Fótbolti

Meistararnir hefja titilvörnina án tveggja lykilmanna

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Hvorki Christian Pulisic né N'Golo Kante verða í leikmannahóp Chelsea sem mætir Zenit í Meistaradeild Evrópu í kvöld.
Hvorki Christian Pulisic né N'Golo Kante verða í leikmannahóp Chelsea sem mætir Zenit í Meistaradeild Evrópu í kvöld. TF-Images/Getty Images

Enska knattspyrnufélagið Chelsea verður án Christian Pulisic og N'Golo Kante þegar að liðið hefur titilvörn sína gegn Zenit St. Petersburg í Meistaradeild Evrópu seinna í kvöld.

Báðir leikmennirnir hafa verið að glíma við ökklameiðsli og því þurfa Thomas Tuchel og lærisveinar hans að vera án þeirra í kvöld.

Þó er búist við því að Kante verði orðinn heill fyrir helgina og muni snúa aftur þegar að liðið mætir Tottenham í stórleik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni.

Hægt verður að fylgjast með viðureign Chelsea og Zenit í H-riðli Meistaradeildar Evrópu í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 2 frá klukkan 18:50.

Meistaradeild Evrópu er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Meistaradeildin er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×