Ný ríkisstjórn Grænlands með nauman meirihluta Samúel Karl Ólason skrifar 17. apríl 2021 08:52 Múte B. Egede, nýr forsætisráðherra Grænlands. EPA/Christian Klindt Soelbeck Hinn 34 ára gamli Múte B. Egede, er yngsti forsætisráðherra Grænlands. Hann leiðir nýja ríkisstjórn landsins sem opinberuð var í gær. Egede er formaður Inuit Ataqatigiit (IA) en flokkurinn vann mikinn sigur í kosningunum sem haldnar voru á Grænlandi í byrjun mánaðarins.
IA og flokkurinn Naleraq mynduðu ríkisstjórn með nauman meirihluta á þingi eða sextán þingmenn af 31. Flokkurinn Atassut mun þó styðja ríkisstjórn landsins. Áður höfðu bæði Siumut og Demókratar gengið frá samningaborðinu. Sjá einnig: Siumut gengur frá samningsborðinu Forsvarsmenn Atassut vildu ekki vera beinir aðilar að ríkisstjórninni því þeir vilja ekki sjálfstæði frá Danmörku, eins og hinir flokkarnir tveir. Við kynningu ríkisstjórnarinnar í gær sagði Egede að samstarfsflokkana hafa verið sameinaða í stjórnarandstöðu undanfarin ár og forsvarsmenn þeirra þekki hvorn annan vel. Lítið sé um deilumál þeirra á milli og markmiðið sé að skapa stöðugleika til næstu fjögurra ára. Haft er eftir honum á vef Sermitsiaq að forsvarsmenn flokkanna hafi heitið því að leggja þau deilumál sem séu til staðar til hliðar og einbeita sér að því að stjórna saman næstu fjögur ár. Í frétt DR segir að Egede hafi einnig sagst ætla að leggja áherslu á að draga úr ójöfnuði og að stjórnmálasáttmáli ríkisstjórnarinnar segi til um að ekkert verði af námuvinnslu sjaldgæfra málma í Hvannarfjalli, nærri bænum Narsaq. Sjá einnig: Ljóst að ekkert verður úr námuvinnslunni á Suður-Grænlandi Stjórnarflokkarnir vilja einnig útrýma heimilisleysi á Grænlandi fyrir árið 2035 og gera breytingar á skattkerfi landsins. Þá vilja þeir betrumbæta heilbrigðiskerfi Grænlands og leggja mikla áherslu á geðheilsu og meðferð gegn krabbameini.
Grænland Tengdar fréttir Egede kynnir ríkisstjórn sína síðdegis Múte B. Egede, formaður Inuit Ataqatigiit (IA), mun kynna nýjan stjórnarsáttmála og ráðherra í ríkisstjórn sinni á fundi í menningarmiðstöðinni Katuaq í Nuuk síðar í dag. 16. apríl 2021 13:08 Inuit Ataqatigiit vann mikinn sigur í grænlensku kosningunum Inuit Ataqatigiit (IA) vann mikinn sigur í grænlensku þingkosningnunum sem fram fóru í gær. Flokkurinn fékk um 37 prósent atkvæða og má því telja langlíklegast að formaðurinn, hinn 34 ára Múte B. Egede, verði næsti forsætisráðherra Grænlands og taki þar með við af Kim Kielsen sem hefur þegar viðurkennt ósigur. 7. apríl 2021 07:45 Heimsveldin og auðlindir Grænlands Lantan, gadólín og dysprósín eru málmar sem líklegast fæstir kannast við en koma sífellt meira að okkar daglegu lífum. Líkur eru á því að akkúrat núna megi finna þessa málma, og aðra, einungis sentímetra frá andliti þínu. 4. mars 2021 07:00 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Svona var Pallborðið með Baldri, Höllu Hrund og Jóni Innlent Straumhvörf í veðrinu Innlent Átta forsetaefni klár með listana Innlent Ísraelar gera árás á Íran Erlent Hættir með Matargjafir á Akureyri með sorg í hjarta Innlent Helga ekki tilbúin að henda inn handklæðinu Innlent Tók upp þegar hann nauðgaði kærustu sinni í tvígang Innlent Myndband sýnir þjófana í Hamraborg hafa lítið fyrir hlutunum Innlent Sakaður um fjölda afbrota: Ungar stúlkur einar heima urðu skelkaðar þegar hann ruddist inn Innlent Kæra bónda eftir að 29 naut fundust dauð Innlent Fleiri fréttir Fengu aðstoð Demókrata við að koma hernaðaraðstoð úr nefnd Hefur mátt sitja undir svívirðingum um sjálfan sig Segjast hafa skotið niður dýrmæta sprengjuflugvél Handtekinn í tengslum við áform um að ráða Selenskí af dögum Ísraelar gera árás á Íran Kennedy-fjölskyldan lýsir yfir stuðningi við Biden Bandaríkin stöðvuðu fulla aðild Palestínumanna að SÞ Hrunið í gömlu kauphöllinni heldur áfram Afsalta sjó til drykkjar í þurrki í Barcelona Eiginmaður Sturgeon ákærður fyrir fjárdrátt Mega koma til að snæða í Grindavík en aðeins í rútu Johnson í erfiðri stöðu Hafa vitneskju um mögulegan dvalarstað Íslendings sem flýr réttvísina Útsendarar Rússa sakaðir um skipulagningu árása í Þýskalandi Mikill mannskaði eftir sögulegt úrhelli í eyðimörkinni Kjarnorkuknúin drónaþyrla mun leita að lífrænum sameindum á Títan Sendi ösku í allt að þriggja kílómetra hæð Ákærður fyrir að nota slagorð SS-sveitanna á fjöldafundi Stjórnvöld í Katar að endurskoða sáttasemjarahlutverk sitt Réði lífvörð eftir árásina á bandamann Navalnís Borgarstjóri sakaður um brot gegn dóttur sinni Hæsta vindmylla heims á landi reist í Danmörku Þingforsetinn segist ekki ætla að fara fet Ísraelar sagðir búnir að ákveða að svara fyrir sig Boðflennusæfíll hrellir Kanadamenn Mannskæð loftárás Rússa í Norður-Úkraínu Toppurinn á spírunni fundinn: „Margir í sjokki og enn að ná sér“ Kóralrif fölna á heimsvísu í fjórða skiptið á þremur áratugum Eins og hálfs árs úrkoma á einum sólarhring í Dubai Ítarleg úttekt á þjónustu við börn með kynama þungur áfellisdómur Sjá meira
Egede kynnir ríkisstjórn sína síðdegis Múte B. Egede, formaður Inuit Ataqatigiit (IA), mun kynna nýjan stjórnarsáttmála og ráðherra í ríkisstjórn sinni á fundi í menningarmiðstöðinni Katuaq í Nuuk síðar í dag. 16. apríl 2021 13:08
Inuit Ataqatigiit vann mikinn sigur í grænlensku kosningunum Inuit Ataqatigiit (IA) vann mikinn sigur í grænlensku þingkosningnunum sem fram fóru í gær. Flokkurinn fékk um 37 prósent atkvæða og má því telja langlíklegast að formaðurinn, hinn 34 ára Múte B. Egede, verði næsti forsætisráðherra Grænlands og taki þar með við af Kim Kielsen sem hefur þegar viðurkennt ósigur. 7. apríl 2021 07:45
Heimsveldin og auðlindir Grænlands Lantan, gadólín og dysprósín eru málmar sem líklegast fæstir kannast við en koma sífellt meira að okkar daglegu lífum. Líkur eru á því að akkúrat núna megi finna þessa málma, og aðra, einungis sentímetra frá andliti þínu. 4. mars 2021 07:00