Fótbolti

3 dagar í EM: Fimm þjóðir mæta taplausar til leiks á EM í sumar

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Christian Eriksen og félagar í danska landsliðinu fóru taplausir í gegnum undankeppni EM 2020.
Christian Eriksen og félagar í danska landsliðinu fóru taplausir í gegnum undankeppni EM 2020. EPA-EFE/Liselotte Sabroe

Vísir telur niður í Evrópumótið í knattspyrnu sem hefst 11. júní næstkomandi. Ítalir og Belgar unnu alla leiki sína í undankeppninni en þrjár þjóðar töpuðu heldur ekki leik á leiðinni að tryggja sér farseðla á Evrópumótið.

Fimm þjóðir í hópi þeirra 24 sem mæta til leiks á Evrópumótið í sumar hafa ekki enn kynnst því að tapa leik síðan að ferðalagið að EM alls staðar hófst í marsmánuði 2019.

Ítalir og Belgar eru í sérflokki enda með fullt hús í undankeppninni en Spánn, Úkraína og Danmörk mæta líka öll taplaus í fyrsta leik í úrslitakeppni EM.

Belgar unnu alla tíu leiki sína í I-riðli og markatalan var 40-3 eða 37 mörk í plús. Belgar unnu því leiki sína með 3,7 mörkum að meðaltali í leik. Rússar fóru líka áfram upp úr riðlinum og Skotar fóru í umspil þar sem þeim tókst að tryggja sig inn á EM.

Ítalir unnu alla tíu leiki sína í J-riðli og markatalan var 37-4 eða 33 mörk í plús. Ítalir unnu því leiki sína með 3,3 mörkum að meðaltali í leik. Finnar fóru líka áfram úr riðlinum en Grikkir sátu eftir. Bosníumenn fóru í umspil en tókst ekki að tryggja sig inn þar.

Spánverjar unnu ekki alla tíu leiki sína í F-riðlinum en þeir töpuðu ekki. Átta sigrar og tvö jafntefli voru uppskeran hjá Spánverjum og þeir voru 26 mörk í plús, 31-5. Einu leikirnir sem Spánverjar unnu ekki voru 1-1 jafntefli við Norðmenn í Osló og 1-1 jafntefli við Svía á Vinavöllum í Solna. Svíar komust líka áfram upp úr riðlinum.

Úkraínumenn voru líka taplausir í B-riðli með sex sigra og tvö jafntefli. Markatala Úkraínumanna var 13 mörk í plús eða 17 mörk á móti 4 fengnum á sig. Portúgalar komust líka áfram upp úr riðlinum. Úkraínumenn gerðu jafntefli á útivelli á móti Portúgal og Serbíu en unnu alla aðra leiki.

Fimmta taplausa liðið í undankeppni EM eru síðan Danir. Danska landsliðið vann reyndar bara fjóra af átta leikjum sínum en þeir gerðu jafntefli í hinum fjórum. Danir urðu í öðru sæti í D-riðli á eftir Sviss en báðar þjóðir komust áfram. Danir gerðu jafntefli í tveimur fyrstu leikjum sínum, á móti Sviss á útivelli og Írum á heimavelli. Þeir gerðu síðan jafntefli á útivelli á móti Georgíu og Írlandi.


EM 2020 verður sýnt á Stöð 2 Sport EM 2020 sem er hluti af Sportpakkanum, Stóra pakkanum og Risapakkanum. EM 2020 verður einnig hægt að kaupa stakt á kr. 6.990 en fyrir viðskiptavini með aðra áskrift en ofangreindar frá Stöð 2 kostar áskriftin kr. 3.990.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×