„Alveg galið hvað þær takast vel á við þetta“ Sindri Sverrisson skrifar 1. júní 2023 12:00 Glódís Perla Viggósdóttir fylgist glaðbeitt með fyrirliðanum Linu Magull fá kampavínsbað eftir að meistaratitillinn var í höfn hjá Bayern München um liðna helgi. Getty/Sven Hoppe Glódís Perla Viggósdóttir nýtur þess í botn að vera með íslensku liðsfélagana Karólínu Leu Vilhjálmsdóttur og Cecilíu Rán Rúnarsdóttur í Bayern München. Hún segir ekki mega vanmeta þeirra þátt í meistaratitlinum sem liðið fagnaði á sunnudaginn. „
Þær eru algjörir snillingar, báðar tvær. Ótrúlega duglegar,“ segir Glódís um þær Karólínu og Cecilíu sem jafnframt eru liðsfélagar hennar í íslenska landsliðinu. Glódís lék hverja einustu mínútu á meistaratímabili Bayern í Þýskalandi í vetur. Hún er reynslumest íslenska tríósins, 27 ára gömul, og hefur unnið sig inn í mikið leiðtogahlutverk hjá þessu stórliði. Karólína, sem er 21 árs, og Cecilía sem er aðeins 19 ára, hafa hins vegar spilað mun minna. Karólína var fyrst þeirra til að koma til Bayern, í ársbyrjun 2021, en hún spilaði sjö deildarleiki í vetur, alla sem varamaður. Cecilía varði mark varaliðs Bayern í næstefstu deild og var stöku sinnum á varamannabekk aðalliðsins. Landsliðskonurnar Glódís Perla Viggósdóttir, Cecilía Rán Rúnarsdóttir og Karólína Lea Vilhjálmsdóttir virðast ná einkar vel saman í München.Getty/Christian Hofer „Þær hafa kannski ekki fengið þær mínútur sem þær hefðu viljað en það er alveg galið hvað þær takast vel á við þetta. Sterkar andlega. Ég er ótrúlega stolt af þeim eftir þetta ár, og þær eiga hundrað prósent í þessum titli líka, þó að þær hafi ekki spilað eins mikið og þær hefðu viljað. Þær hafa alltaf gefið hundrað prósent fyrir liðið, og það er líka ótrúlega gaman að hafa þær utan fótboltans og geta verið saman. Talað íslensku,“ segir Glódís, eða „mamma Gló“ eins og hún hefur verið kölluð: „Svo er það alltaf sagt en þær hugsa alveg jafnmikið um mig,“ segir Glódís í viðtali við Svövu Kristínu Gretarsdóttur. Klippa: Glódís um Karólínu og Cecilíu Hún tekur undir það að Karólína og Cecilía séu í góðum málum þrátt fyrir að spila minna en þær hefðu ef til vill óskað: „Þær eru búnar að vera að æfa gríðarlega vel undanfarna mánuði og það hefði verið gaman að fá að sjá þær spila meira. En þetta er frábært æfingaumhverfi og þær eru að læra gríðarlega mikið, og styrkjast klárlega af þessu. Þetta er auðvitað ákveðið mótlæti líka, sem styrkir mann á endanum. Ég veit að þær munu læra helling af þessu og þetta mun hjálpa þeim á þeirra ferli í framtíðinni.“
Þýski boltinn Tengdar fréttir Dreymir um að vinna Meistaradeildina og er ekki á förum frá Bayern „Ég vil bara vinna meistaradeildina“, segir Glódís Perla Viggósdóttir sem fagnaði á dögunum þýska meistaratitlinum með liði sínu Bayern München. 31. maí 2023 07:00 Mest lesið Þjálfari Orra Steins sáttur: Hann hefur haldið kjafti Fótbolti Þurfti að eyða níu og hálfum tíma í leigubíl til að komast í burtu Sport Ákærður fyrir að slá barn sitt með blautu handklæði Sport Hrósar Alberti en Inter þarf að safna fyrir honum Fótbolti Landsliðsmaður blandar sér í umræðuna um umdeilda sigurkörfu Njarðvíkinga Körfubolti Saman á ný eftir súrrealískan dag: „Við erum eins og lím við hvorn annan“ Íslenski boltinn Áfall fyrir Vestra: Eiður Aron brotinn og lengi frá Íslenski boltinn Liðsfélagarnir í sumarfríi en hann að vinna tólf tíma á dag á Íslandi Körfubolti Fyrstir áfram en þjálfarinn meiddist alvarlega þegar leikmaður hans lenti á honum Körfubolti Valsmenn spila fyrri leikinn á heimavelli Handbolti Fleiri fréttir Thiago Silva hættir hjá Chelsea en vonast til að synirnir spili þar áfram „Nú verður Edda brjáluð þegar ég hitti hana næst“ Mikil virðing fyrir Orra: Hárið stundum flækt en alltaf bros á vör Áfall fyrir Vestra: Eiður Aron brotinn og lengi frá Fyrstir í sautján ár til að vinna fjóra fyrstu leikina tvö ár í röð Tvær skráðar með sama númer á skýrslu og sú rétta fékk ekki markið Saman á ný eftir súrrealískan dag: „Við erum eins og lím við hvorn annan“ Sjáðu dramatíkina í fyrsta grasleiknum á KR-vellinum og öll hin mörkin Hrósar Alberti en Inter þarf að safna fyrir honum Þjálfari Orra Steins sáttur: Hann hefur haldið kjafti Hundraðasti sigur Arteta kom gegn erkifjendunum: „Stoltur af leikmönnunum“ Hetjan Orri Steinn eftir þrennuna: Besta tilfinning í heimi „Mér leið eins og ég væri í Keanu Reeves mynd“ „Röng ákvörðun af minni hálfu og ég tek fulla ábyrgð“ „Ekki boðlegt á þessu getustigi“ Uppgjör og viðtöl: KR - Breiðablik 2-3 | Blikar sóttu þrjú stig á grasinu í Vesturbænum Fowler hjálpaði Man City að styrkja stöðu sína á toppnum Lærisveinar Freys lifa í voninni „Veit ekki af hverju ég ætti að vera að láta mig detta“ Abraham bjargaði stigi sem gæti skipt Rómverja sköpum Uppgjör: Víkingur - KA 4-2 | Ekkert fær meistarana stöðvað Þrenna Orra Steins hélt titilvonum FCK á lífi Meistarar Man City halda í við topplið Arsenal Davíð Smári: Ekki okkar besta frammistaða Uppgjör og viðtöl: ÍA-FH 1-2 | FH-ingar sóttu sigur á Skagann „Björn Daníel sagði mér að skjóta“ Lyon í úrslit Meistaradeildar Evrópu Uppgjör og viðtöl: Vestri - HK 1-0 | Benedikt tryggði Vestra annan sigurinn í röð Arnór Ingvi skoraði það sem reyndist sigurmarkið Bournemouth fór illa með Brighton Sjá meira
Dreymir um að vinna Meistaradeildina og er ekki á förum frá Bayern „Ég vil bara vinna meistaradeildina“, segir Glódís Perla Viggósdóttir sem fagnaði á dögunum þýska meistaratitlinum með liði sínu Bayern München. 31. maí 2023 07:00