Körfubolti

Portúgalskur landsliðsmaður í Val

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Finni Frey er ætlað að skila Íslandsmeistaratitli að Hlíðarenda.
Finni Frey er ætlað að skila Íslandsmeistaratitli að Hlíðarenda. Vísir/Vilhelm

Portúgalski körfuknattleiksmaðurinn Miguel Cardoso er genginn til liðs við Val og mun leika með liðinu í Dominos deildinni í vetur.

Miguel er 27 ára gamall og lék síðast með Almansa á Spáni en hann hefur einnig leikið í Frakklandi auk heimalandsins þar sem hann ólst upp hjá Porto en hefur leikið fyrir Benfica og Vitoria í efstu deild Portúgals.

Í tilkynningu Vals segir að hann leiki stöðu leikstjórnanda en Miguel á 12 landsleiki að baki fyrir Portúgal. Nokkrir þeirra gegn Íslandi.

Hann er væntanlegur til landsins á næstu dögum en stefnt er að því að hefja leik á ný í Dominos deildinni þann 3.nóvember næstkomandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×