Mikið í húfi að fá veðurstöð í Vík Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 23. mars 2023 13:51 Umferð ferðamanna um Vík í Mýrdal hefur margfaldast á undanförnum árum. Vísir/Jóhann K. Unnið er að því að fá veðurstöð í Vík í Mýrdal. Sveitarstjórnin telur að í ljósi margföldunar umferðar um svæðið á síðustu árum sé mikið í húfi að hægt sé að spá fyrir um veðrið á svæðinu með sem nákvæmustum hætti.
Sveitarstjórn Mýrdalshrepps samþykkti á fundi hennar í síðustu viku að leggja til við Veðurstofuna að sett yrði upp veðurstöð við Vík. „Nákvæmari veðurmælingar gætu eflt til muna öryggi á svæðinu með nákvæmari mælingum á veðri. Umferð um svæðið hefur margfaldast á síðustu árum og því er mikið í húfi að geta spáð fyrir veðri með sem nákvæmustum hætti. Bærinn er mjög útsettur fyrir stormum og hvassviðri með tilliti til sandfoks úr Víkurfjöru og veður verður þess enn fremur oft valdandi að loka þurfi þjóðvegi 1,“ segir í tillögunni sem samþykkt var á fundinum. Í framhaldi af samþykkt tillögunnar hafa bréfaskipti farið á milli Einars Freys Einarsonar, sveitarstjóra og Óðins Þórarinssonar, rekstrarstjóra mælikerfa hjá Veðurstofunni. Fagna tillögum um samstarf Upplýsti Óðinn Einar Frey um að í ljósi þröngrar fjárhagslegrar stöðu Veðurstofunnar hafi sambærilegum erindum til stofnunarinnar yfirleitt verið svarað á þá leið að samstarfi um uppsetningu veðurstöðva væri fagnað. „Samstarfið hefur þá verið sett í form samnings um kostnaðarþátttöku og hlutverk hvors aðila fyrir sig,“ skrifaði Óðinn og lýsti Veðurstofuna reiðubúna til viðræðna um samning að uppfylltum eftirfarandi skilyrðum: „Ef Mýrdalshreppur er tilbúin til að leggja veðurstöðinni til heppilegan stað til frambúðar og að bera kostnað af lagningu og notkun rafmagns og/eða til umhirðu og tæmingu úrkomumælis ásamt kostnaði við jarðvinnu til að koma mælitækjum fyrir er Veðurstofa Íslands tilbúin til viðræðu um samning.“ Í framhaldinu fóru fundarhöld fram á milli fulltrúa sveitarfélagsins og Veðurstofunnar þar sem niðurstaðan var sú að kanna fýsileika þess að setja upp veðurstöð í nágrenni við kirkjugarðinn í Vík. Hefur Einari Frey, sveitarstjóra Mýrdalshrepps, og skipulags- og byggingarfulltrúa sveitarfélagsins, verið falið að ganga frá samningum við Veðurstofuna um uppsetningu veðurstöðvarinnar.
Veður Mýrdalshreppur Samgöngur Ferðamennska á Íslandi Sveitarstjórnarmál Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Fannst látinn í klefa sínum á Litla Hrauni Innlent Vinnubrögðin gátu leitt til dauða Innlent Halla fremst með 29,7 prósent í nýrri könnun Prósents Innlent Lík þriggja brimbrettakappa fundust í brunni í Mexíkó Erlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Glórulausar framkvæmdir raski velferð íbúa hjúkrunarheimilis Innlent Stærsti skjálftinn 3,5 að stærð Innlent Búnaður Al Jazeera gerður upptækur og miðillinn í bann Erlent Aukastörf meðfram þingmennsku skapi hættu á hagsmunaárekstrum Erlent Sakaði Biden um að reka lögregluríki í anda nasista Erlent Fleiri fréttir Glórulausar framkvæmdir raski velferð íbúa hjúkrunarheimilis Fannst látinn í klefa sínum á Litla Hrauni Vinnubrögðin gátu leitt til dauða Halla fremst með 29,7 prósent í nýrri könnun Prósents Viðræður „á viðkvæmu stigi“ og fundi frestað til morguns Stærsti skjálftinn 3,5 að stærð Áslaug Arna mjólkar vel í fjósinu á Hvanneyri Líklega fundað fram eftir kvöldi Til vandræða á hóteli og réðst svo á mann við Hlemm Lífshættuleg meðhöndlun barna á vöggustofum og þrír eftir í bakgarðshlaupi Karlar líklegri að ljúga á kostnað annarra Hafi orðið fyrir þrýstingi úr ólíkum áttum „Ódýrt“ að gera samningana tortryggilega Leikskólar Árborgar verða lokaðir á milli jóla- og nýárs Völd óskast: Forseti allra kynslóða? Eldinum í bílnum fylgdi heljarinnar sprenging Orku- og samgöngumál efst á lista nýs sveitarfélags Viðurkennir að hafa gengið of hart fram Tíðindi í kjaradeilu flugvallarstarfsmanna og bein útsending úr Bakgarðshlaupinu Frestun verkfalla kemur til greina „Í fangelsi eins og á Litla-Hrauni gerist allt“ Sáttasemjari boðar til fundar: Fimm dagar til stefnu Orkuskipti, innflytjendalöggjöf og bensínstöðvalóðirnar „Þetta breytti mér mjög mikið sem persónu“ Ný sýn fékk meirihluta Slagsmál enduðu með nefbroti Bíll logaði í Vesturbænum „Eldgosið virðist í andarslitrunum“ Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Öruggara Suðurland“ – nýtt og spennandi verkefni Sjá meira