgun ofbeldisbrota, firðir í hættu og hönnunarstuldur „Við næðum eflaust meiri árangri ef borgarstjóri myndi væla minna“ Össur segir Jóni Gnarr að „hætta að væla“ Staðfesta gæsluvarðhald tveggja sakborninga Óbreytt frumvarp þýði útrýmingu villta laxins Fluttur á sjúkrahús eftir að ekið var á Útlendingastofnun Húsfélagið má ekki klippa á tengil rafvirkjameistara Sjálfstæðisflokkurinn kvelji barnafólk með vettlingagjörningi Enn kröftugt gos úr einum gíg Börn sofi ekki úti í gosmóðunni suðvestanlands Velkomin í Verbúðina II Halla Hrund fjórfaldar fylgi sitt á milli kannanna Ákærðir fyrir þaulskipulagða skotárás gegn feðginum á aðfangadag Sextán hundruð vettlingar fyrir börnin sem bíða Verkefnið skapi níutíu störf og meðallaunin verði um 1,4 milljón á mánuði Aðstoðarrektor í Bandaríkjunum verður rektor Háskólans á Akureyri Bjarni vill taka daginn snemma Svona var Pallborðið með Höllu, Katrínu og Steinunni Ólínu Freista þess að halda veitingamanninum bak við lás og slá Furðar sig á ávirðingum vegna kaupa á vínarbrauði Tvö manndráp á skömmum tíma „Það er ástæða fyrir því að farið er í að rannsaka þetta andlát“ Vill geta vísað flóttafólki úr landi innan tveggja sólarhringa Sjá meira
Ég myndi hlæja ef þetta væri ekki svona sorglegt Nýlega birtust fréttir af áhuga Samherja á fiskeldi í Helguvík, verkefni sem mun auka gríðarlega framtíðartekjumöguleika HS Veitna. Rafvæðing hafna og skipaflotans er einnig risaverkefni sem mun auka framtíðartekjumöguleika HS Veitna. 22. október 2020 14:00
Vísar á bug fullyrðingum um baktjaldamakk vegna fyrirhugaðrar sölu á hlut í HS Veitum Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarstjóri Hafnarfjarðar, vísar á bug fullyrðingu Samtaka um íbúalýðræði um að baktjaldamakk hafi átt sér stað vegna fyrirhugaðrar sölu á 15,42 prósenta eignarhlut Hafnarfjarðarbæjar í HS Veitum. 6. júlí 2020 13:48
Segir skammvinnan gróða fólginn í sölu á hlut Hafnarfjarðar í HS Veitum Ábyrgðarmaður undirskriftasöfnunar um að knýja fram íbúakosningu í Hafnarfjarðarbæ vegna fyrirhugaðrar sölu á hlut bæjarins í HS Veitum segir það ekki vekja traust að meirihluti bæjarstjórnarinnar hafi hafið undirbúning á sölunni áður en samþykkt var í bæjarráði að fara í söluna. 6. júlí 2020 13:04