Viðskipti innlent

Reikni­stofa líf­eyris­sjóða tekur yfir reksturinn eftir samnings­brot rekstrar­aðila

Eiður Þór Árnason skrifar
Reiknistofa lífeyrissjóðanna er til húsa í Guðrúnatúni. Þar deilir félagið húsi með Gildi lífeyrissjóði og Eflingu sem eru meðal fjölmargra notenda Jóakims.
Reiknistofa lífeyrissjóðanna er til húsa í Guðrúnatúni. Þar deilir félagið húsi með Gildi lífeyrissjóði og Eflingu sem eru meðal fjölmargra notenda Jóakims. Vísir/Egill

Reiknistofa lífeyrissjóða (RL) hyggst taka yfir rekstur á hugbúnaðarkerfinu Jóakim. Kerfið, sem hefur verið rekið af fyrirtækinu Init, heldur utan um réttindi og iðgjöld sjóðfélaga hjá fjölda lífeyrissjóða og verkalýðsfélaga.

Er þetta gert í framhaldi þess að samningi RL og Init var sagt upp í júnímánuði. Ráðgjafafyrirtækið Ernst & Young komst að þeirri niðurstöðu í sumar að hugbúnaðarfyrirtækið hafi brotið samninga við RL með því að semja við undirverktaka án heimildar.

Greint var frá því í fréttaskýringaþættinum Kveik í apríl að Init hefði um árabil rukkað lífeyrissjóði fyrir vinnu sem efasemdir eru um að standist lög. Þá hefðu hundruð milljóna króna streymt úr félaginu til dótturfélagsins Init-reksturs, sem virtist ekki hafa annan tilgang en að fela arðgreiðslur þess.

Greint er frá yfirtökunni á rekstri Jóakims á vef RL en kerfið sjálft er í eigu Reiknistofu lífeyrissjóða. Í tilkynningunni segir að starfsfólk Init hafi verið upplýst um þessa niðurstöðu.

Vilja draga úr kostnaði

Stefnir RL að því að draga úr kostnaði við rekstur á Jóakim kerfinu til lengri tíma, meðal annars með því að einfalda rekstrarfyrirkomulagið.

Einnig verði lögð áhersla á að tryggja áfram öruggan rekstur hugbúnaðarkerfisins og öryggi þeirra gagna sem kerfið heldur utan um.

„Á næstu mánuðum verður unnið að yfirfærslu rekstrarins með starfsfólki Inits sem hafa síðustu árin séð um rekstur og þróun Jóakim tölvukerfisins. Mikilvægt er að tryggja áframhaldandi aðkomu þeirra að rekstrinum, enda býr starfsfólkið yfir yfirgripsmikilli þekkingu á Jóakim kerfinu sem og lífeyriskerfinu í heild sinni,“ segir á vef RL.

Yfirtakan er sögð vera aðeins eitt skref í umfangsmikilli vinnu sem unnin hefur verið innan Reiknistofu lífeyrissjóða og þeirra lífeyrissjóða sem aðild eiga að Jóakim kerfinu. Aukinn kraftur hafi verið settur í verkefnið eftir að upp komst um brot Inits á samningi fyrirtækisins við RL sem voru síðar staðfest í óháðri úttekt.

Í kjölfarið hafi nánast öll atriði sem snúa að rekstri og þróun kerfisins ásamt samningum við Init verið teknir til skoðunar. Að sögn RL mun sú vinna halda áfram næstu mánuði og misseri.


Tengdar fréttir





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×