Leita að fjórum skátum sem gætu mögulega leyst eina af mestu ráðgátum HM-sögunnar Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. mars 2021 12:01 Geoff Hurst lætur hér vaða á markið en skömmu síðar skall boltinn í slánni og fór niður á línuna. Getty/Hulton Archive Það er meira en hálf öld frá því að Englendingar tryggðu sér sinn fyrsta og eina heimsmeistaratitil í knattspyrnu karla. Sigur liðsins á Þjóðverjum í úrslitaleiknum fyrir tæpum 55 árum hefur þó alltaf verið umdeildur þökk sé umdeildu atviki.
Mark Geoff Hurst í úrslitaleik HM í Englandi 1966 er eitt umdeildasta mark knattspyrnusögunnar. Hann kom þá enska landsliðinu í 3-2 í framlengingu í 4-2 sigri á Vestur Þýskalandi á Wembley. Ástæðan fyrir því af hverju markið er svo umdeilt er að skot Hurst fór í slánna og niður á línuna. Það hefur aldrei verið sannað með myndum eða myndböndum hvort að boltinn hafi farið yfir marklínuna. Rússneski línuvörðurinn sagði hins vegar að boltinn hefði farið yfir marklínuna og Hurts innsiglaði síðan þrennu sína og sigur Englendinga með marki úr skyndisókn undir lokin. Football's longest running debate could finally by solved after new footage uncovered And you may be able to help... |@johncrossmirror https://t.co/iGwLNIZP48 pic.twitter.com/6BUwu7ISxh— Mirror Football (@MirrorFootball) March 4, 2021 Nú 55 ára árum síðar vonast menn til að fá einhver svör og það úr ólíklegri átt. Kvikmyndagerðarmenn í Nýja Sjálandi og Los Angeles hafa verið að skoða þau myndbönd sem eru til frá leiknum og þeir komust að einu stórmerkilegu. Þeir skoða efnið vegna gerð heimildarmyndarinnar Final Replay og beita nýjustu tækni til að upphefja gamalt myndefni. Á myndunum tóku þeir eftir fjórum skátum sem sátu við hlið þýska marksins og voru því í frábærri stöðu til að sjá það hvort að boltinn hafi farið yfir línuna eða ekki. Nú er hafin herferð til að reyna að hafa upp á þessum fjórum skátum. Þeir voru líklega táningar á þessum tíma og gætu verið í kringum sjötugt í dag. Skátahreyfingin er einnig að reyna að hjálpa til við að hafa upp á þeim. Einn af þeim sem er að leita af þeim er Geoff Hurst sjálfur en hann hefur auglýst eftir skátunum á samfélagsmiðlum. Skátarnir sátu mun nærri markinu en línuvörðurinn og myndavélarnar og áttu að geta hafa gott sjónarhorn á markið og um leið hvorum megin við marklínuna boltinn endaði. Þeir gætu því mögulega leyst eina af mestu ráðgátum HM-sögunnar. watch on YouTube
HM 2022 í Katar Mest lesið „Auðvitað voru þetta ekki gleðifréttir“ Íslenski boltinn Liverpool nær samkomulagi um Slot Enski boltinn Stólpagrín gert að Terry vegna stjörnustæla hans Enski boltinn Stjarnan skellti tvisvar á Belichick: „Það er eins gott að þetta sé ekki grín“ Sport Leicester í úrvalsdeildina eftir rassskellingu Leeds Enski boltinn „Þá á bara að gefa tilkynningu út af hálfu HSÍ“ Handbolti Aþena sendi sterk skilaboð í fyrsta leik Körfubolti Þórey Anna mögnuð og Valur sigri frá úrslitum Handbolti Davíð Tómasi bárust ljót skilaboð eftir leik: „Fokking mongolitið þitt“ Körfubolti „Það var ekkert annað í hausnum á mér“ Handbolti Fleiri fréttir „Auðvitað voru þetta ekki gleðifréttir“ Leicester í úrvalsdeildina eftir rassskellingu Leeds Stólpagrín gert að Terry vegna stjörnustæla hans Liverpool nær samkomulagi um Slot Ungstirnið nýtti tækifærið og skaut Real nær titlinum Íslendingarnir nálgast fallið Titilbaráttan endanlega úti eftir tap Söru og stallna Íslendingarnir áberandi í jafntefli Fékk prófessorsnafnið frá Gaupa: „Ég er bölvaður nörd“ Marta hættir í landsliðinu eftir Ólympíuleikana Víkingar fengu góða sumargjöf Leikmaður Newcastle tók meirapróf Amnesty segir að FIFA rúlli út rauða dreglinum fyrir Sádana Stórleikur í Garðabænum og Fram mætir þriðju deildarliðinu Rashford: Nú er nóg komið Sjáðu og heyrðu sjónvarpslýsanda sturlast yfir Brynjólfi Berglind Björg komin með félagaskipti í Val Finnst De Bruyne betri en Gerrard og Lampard Slot staðfestir að hann vilji taka við Liverpool Virk sprengja úr seinni heimsstyrjöldinni undir leikvangi Mainz „Frábær úrslit fyrir okkur og félagið“ „Fyrst og fremst var þetta vinnuframlag frá öllum“ Ivan Toney á innkaupalista Manchester United Júlíus Magnússon með sitt fyrsta mark fyrir Fredrikstad Magnaðasta mark sumarsins á fyrsta degi þess? Einstefna í Brighton Uppgjörið: Keflavík - Breiðablik 2-1| Sami Kamel afgreiddi Blika KR fékk ungan Svía fyrir gluggalok Bikarmeistararnir örugglega áfram eftir smá hikst 350 þúsund krónur i sektir og tveir fá þriggja mánaða bann Sjá meira