Frábær sigur KA/Þórs í fyrsta Evrópuleiknum

Unnur Ómarsdóttir átti stórleik fyrir Þór/KA í dag.
Unnur Ómarsdóttir átti stórleik fyrir Þór/KA í dag. Ljósmynd/Þórir Tryggvason

KA/Þór vann sterkan 26:22 sigur gegn Istogu frá Kósóvó í fyrri leik liðanna í 1. umferð Evrópubikarsins í handknattleik kvenna í Istog þar í landi í dag. Um var að ræða fyrsta Evrópuleik norðankvenna í sögu félagsins.

Norðankonur fóru bölvanlega af stað og voru 1:4 undir eftir tíu mínútna leik.

Liðið vann sig þó mjög vel inn í leikinn í kjölfarið, skoraði næstu fjögur mörk og kom sér þannig í 5:4 forystu.

Jafnræði var með liðunum það sem eftir lifði fyrri hálfleiks þar sem liðin skiptust á að ná eins marks forystu.

Heimakonur í Istogu leiddu með einu marki, 11:12, í leikhléi.

Í síðari hálfleik var áfram allt í járnum. KA/Þór sneri taflinu við snemma í honum og komst mest tveimur mörkum yfir, 18:16.

Istogu gáfust ekki upp og jöfnuðu metin í 18:18 og skiptust liðin áfram á að ná eins marks forystu.

Undir lokin, efit að Istogu komst í 21:22, tókst norðankonum hins vegar að sigla vel fram úr með því að skora síðustu fimm mörk leiksins og höfðu að lokum frábæran fjögurra marka sigur, 26:22.

Unnur Ómarsdóttir var markahæst í liði KA/Þórs í dag með átta mörk. Þar á eftir var Aldís Ásta Heimisdóttir með fimm mörk.

Liðin mætast aftur strax á morgun í síðari leik liðanna í keppninni. Sá leikur er skráður sem heimaleikur KA/Þórs en fer þó líkt og leikurinn í dag, sem var skráður sem heimaleikur Istogu, fram í Istog í Kósóvó.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert