Hvergi talið aftur nema mögulega í Suðurkjördæmi Vésteinn Örn Pétursson skrifar 26. september 2021 22:32 Ráðhús Reykjavíkur var einn kjörstaða í Reykjavíkurkjördæmi norður. Þar stendur ekki til að telja atkvæði aftur, líkt og gert var í norðvesturkjördæmi. Vísir/Vilhelm Ekki stendur til að telja aftur atkvæði í Alþingiskosningunum sem fram fóru í gær í neinu þeirra kjördæma þar sem endurtalning hefur ekki þegar farið fram. Beiðni um endurtalningu hefur þó komið fram í einu kjördæmi. Endurtalning í Norðvesturkjördæmi í dag skilaði breyttri niðurstöðu sem olli því að fimm jöfnunarþingmenn duttu út af þingi og aðrir komu í þeirra stað.
Í samtali við fréttastofu staðfesti Þórir Haraldsson, formaður yfirkjörstjórnar Suðurkjördæmis, að beiðni um endurtalningu í kjördæminu hafi verið lögð fram af hálfu umboðsmanna Vinstri grænna. Yfirkjörstjórn muni koma saman eftir hádegi á morgun og taka afstöðu til beiðninnar, sem var lögð fram vegna þess hve mjótt var á munum í kjördæminu. VG vantaði aðeins átta atkvæði til að ná inn kjördæmakjörnum þingmanni, á kostnað Miðflokks. Formenn yfirkjörstjórna í öðrum kjördæmum hafa í samtölum við fréttastofu upplýst um að ekki standi til að ráðast í endurtalningu að svo stöddu. Þannig sagði Gestur Jónsson í Norðausturkjördæmi að ekkert væri uppi þar sem gæfi tilefni til endurtalningar. Það sama var uppi á teningnum hjá Heimi Herbertssyni, formanni yfirkjörstjórnar í Reykjavík suður. Erla S. Árnadóttir, formaður yfirkjörstjórnar Reykjavíkurkjördæmis norður, sagði að hluti atkvæða hafi verið endurtalinn þar, og ekkert komið í ljós sem benti til að endurtelja þyrfti öll atkvæðin, sem voru yfir 35 þúsund. „Við erum með afstemmingar og aðferðir sem eigi að virka alveg til þess að þetta sé rétt. Við reyndar endurtöldum hluta af atkvæðunum,“ sagði hún. Huginn Freyr Þorsteinsson, formaður yfirkjörstjórnar í Suðvesturkjördæmi, tók í sama streng og sagði endurtalningu ekki fyrirhugaða í kjördæminu þegar fréttastofa hafði samband við hann. Gagnrýni á framkvæmd í Norðvesturkjördæmi Eftir endurtalninguna í Norðvesturkjördæmi setti Magnús Davíð Norðdahl, oddviti Pírata í kjördæminu, fram harða gagnrýni á framkvæmd kosninganna og sagði kjörgögn ekki hafa verið innsigluð frá fyrstu talningu og fram að endurtalningu. Ingi Tryggvason, formaður yfirkjörstjórnar í Norðvesturkjördæmi, hefur staðfest við fréttastofu að kjörgögn hafi ekki verið innsigluð heldur skilin eftir í læstum sal á talningarstað í einhvern tíma, eftir fyrstu talningu.
Alþingiskosningar 2021 Suðurkjördæmi Endurtalning í Norðvesturkjördæmi Tengdar fréttir „Það er ekki kosningin sem skiptir máli heldur hvernig talið er upp úr kössunum“ Helga Vala Helgadóttir, oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík norður, setti fram færslu á Twitter í kvöld með fullyrðingunni: „Það er ekki kosningin sem skiptir máli heldur hvernig talið er upp úr kössunum". Hún kveðst hafa komist að þessum sannleik í kosningaeftirliti sínu í Hvíta-Rússlandi fyrir nokkrum árum. 26. september 2021 22:02 „Hryllileg rússíbanareið“ „Þetta er hryllileg rússíbanareið sem þetta jöfnunarsætakerfi býr til,“ segir Jóhann Páll Jóhannsson, sem nú er orðinn jöfnunarþingmaður Samfylkingarinnar í Reykjavíkurkjördæmi norður, eftir að endurtalning atkvæða í Norðvesturkjördæmi breytti stöðunni varðandi jöfnunarþingmenn víða um land. 26. september 2021 19:59 Miklar breytingar á jöfnunarmönnum eftir endurtalningu í Norðvesturkjördæmi Eftir endurtalningu atkvæða í Norðvesturkjördæmi sem lauk nú síðdegis kom í ljós að atkvæði Viðreisnar höfðu verið oftalin um 9 og atkvæði Miðflokksins um 5. Þetta hrindir af stað mikilli hringekju við útdeilingu jöfnunarþingsæta. 26. september 2021 18:09 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Hann hættir bara ekki” Innlent Hollenska söngvaranum bannað að keppa í kjölfar „hótana“ Erlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Nöfn þeirra sem létust í Eyjafirði Innlent Sauð upp úr milli bónda og dýraverndunarsinna Innlent Mótmælendur gegn brottvísun hindruðu för lögreglubíls Innlent Kári tekur ábyrgð á stuðningi Víðis og Þórólfs Innlent Leita enn að þeim sem réðu barnabarninu bana Innlent Fylgi Höllu hrundi eftir kappræðurnar á RÚV Innlent Svona var Pallborðið með mökunum Innlent Fleiri fréttir Grunaðir um rán í miðbænum Aðrir frambjóðendur en efstu tveir eigi töluvert langt í land Sauð upp úr milli bónda og dýraverndunarsinna Kappræðurnar höfðu talsverð áhrif á kjósendur Forréttindi að fá að fylgja fólki í gegnum erfiðasta tíma lífsins Vilja breyta fyrirkomulagi við úthlutun plássa „Maður getur varla ímyndað sér hvað þarf að koma til“ Handtaka hælisleitenda og brottrekstur Hollands úr Eurovision Hitaveitulögn sprakk í Breiðholti Leita enn að þeim sem réðu barnabarninu bana Rigning í kortunum í kvöld „Hann hættir bara ekki” Hótaði lögregluþjónum og fjölskyldum þeirra Vilja að plássum í sumarfrístund sé útdeilt með sanngjarnari hætti Mótmælendur gegn brottvísun hindruðu för lögreglubíls Gætu verið einhverjar vikur í næsta gos Forsetakosningar á Eyrarbakka – munu sakna buffsins frá Guðna Var beðinn um upplýsingar um unga leikmenn vegna veðmáls Um fimm prósent fjölskyldusameininga vegna flóttamanna og hælisleitenda Senda á tólf ára palestínskan dreng með hrörnunarsjúkdóm úr landi Hræðsla við brottvísun, fylgi á fleygiferð og veðjað á leiki barna Ísland greiddi atkvæði með auknum rétti Palestínu hjá SÞ Auknar líkur á nýju eldgosi á næstu dögum Reyndi að drepa mann eftir að upp úr sauð á gamlárskvöld Kári tekur ábyrgð á stuðningi Víðis og Þórólfs Stefnir í tveggja turna tal Guðmundur í Afstöðu hundskammar DV Stórri flotaæfingu NATO lauk í Reykjavík „Þegar hann loksins náði að bjóða mér út missti ég hnén“ Rafmagnslaust í Vesturbænum Sjá meira
„Það er ekki kosningin sem skiptir máli heldur hvernig talið er upp úr kössunum“ Helga Vala Helgadóttir, oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík norður, setti fram færslu á Twitter í kvöld með fullyrðingunni: „Það er ekki kosningin sem skiptir máli heldur hvernig talið er upp úr kössunum". Hún kveðst hafa komist að þessum sannleik í kosningaeftirliti sínu í Hvíta-Rússlandi fyrir nokkrum árum. 26. september 2021 22:02
„Hryllileg rússíbanareið“ „Þetta er hryllileg rússíbanareið sem þetta jöfnunarsætakerfi býr til,“ segir Jóhann Páll Jóhannsson, sem nú er orðinn jöfnunarþingmaður Samfylkingarinnar í Reykjavíkurkjördæmi norður, eftir að endurtalning atkvæða í Norðvesturkjördæmi breytti stöðunni varðandi jöfnunarþingmenn víða um land. 26. september 2021 19:59
Miklar breytingar á jöfnunarmönnum eftir endurtalningu í Norðvesturkjördæmi Eftir endurtalningu atkvæða í Norðvesturkjördæmi sem lauk nú síðdegis kom í ljós að atkvæði Viðreisnar höfðu verið oftalin um 9 og atkvæði Miðflokksins um 5. Þetta hrindir af stað mikilli hringekju við útdeilingu jöfnunarþingsæta. 26. september 2021 18:09