Ráðherra verður við áskorun þingmanns og ljósmóður Ólafur Björn Sverrisson skrifar 23. maí 2023 16:15 Willum varð við áskorun Jóhanns og ætlar að leggja til að heimaþjónusta ljósmæðra verði veitt nýjum foreldrum og börnum óháð því hve lengi þau dvöldu á fæðingarstofnun. Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra ætlar að leggja til að heimaþjónusta ljósmæðra verði veitt nýjum foreldrum og börnum óháð því hve lengi þau dvöldu á fæðingarstofnun.
Þetta kemur fram í svari ráðherra við fyrirspurn Jóhanns Páls Jóhannssonar, þingmanns Samfylkingarinnar, sem hvatti ráðherra til að hafa forgöngu um slíka breytingu í óundirbúnum fyrirspurnatíma fyrr í vor. Sagði enga heimavitjun fyrir þær fjölskyldur sem helst þyrftu „Samkvæmt rammasamningi milli Sjúkratrygginga Íslands og ljósmæðra fellur rétturinn til heimavitjunar niður ef foreldrar og barn þurfa af einhverjum ástæðum að vera lengur en 72 klukkustundir á fæðingardeild. Þetta er svo öfugsnúið vegna þess að það eru einmitt þessar fjölskyldur sem þurfa kannski mest á þessari þjónustu að halda,“ sagði í fyrirspurn Jóhanns Páls í il heilbrigðisráðherra þann 13. mars síðastliðinn. „Er ráðherra sammála mér, ljósmæðrum og okkur jafnaðarmönnum um að heimavitjun ljósmæðra eigi að vera fyrir alla foreldra, en ekki bara suma? Og megum við ekki treysta því, herra forseti, að hæstv. ráðherra búi þannig um hnútana að svo verði?,“ spurði Jóhann enn fremur. Willum boðar breytingar Heilbrigðisráðherra þakkaði þingmanninum fyrir ábendinguna og sagðist ætla að skoða málið. Í kjölfarið birtist grein eftir Emmu Marie Swift, ljósmóður á Fæðingarheimili Reykjavíkur og lektor við Háskóla Íslands, þar sem hún hvatti ráðherra eindregið til að ráðast í umrædda breytingu og verða við áskorun þingmannsins. „Ég skora á heilbrigðisráðherra að bregðast við fyrirspurn Jóhanns Páls og leiðrétta þessa mismunun á réttindum og aðstæðum nýrra foreldra á Íslandi,“ skrifaði hún í grein sem birtist á Vísi í apríl. Nú hefur ráðherra svarað skriflegri fyrirspurn þingmannsins um sama efni og staðfest að hann hyggist verða við áskoruninni. „Heimaþjónusta ljósmæðra í sængurlegu hefur þróast síðustu 25 ár í gegnum þennan samning, stuðlað að faglegri og öruggri þjónustu í sængurlegu í heimahúsi og leitt til styttingar sængurlegu á fæðingarstofnunum og fækkunar endurinnlagna sængurkvenna og barna þeirra,“ segir í svari ráðherra sem bætir við: „Til áframhaldandi þróunar þjónustunnar mun ráðherra leggja til breytingu á gildandi samningi þannig að aðgengi sængurkvenna og fjölskyldna þeirra að þjónustunni verði óháð lengd sængurlegu á stofnun, enda hafi málefnalegar ástæður legið að baki seinkun útskriftar.“
Alþingi Fæðingarorlof Heilbrigðismál Samfylkingin Framsóknarflokkurinn Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Konurnar hafi gert allt til að setja ekki svartan blett á starfsemina Innlent Þekkir dæmi um endalaus uppköst og garnalömun vegna lyfjanna Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Bæjarstjóri sakaður um að vera njósnari: „Enginn veit hver hún er“ Erlent Segir Helgu fara með rangt mál Innlent Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra Innlent Gular viðvaranir víðs vegar um landið Veður Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Innlent Með vopn og fíkniefni í útistöðum við dyravörð Innlent Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Erlent Fleiri fréttir Aukin skjálftavirkni og erjur um Erfðagreiningu Örlítil aukning í skjálftavirkni undir Svartsengi Forsetakosningar, mansal og samningar Reykjavíkur við olíufélögin Segir Helgu fara með rangt mál Þekkir dæmi um endalaus uppköst og garnalömun vegna lyfjanna Konurnar hafi gert allt til að setja ekki svartan blett á starfsemina Með vopn og fíkniefni í útistöðum við dyravörð Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra 40 tungumál eru töluð í leik- og grunnskólum Árborgar Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Þungar áhyggjur af þyngdarstjórnunarlyfjum Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Nauðsynlegt að fresta atkvæðagreiðslu um umdeilda verksmiðju Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Of þung en annars hraust á Ozempic Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Lífleg og skrautleg kosningabarátta að mati forsætisráðherra Dregur saman með efstu frambjóðendum Mesta kvika frá því að kvikugangurinn myndaðist Sjá meira