Sjö stoðsendingar í naumu tapi

Elvar Már Friðriksson hefur spilað frábærlega í Litháen á tímabilinu.
Elvar Már Friðriksson hefur spilað frábærlega í Litháen á tímabilinu. Ljósmynd/LKL

Elvar Már Friðriksson gaf sjö stoðsendingar fyrir Sialiai þegar liðið tapaði naumlega á heimavelli gegn Lietkabelis í efstu deild Litháen í körfuknattleik í dag.

Leiknum lauk með 86:84-sigri Lietkabelis en Elvar skoraði sex stig í leiknum og tók eitt frákast á þeim rúmu 26 mínútum sem hann lék.

Elvar hefur verið besti leikmaður Sialiai á tímabilinu en gengi liðsins í deildinni hefur ekki verið gott.

Sialiai er í neðsta sæti deildarinnar með fimm sigra en vantar tvo sigra til þess að komast af botnsvæðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert