Samþykktu prófkjör fyrir Framsókn í Suðurkjördæmi

Selfoss í flugsýn Kosið verður um sex efstu sætin á …
Selfoss í flugsýn Kosið verður um sex efstu sætin á lista Framsóknar í Suðurkjördæmi. mbl.is/Sigurður Bogi

Tuttugasta kjördæmisþing Kjördæmissambands Framsóknarfélaganna í Suðurkjördæmi (KSFS) var haldið á fjarfundi fimmtudaginn 22. október.

Skráðir fulltrúar í þinginu voru rúmlega hundrað og fór þingið vel fram við óvenjulegar aðstæður, að því er fram kemur í tilkynningu frá sambandinu.

Á þinginu var tillaga stjórnar um að lokað prófkjör verði haldið til að velja á lista Framsóknarflokksins í Suðurkjördæmi fyrir næstu alþingiskosningar samþykkt með 78% atkvæða.

„Kosið verður um sex efstu sæti listans í Suðurkjördæmi samkvæmt reglum flokksins þar um. Kjördagur verður laugardagurinn 10. apríl 2021 og rétt til atkvæðagreiðslu eiga flokksbundnir framsóknarmenn sem eiga lögheimili í kjördæminu 30 dögum fyrir prófkjörsdag,“ segir í tilkynningu.

Reynt að kjósa með rafrænum hætti

Á þinginu var jafnframt samþykkt tillaga frá Jóni Gautasyni formanni Guðna, félags ungra Framsóknarmanna í Árnes- og Rangárvallasýslu, um að leitað yrði leiða til að hægt verði að kjósa með rafrænum hætti í prófkjörinu.

Björn Harðarson var endurkjörinn fomaður KSFS á þinginu en auku hans skipa stjórn þau Magnea Herborg Björnsdóttir, Gunnlaugur Hreinsson, Gissur Jónsson, Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir, Kristján Sigurður Guðnason og Guðrún Sigríður Briem.

Í kjörstjórn KSFS fyrir prófkjörið voru kjörin Magnea Herborg Björnsdóttir formaður, Karl Pálmason, Reynir Arnarson, Sigrún Þórarinsdóttir, Friðrik Björnsson, Gissur Jónsson og Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert