Mótmæli við opinbera útför Shinzo Abe Atli Ísleifsson skrifar 27. september 2022 07:32 Þúsundur hafa komið saman á götum Tókýó til að mótmæla hinni opinberu útför. AP Opinber útför Shinzo Abe, fyrrverandi forsætisráðherra Japans, fer fram í höfuðborginni Tókýó í dag. Þúsundir hafa safnast sérstaklega saman til að mótmæla því að verið sé að nýta almannafé til útfararinnar og segja það geta nýst betur í önnur verkefni, en opinberar útfarir í japan eru vanalega einungis haldnar þegar meðlimir japönsku keisarafjölskyldunnar falla frá.
Hinn 67 ára Abe far skotinn til bana á kosningafundi í Nara í vesturhluta Japan í júlí síðastliðinn, fáeinum dögum fyrir kosningar í landinu. Sú ákvörðun að hafa opinbera útför fyrir Abe hefur vakið upp miklar deilur í landinu, þar sem slíkar útfarir kosta um það bil jafnvirði um 1,4 milljarða íslenskra króna í Japan. Benda skoðanakannanir til að meirihluti landsmanna sé andvígur þeirri ákvörðun forsætisráðherrans Fumio Kishida að halda opinbera útför fyrir Abe. Áætlað er að útförin kosti 1,4 milljarð króna. Þetta hefur farið illa í marga Japani.AP Áætlað er að um þúsund manns taki beinan þátt við framkvæmd útfararinnar og að um 20 þúsund lögreglumenn séu á svæðinu til að tryggja öryggi. Þá er áætlað að á fimmta þúsund sæki sjálfa athöfnina, auk þess að henni er sjónvarpað. „Þú varst maður sem hefðir átt að lifa mun lengur,“ sagði Kishida við útförina í morgun. Akie Abe, ekkja Shinzo Abe, lútir höfði.AP Mikill fjöldi erlendra leiðtoga, ýmist núverandi eða fyrrverandi, hafa komið til Japans í tilefni af útförinni, meðal annars Kamala Harris, varaforseti Bandaríkjanna, Narendra Modi, forsætisráðherra Indlands, Anthony Albanese, forstætisráðherra Ástralíu, Han Duck-soo, forsætisráðherra Suður-Kóreu og Charles Michel, forseti leiðtogaráðs Evrópusambandsins. Auk þeirra eru Christian Wulff, fyrrverandi Þýskalandsforseti, Nicolas Sarkozy, fyrrverandi forsætisráðherra Frakklands, Theresa May, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands og Matteo Renzi, fyrrverandi forsætisráðherra Ítalíu, í hópi gesta. Kamala Harris, varaforseti Bandaríkjanna, er í hópi gesta útfararinnar.AP Shinzo Abe var forsætisráðherra Japan í eitt ár frá 2006 til 2007 og svo aftur í átta ár frá 2012 til 2020. Hann sagði af sér 2020 vegna sáraristilbólgu sem hann þjáðist af, en hann er sá forsætisráðherra Japans sem hefur gegnt embætti lengst. Mikil umræða hefur skapast um tengsl Frjálslynda lýðræðisflokksins, flokks Abe, og Sameiningarkirkjunnar í landinu – kirkju sem Abe var virkur í – í kjölfar dauða forsætisráðherrans fyrrverandi. Morðingi Abe sakaði kirkjuna um að hafa svikið fjölskyldu sína og hirt ævisparnað foreldra sinna, en opinber rannsókn er nú hafin í Japan um tengsl kirkjunnar og flokksins.
Japan Morðið á Shinzo Abe Tengdar fréttir Kveikti í sér til að mótmæla ríkisútför Abe Karlmaður á áttræðisaldri kveikti í sér nærri skrifstofu forsætisráðherra Japan til að mótmæla því að Shinzo Abe, fyrrverandi forsætisráðherra landsins, fái ríkisútför. Ríkisútfarir í Japan kosta um það bil 1,4 milljarð íslenskra króna. 21. september 2022 08:07 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Svona var Pallborðið með Baldri, Höllu Hrund og Jóni Innlent Straumhvörf í veðrinu Innlent Ísraelar gera árás á Íran Erlent Átta forsetaefni klár með listana Innlent Hættir með Matargjafir á Akureyri með sorg í hjarta Innlent Helga ekki tilbúin að henda inn handklæðinu Innlent Myndband sýnir þjófana í Hamraborg hafa lítið fyrir hlutunum Innlent Sakaður um fjölda afbrota: Ungar stúlkur einar heima urðu skelkaðar þegar hann ruddist inn Innlent Kæra bónda eftir að 29 naut fundust dauð Innlent Segjast hafa skotið niður dýrmæta sprengjuflugvél Erlent Fleiri fréttir Fengu aðstoð Demókrata við að koma hernaðaraðstoð úr nefnd Hefur mátt sitja undir svívirðingum um sjálfan sig Segjast hafa skotið niður dýrmæta sprengjuflugvél Handtekinn í tengslum við áform um að ráða Selenskí af dögum Ísraelar gera árás á Íran Kennedy-fjölskyldan lýsir yfir stuðningi við Biden Bandaríkin stöðvuðu fulla aðild Palestínumanna að SÞ Hrunið í gömlu kauphöllinni heldur áfram Afsalta sjó til drykkjar í þurrki í Barcelona Eiginmaður Sturgeon ákærður fyrir fjárdrátt Mega koma til að snæða í Grindavík en aðeins í rútu Johnson í erfiðri stöðu Hafa vitneskju um mögulegan dvalarstað Íslendings sem flýr réttvísina Útsendarar Rússa sakaðir um skipulagningu árása í Þýskalandi Mikill mannskaði eftir sögulegt úrhelli í eyðimörkinni Kjarnorkuknúin drónaþyrla mun leita að lífrænum sameindum á Títan Sendi ösku í allt að þriggja kílómetra hæð Ákærður fyrir að nota slagorð SS-sveitanna á fjöldafundi Stjórnvöld í Katar að endurskoða sáttasemjarahlutverk sitt Réði lífvörð eftir árásina á bandamann Navalnís Borgarstjóri sakaður um brot gegn dóttur sinni Hæsta vindmylla heims á landi reist í Danmörku Þingforsetinn segist ekki ætla að fara fet Ísraelar sagðir búnir að ákveða að svara fyrir sig Boðflennusæfíll hrellir Kanadamenn Mannskæð loftárás Rússa í Norður-Úkraínu Toppurinn á spírunni fundinn: „Margir í sjokki og enn að ná sér“ Kóralrif fölna á heimsvísu í fjórða skiptið á þremur áratugum Eins og hálfs árs úrkoma á einum sólarhring í Dubai Ítarleg úttekt á þjónustu við börn með kynama þungur áfellisdómur Sjá meira
Kveikti í sér til að mótmæla ríkisútför Abe Karlmaður á áttræðisaldri kveikti í sér nærri skrifstofu forsætisráðherra Japan til að mótmæla því að Shinzo Abe, fyrrverandi forsætisráðherra landsins, fái ríkisútför. Ríkisútfarir í Japan kosta um það bil 1,4 milljarð íslenskra króna. 21. september 2022 08:07