Vegna misræmis í niðurstöðu mælinga á veiðistofni loðnu í september síðastliðnum og ungloðnu haustið 2021 er nú reynt að mæla stærð loðnustofnsins á ný. Bundnar eru vonir við að mælingin skili grundvelli til að hækka ráðgjöf um hámarksafla vegna komandi vertíðar og þar með auknum veiðiheimildum í tegundinni.
Rannsóknaskip Hafrannsóknastofnunar, Árni Friðriksson og Bjarni Sæmundsson, létu frá bryggju á mánudag og kemur fram í tilkynningu á vef Hafrannsóknastofnunar að „veiðiskip munu jafnframt taka þátt í verkefninu og aðstoða við að afmarka dreifingu loðnustofnsins sem flýtir fyrir mælingunum rannsóknaskipanna. Þessar rannsóknir Hafrannsóknastofnunar og útgerða eru að frumkvæði og kostaðar af útgerðum uppsjávarveiðiskipa.“
Gera áætlanir ráð fyrir að leiðangurinn taki um 10 daga.
Markmiðið marktæk mæling
Forsögu málsins má rekja til þess að Hafrannsóknastofnun kynnti í byrjun október ráðgjöf um hámarksafla á loðnuvertíðinni 2022/2023 sem nam aðeins 218.400 tonnum sem er 45,4% minni hámarksafli en gert var ráð fyrir í upphafsráðgjöf stofnunarinnar sem byggðist á magni ókynþroska loðnu í haustmælingum 2021. Nam upphafsráðgjöfin 400 þúsund tonnum.
„Þetta misræmi í niðurstöðum milli ára er ástæða þess að reynt verður að ná mælingu á stærð stofnsins á þessum tímapunkti,“ segir í tilkynningu stofnunarinnar.
Þá er markmið leiðangursins í desember að reyna að fá marktæka mælingu á stærð veiðistofnsins sem gæti leitt til endurskoðunar á veiðiráðgjöf fyrir komandi loðnuvertíð. Auk þess er stefnt að því að „fá mynd af útbreiðslu veiðistofnsins sem nýtist bæði við skipulagningu á mælingum Hafrannsóknastofnunar á stærð stofnsins í janúar næstkomandi svo og skipulagningu flotans á veiðum næstu vikurnar“.