NATO sendir fleiri hermenn til Kósovó vegna óróa Kjartan Kjartansson skrifar 31. maí 2023 15:56 Pólskir hermenn sem eru hluti af friðargæsluliði NATO standa vörð í bænum Zvecan þar sem átök brutust út við mótmælendur af serbneskum uppruna á mánudag. AP/Marjan Vucetic Um sjö hundruð hermenn á vegum Atlantshafsbandalagsins verða sendir til Kósovó og önnur liðsveit sett í viðbragðsstöðu vegna vaxandi óróa þar á undanförnum dögum. Tugir NATO-hermanna og heimamanna særðust í átökum í norðanverðu Kósovó á öðrum degi hvítasunnu.
Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóri NATO, segir að ákvörðun hafi verið tekin um að senda liðsauka til Kósovó við þá um það bil fjögur þúsund hermenn sem eru fyrir í landinu. Önnur liðsveit verður sett í viðbragðsstöðu sem hægt verði að kalla hana hratt út ef þörf þykir á. Reuters-fréttastofan segir að fréttamaður hennar hafi séð fjórar stórar bílalestir á vegum NATO á leið til norðurhluta Kósovó í gærkvöldi. Ákvörðunin er viðbragð við átökum sem blossuðu upp á milli friðargæsluliða og mótmælenda af serbneskum uppruna í bænum Zvecan í norðanverðu Kósovó á mánudag. Kósovóserbar sniðgengu sveitarstjórnarkosningar sem fóru nýlega fram í þessum héruðum og fyrir vikið náðu Kósovóalbanir kjöri í nokkrum bæjarfélögum. Mótmælendur reyndu að hefta för þeirra á mánudag. Íbúar í norðurhéruðunum eru að langmestu leyti af serbneskum ættum þó að á landsvísu séu um níutíu prósent af albönskum uppruna. Kósovóserbar eru margir enn ósáttir við að Kósovó hafi lýst yfir sjálfstæði frá Serbíu árið 2008. Serbnesk stjórnvöld viðurkenna ekki Kósovó sem fullvalda ríki. Þrjátíu friðargæsluliðar NATO særðust í átökunum og á sjötta tug mótmælenda. Boðað var til frekari mótmæla í dag. Of mikið ofbeldi í Evrópu fyrir Ásakanir ganga á víxl á milli kósovóskra og serbneskra stjórnvalda. Þau fyrrnefndu saka Aleksandar Vucic, forseta Serbíu, um að ala á sundrung í Kósovó. Vucic segir stjórnvöld í Pristina bera ábyrgð á óróanum nú með því að ætla að koma Kósovóalbönum í bæjarstjórastóla í norðurhluta landsins með valdi. Josep Borrell, utanríkismálastjóri Evrópusambandsins, hvatti kósovóska og serbneska leiðtoga til að sýna stillingu og draga úr spennunni. „Það er of mikið ofbeldi í Evrópu fyrir, við ráðum ekki við enn meiri átök,“ sagði hann við fréttamenn í Brussel.
Kósovó Serbía NATO Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Sat saklaus í unglingafangelsi í tvö ár Innlent Íransforseti fórst í þyrluslysinu Erlent Mikill viðbúnaður vegna bráðra veikinda Innlent Tveir látnir og fimm saknað eftir slys í Dóná Erlent Leitin enn ekki borið árangur Erlent Yfirsaksóknari Alþjóðaglæpadómstólsins vill handtaka Netanjahú og Hamas-liða Erlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Erfitt að ímynda sér meiri harðlínumann en Raisi Innlent Diddy biðst afsökunar á „ófyrirgefanlegri hegðun“ Erlent Frambjóðendur geti nýtt sér skoðanakannanir Innlent Fleiri fréttir Yfirsaksóknari Alþjóðaglæpadómstólsins vill handtaka Netanjahú og Hamas-liða Komst loks út í geim sextíu árum síðar Íransforseti fórst í þyrluslysinu Leitin enn ekki borið árangur Tveir látnir og fimm saknað eftir slys í Dóná Diddy biðst afsökunar á „ófyrirgefanlegri hegðun“ Óljóst hvort þyrlan sé fundin Íranski forsetinn í óljósu þyrluslysi Færeyingar draga í land með ferðamannaskatt Bæjarstjóri sakaður um að vera njósnari: „Enginn veit hver hún er“ Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Ástand Fico enn alvarlegt Býst við aukinni sókn Rússa Beitti neitunarvaldi gagnvart umdeildum fjölmiðlalögum Myndband sýnir árás Diddy Færeyingar felldu frumvarp um fóstureyðingar Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Segir Rússa ekki hafa í hyggju að taka Kharkív Viðtal á Stöð 2 kveikir upp í færeyskum stjórnmálum Reyndi að kveikja í bænahúsi gyðinga og var skotinn til bana Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju „Einfari“ ákærður fyrir tilræðið við Fico Hver er Robert Fico? Neyðarástandi lýst yfir á Nýju-Kaledóníu eftir miklar óeirðir Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Hægriflokkar ná saman um myndun ríkisstjórnar Samið um kappræður í júní og september Fico ekki talinn í lífshættu Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Þetta er vitað um árásarmanninn Sjá meira