Sjeikinn mun leggja fram nýtt tilboð í United

Sjeikinn Jassim bin Hamad Al-Thani frá Katar mun leggja fram …
Sjeikinn Jassim bin Hamad Al-Thani frá Katar mun leggja fram nýtt og endurbætt tilboð í Manchester United. AFP/Karim Jaafar

Sj­eik­inn Jassim bin Hamad Al-Thani, stjórn­ar­formaður eins stærsta banka Kat­ars, heimsótti forsvarsmenn Manchester United í gær eftir að hafa í síðasta mánuði lagt fram tilboð í enska félagið.

Viðræður fjárfestahópsins, sem sjeikinn er í forsvari fyrir, stóðu yfir í um tíu klukkustundir og gengu vel.

Samkvæmt Sky Sports má búast við því að allir áhugasamir kaupendur leggi fram nýtt og endurbætt tilboð innan næstu tíu daga er formlegt söluferlið á félaginu færist á næsta stig.

Al-Thani er sagður harðákveðinn í að eignast Man. United með það fyrir augum að koma félaginu aftur á þann stall sem það var undir stjórn Sir Alex Ferguson og styrkja um leið innviði til muna, þar á meðal leikvanginn og æfingasvæðið.

Eig­end­ur Man. United, hin banda­ríska Glazer-fjöl­skylda, til­kynntu form­lega um að fé­lagið, eitt það verðmæt­asta í heimi, væri til sölu í nóv­em­ber síðastliðnum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert