Þrír samherjar Loga voru ekki fæddir er hann átti sinn fyrsta þrjátíu stiga leik Anton Ingi Leifsson skrifar 16. janúar 2021 13:45 Þrír ekki fæddir og þrír innan við þriggja ára er Logi átt sinn fyrsta þrjátíu stiga leik. skjáskot úr Domino's Körfuboltakvöldi Logi Gunnarsson var magnaður er Domino's deild karla snéri aftur fyrir helgi. Njarðvíkingurinn skoraði 30 stig af 85 í liði Njarðvíkur sem tapaði fyrir Haukum í Ljónagryfjunni á fimmtudagskvöldið. Það er orðið mjög langt síðan að Logi náði þessu afreki í fyrsta sinn á ferlinum í úrvalsdeildarleik. Logi skoraði í fyrsta sinn þrjátíu stig í leik í úrvalsdeildinni í lokaúrslitunum 2001. Þá voru hins vegar þrír af samherjum hans í fyrrakvöld ekki fæddir og aðrir þrír voru innan við þriggja ára. Kjartan Atli Kjartansson ræddi um Loga við þá Teit Örlygsson og Jón Halldór Eðvaldsson. „Þessi strákur æfir meira en flestur annar. Hann er einbeittur í því að halda sér í standi og ef að þessi gæi myndi labba upp í Sporthús og rífa sig úr að ofan, þá myndi hann líta betur út en 99,9% af þeim sem eru þar inni.,“ sagði Jón Halldór. „Hann er með þvílíkan skrokk og hugsar svo vel um sig. Svo er hann bara svo góður strákur. Hann er svo góður gaur að hann á bara gott skilið.“ „Við vorum að tala um að menn væru í misjöfnu formi. Menn hafa fengið hundrað daga til þess að hvíla sig og hugsa um sig. Menn gætu verið í besta formi lífsins og sumir virðast vera það,“ sagði Teitur. „Ég er með hann á Instagram og hann æfði á hverjum einasta degi og sýndi frá því!“ bætti Jón Halldór við. Klippa: Domino's Körfuboltakvöld - Logi Gunnarsson Domino's Körfuboltakvöld er uppgjörsþáttur Stöðvar 2 Sports um Domino's-deildir karla og kvenna í körfubolta og er á dagskrá öll föstudagskvöld. Upptökur af þættinum má nálgast á sjónvarpsvef Stöðvar 2. Domino's-deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland. Dominos-deild karla Körfuboltakvöld UMF Njarðvík Tengdar fréttir Næstum því tuttugu ár á milli þrjátíu stiga leikja hjá Loga Logi Gunnarsson átti sinn fyrsta þrjátíu stiga leik í fjögur ár þegar Domino´s deildin for aftur af stað í gærkvöldi. 15. janúar 2021 12:32 Mest lesið Hristir hausinn yfir glórulausum og smásálarlegum ummælum Körfubolti Heimsmet Japanans gildir ekki Sport Krakkalæti og langt bann eða gult og málið dautt? Íslenski boltinn Krókur Liverpool á móti bragði Enski boltinn „Eins og að fá hníf í bakið“ Sport Hamrén hafnaði 388 milljóna samningi Fótbolti Tíu KR-ingar skoruðu níu í gölnum leik Íslenski boltinn Taka gamlar hetjur fram skóna í bikarnum í dag? Íslenski boltinn Hafa ekki áhyggjur af fækkandi Elo-stigum Sport Bayern hyggst ráða manninn sem United losaði sig við Fótbolti Fleiri fréttir „Heldur betur búinn að vinna hjörtu Keflvíkinga“ Tekið á móti Tryggva eins og Hollywood stjörnu Hristir hausinn yfir glórulausum og smásálarlegum ummælum Uppgjörið og viðtöl: Haukar 73-75 Stjarnan | Stjarnan áfram eftir naglbít Martin frábær í öruggum sigri „Við erum ekki með stráka sem þurfa að vera hetjur“ Sjáðu mömmu Remy Martin syngja og dansa á hliðarlínunni Luka og félagar jöfnuðu: „Þetta var 90s körfubolti eins og hann gerist bestur“ Sérfræðingarnir ekki sammála og mikil spenna fyrir oddaleikinn „Ég er bara mjög spenntur, þeir eru klárlega ‘the team to beat’“ „Maður hugsar ekki þannig sem þjálfari“ Uppgjör og viðtöl: Álftanes - Keflavík 85-114 | Sjóðheit Keflavíkursókn blés nýliðana burt Murray kramdi Lakers-hjörtun Viðar Örn: Stoltur af liðinu fyrir að skilja allt eftir á gólfinu Einar Árni hættur hjá Hetti „Erfitt að vinna þá þrisvar sinnum í röð“ Aþena er komið í úrslitaeinvígi um sæti í Subway-deild kvenna „Fannst að við hefðum átt að ná þessum mómentum fyrr“ Uppgjör: Þór Þ. - Njarðvík 84-91 | Gestirnir tryggðu sér oddaleik Uppgjör og viðtöl: Höttur - Valur 97-102 | Valsmenn í undanúrslit eftir framlengdan leik á Egilsstöðum Losnar stjarna Aþenu úr frystiklefa Brynjars Karls? Skoraði 35 stig í fyrri hálfleik „Mér finnst þetta fullmikið“ Fær þriggja leikja bann fyrir pungspark á Hlíðarenda Kawhi-lausir Clippers í engum vandræðum með Mavericks Svanirnir hefja flug í úrslitakeppninni „Við algjörlega frusum“ „Maður harkar þetta bara af sér og heldur áfram fyrir liðið“ Uppgjörið: Stjarnan - Haukar 73 - 64 | Ótrúleg endurkoma tryggði Stjörnunni oddaleik Mætti eins og Gru í „Despicable Me“ og kláraði síðan Lakers Sjá meira
Það er orðið mjög langt síðan að Logi náði þessu afreki í fyrsta sinn á ferlinum í úrvalsdeildarleik. Logi skoraði í fyrsta sinn þrjátíu stig í leik í úrvalsdeildinni í lokaúrslitunum 2001. Þá voru hins vegar þrír af samherjum hans í fyrrakvöld ekki fæddir og aðrir þrír voru innan við þriggja ára. Kjartan Atli Kjartansson ræddi um Loga við þá Teit Örlygsson og Jón Halldór Eðvaldsson. „Þessi strákur æfir meira en flestur annar. Hann er einbeittur í því að halda sér í standi og ef að þessi gæi myndi labba upp í Sporthús og rífa sig úr að ofan, þá myndi hann líta betur út en 99,9% af þeim sem eru þar inni.,“ sagði Jón Halldór. „Hann er með þvílíkan skrokk og hugsar svo vel um sig. Svo er hann bara svo góður strákur. Hann er svo góður gaur að hann á bara gott skilið.“ „Við vorum að tala um að menn væru í misjöfnu formi. Menn hafa fengið hundrað daga til þess að hvíla sig og hugsa um sig. Menn gætu verið í besta formi lífsins og sumir virðast vera það,“ sagði Teitur. „Ég er með hann á Instagram og hann æfði á hverjum einasta degi og sýndi frá því!“ bætti Jón Halldór við. Klippa: Domino's Körfuboltakvöld - Logi Gunnarsson Domino's Körfuboltakvöld er uppgjörsþáttur Stöðvar 2 Sports um Domino's-deildir karla og kvenna í körfubolta og er á dagskrá öll föstudagskvöld. Upptökur af þættinum má nálgast á sjónvarpsvef Stöðvar 2. Domino's-deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland.
Domino's Körfuboltakvöld er uppgjörsþáttur Stöðvar 2 Sports um Domino's-deildir karla og kvenna í körfubolta og er á dagskrá öll föstudagskvöld. Upptökur af þættinum má nálgast á sjónvarpsvef Stöðvar 2. Domino's-deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland.
Dominos-deild karla Körfuboltakvöld UMF Njarðvík Tengdar fréttir Næstum því tuttugu ár á milli þrjátíu stiga leikja hjá Loga Logi Gunnarsson átti sinn fyrsta þrjátíu stiga leik í fjögur ár þegar Domino´s deildin for aftur af stað í gærkvöldi. 15. janúar 2021 12:32 Mest lesið Hristir hausinn yfir glórulausum og smásálarlegum ummælum Körfubolti Heimsmet Japanans gildir ekki Sport Krakkalæti og langt bann eða gult og málið dautt? Íslenski boltinn Krókur Liverpool á móti bragði Enski boltinn „Eins og að fá hníf í bakið“ Sport Hamrén hafnaði 388 milljóna samningi Fótbolti Tíu KR-ingar skoruðu níu í gölnum leik Íslenski boltinn Taka gamlar hetjur fram skóna í bikarnum í dag? Íslenski boltinn Hafa ekki áhyggjur af fækkandi Elo-stigum Sport Bayern hyggst ráða manninn sem United losaði sig við Fótbolti Fleiri fréttir „Heldur betur búinn að vinna hjörtu Keflvíkinga“ Tekið á móti Tryggva eins og Hollywood stjörnu Hristir hausinn yfir glórulausum og smásálarlegum ummælum Uppgjörið og viðtöl: Haukar 73-75 Stjarnan | Stjarnan áfram eftir naglbít Martin frábær í öruggum sigri „Við erum ekki með stráka sem þurfa að vera hetjur“ Sjáðu mömmu Remy Martin syngja og dansa á hliðarlínunni Luka og félagar jöfnuðu: „Þetta var 90s körfubolti eins og hann gerist bestur“ Sérfræðingarnir ekki sammála og mikil spenna fyrir oddaleikinn „Ég er bara mjög spenntur, þeir eru klárlega ‘the team to beat’“ „Maður hugsar ekki þannig sem þjálfari“ Uppgjör og viðtöl: Álftanes - Keflavík 85-114 | Sjóðheit Keflavíkursókn blés nýliðana burt Murray kramdi Lakers-hjörtun Viðar Örn: Stoltur af liðinu fyrir að skilja allt eftir á gólfinu Einar Árni hættur hjá Hetti „Erfitt að vinna þá þrisvar sinnum í röð“ Aþena er komið í úrslitaeinvígi um sæti í Subway-deild kvenna „Fannst að við hefðum átt að ná þessum mómentum fyrr“ Uppgjör: Þór Þ. - Njarðvík 84-91 | Gestirnir tryggðu sér oddaleik Uppgjör og viðtöl: Höttur - Valur 97-102 | Valsmenn í undanúrslit eftir framlengdan leik á Egilsstöðum Losnar stjarna Aþenu úr frystiklefa Brynjars Karls? Skoraði 35 stig í fyrri hálfleik „Mér finnst þetta fullmikið“ Fær þriggja leikja bann fyrir pungspark á Hlíðarenda Kawhi-lausir Clippers í engum vandræðum með Mavericks Svanirnir hefja flug í úrslitakeppninni „Við algjörlega frusum“ „Maður harkar þetta bara af sér og heldur áfram fyrir liðið“ Uppgjörið: Stjarnan - Haukar 73 - 64 | Ótrúleg endurkoma tryggði Stjörnunni oddaleik Mætti eins og Gru í „Despicable Me“ og kláraði síðan Lakers Sjá meira
Næstum því tuttugu ár á milli þrjátíu stiga leikja hjá Loga Logi Gunnarsson átti sinn fyrsta þrjátíu stiga leik í fjögur ár þegar Domino´s deildin for aftur af stað í gærkvöldi. 15. janúar 2021 12:32
Uppgjör og viðtöl: Höttur - Valur 97-102 | Valsmenn í undanúrslit eftir framlengdan leik á Egilsstöðum