Lygilegt myndband sýnir vegfarendur á harðahlaupum frá sprengingunni Viktor Örn Ásgeirsson skrifar 25. mars 2023 00:34 Eins og sést á myndinni voru vegfarendur í mikilli fjarlægð þegar sprengingin varð. Einn gaskútanna þeyttist um hundrað metra frá byggingunni, í átt að vegfarendunum. Skjáskot Vegfarendur áttu fótum sínum fjör að launa þegar seinni sprengingin varð í nýbyggingu í Eskiási í Garðabænum á fimmta tímanum í dag. Engan sakaði þegar tveir gaskútar sprungu og þeyttust tugi metra frá byggingunni. Lygilegt atvik af vettvangi náðist á myndband.
Myndbandið, tekið af Christiaani Braga, má sjá hér að neðan. Aríel Pétursson, sem sést hlaupa fyrir miðju á myndbandinu, býr í næsta húsi við Eskiás. Hann ætlaði að kanna hvort einhver væri slasaður, þar sem viðbragðsaðilar voru ekki mættir á vettvang. Slökkviliðið mætti fljótlega, og sneri Aríel þá við, en í sömu andrá sprakk kútur númer tvö eins og sést á myndbandinu. „Í rauninni er bara mikil mildi að enginn hafi orðið fyrir fljúgandi kútum. Eftir fyrstu sprenginguna skokkaði ég þarna niður eftir því mér sýndist kútastæðan ekki vera þar sem eldtungurnar voru, þá fór ég aðeins nær til þess að sjá hvort einhver væri slasaður á svæðinu,“ segir Aríel í samtali við fréttastofu. Eins og fyrr segir þeyttust gaskútarnir tugi metra. Annar hafnaði á bíl sem gjöreyðilagðist og sá síðari skaust líklega um hundrað metra. Eins og sést á myndbandinu eru Aríel, og aðrir vegfarendur, í töluverðri fjarlægð frá byggingunni. „Gaskúturinn lenti svona á að giska tveimur, þremur metrum frá mér þegar ég var að hlaupa í burtu og kíkti til baka til að stefna mín myndi ekki verða sú sama og kútsins. En fyrst að enginn slasaðist og skemmdir urðu ekki meiri en svo þá er þetta bara dagur eins og hver annar,“ segir Aríel að lokum. Gangandi vegfarendur áttu leið hjá þegar gaskúturinn þeyttist í um hundrað metra við sprenginguna.Vísir/Vilhelm
Slökkvilið Garðabær Tengdar fréttir „Þvílík heppni að ekki hafi farið verr“ Engan sakaði þegar tvær sprengingar urðu í gaskútum í nýbyggingu í Garðabæ í dag. Töluverður eldur braust út í kjölfarið. Gaskútur stórskemmdi bíl í nágrenninu og annar þeyttist í um hundrað metra frá nýbyggingunni. Búið er að slökkva eldinn og slökkvilið leitar nú af sér allan grun með hitamyndavélum. 24. mars 2023 16:52 „Maður fær eiginlega bara svona í hjartað“ „Ég var nú bara að spila skák á Chess.com uppi í rúmi, svo sé ég svona í horninu á auganu svona eld-liti og þegar ég lít út sé ég eldtungurnar alveg uppi að krana og svo heyri ég sprenginguna. Og veggirnir og glerið – það hristist allt. Svo hringdi ég beint á neyðarlínuna eins og maður gerir,“ segir Yngvi Snær Bjarnason íbúi við Eskiás. 24. mars 2023 19:30 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Fjölskylda í norðurljósaleit hrakin á brott af leiðsögumönnum Innlent Verulega brugðið yfir Hamraborgarmálinu Innlent „Trúði því ekki að þetta væri ég“ Innlent Vilja koma böndum á bókhald trúfélaga Innlent Hátt í hundrað dauðsföll á þremur árum Innlent Segir árásarmennina hafa ætlað til Belarús Erlent Líkamsárás til rannsóknar eftir nóttina Innlent Býr á Íslandi en dæmd í sex ára fangelsi í Rússlandi Innlent Ferðaóðir Íslendingar þyrpast í ferðalög innanlands sem utan Innlent Baldur mælist með langmest fylgi Innlent Fleiri fréttir Bjartur skírdagur fram undan í höfuðborginni Líkamsárás til rannsóknar eftir nóttina Fjölskylda í norðurljósaleit hrakin á brott af leiðsögumönnum Vilja koma böndum á bókhald trúfélaga Ferðaóðir Íslendingar þyrpast í ferðalög innanlands sem utan Verulega brugðið yfir Hamraborgarmálinu Hátt í hundrað dauðsföll á þremur árum Týndi vinningshafinn gaf sig fram og græddi níu milljónir Felldu úr gildi friðlýsingu en mátu Mumma ekki vanhæfan Kvöldfréttir Stöðvar 2 Býr á Íslandi en dæmd í sex ára fangelsi í Rússlandi Eldur í Hafnarfirði Haraldur mátti ekki hækka launin en Sigríður ekki heldur lækka þau Læknafélagið mótfallið lögleiðingu dánaraðastoðar „Trúði því ekki að þetta væri ég“ Ekki viss hvort nokkru þurfi að breyta eftir tug milljóna króna þjófnað 546 Grindvíkingar vilja selja Þórkötlu húsið sitt Steinunn Ólína hálfu skrefi frá því að bjóða sig fram Baldur mælist með langmest fylgi Stálu áli í Grindavík en gómaðir af lögreglu Útlit fyrir að gasmengun berist til vesturs og suðvesturs Hæstiréttur bannar síþrotamanni að stunda rekstur Flestir öryggishnappar vegna heimilisofbeldis Fá 82 þúsund fyrir að vinna frá átta til 23 Mikilvægt að upplýsa málið svo aðrir sjái sér ekki leik á borði Helga hellir sér í forsetaslaginn Pallborðið: Eiga læknar að aðstoða fólk við að deyja? Hættuleg gasmengun kemur í veg fyrir opnun Bláa lónsins „Galið að fara svona með opinbert fé“ Þjófanna enn leitað og óvíst hvenær Bláa lónið opnar Sjá meira
„Þvílík heppni að ekki hafi farið verr“ Engan sakaði þegar tvær sprengingar urðu í gaskútum í nýbyggingu í Garðabæ í dag. Töluverður eldur braust út í kjölfarið. Gaskútur stórskemmdi bíl í nágrenninu og annar þeyttist í um hundrað metra frá nýbyggingunni. Búið er að slökkva eldinn og slökkvilið leitar nú af sér allan grun með hitamyndavélum. 24. mars 2023 16:52
„Maður fær eiginlega bara svona í hjartað“ „Ég var nú bara að spila skák á Chess.com uppi í rúmi, svo sé ég svona í horninu á auganu svona eld-liti og þegar ég lít út sé ég eldtungurnar alveg uppi að krana og svo heyri ég sprenginguna. Og veggirnir og glerið – það hristist allt. Svo hringdi ég beint á neyðarlínuna eins og maður gerir,“ segir Yngvi Snær Bjarnason íbúi við Eskiás. 24. mars 2023 19:30