Ef við hefðum ekki átt nál værum við öll nakin út í móa Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar 26. september 2022 20:05 Margrét Guðjónsdóttir, formaður Kvenfélagsins Einingar í Hvolhreppi og Margrét Tryggvadóttir, hugmyndasmiður sýningarinnar (t.h.) eru alsælar með sýninguna í Goðalandi í Fljótshlíð, sem opnaði um helgina. Magnús Hlynur Hreiðarsson „Margt verður til í kvenna höndum“ er yfirskrift á sýningu, sem konur í Kvenfélaginu Einingu í Hvolhreppi eru með í félagsheimilinu Goðalandi í Fljótshlíð. Saumnálin spilar þar stærsta hlutverkið.
Sýningin, sem er öll hin glæsilegasta sýnir handverk kvenna, sem unnin hafa verið með nál í gegnum árin en tilgangurinn er að sýna hvað saumnálin, þessi litli hlutur hefur haft mikil áhrif á líf okkar allra. Margrét Tryggvadóttir, kvenfélagskona átti hugmyndina að sýningunni. „Þegar við fórum að byrja á þessari sýningu þá áttuðum við okkur á því hvað nálin hefur haft mikil áhrif á líf fólks í gegnum aldirnar. Því hvar værum við ef við hefðum ekki átt nál, við værum öll nakin einhvers staðar út í móa,“ segir Margrét og hlær. Hvers konar verk eru aðallega á þessari sýningu? „Það er bara allt á milli himins og jarðar, allt frá skóm og upp í hatt og svo dúkar, myndir, sænguver og refilsaumur, bara nefndu það, bætir Margrét við. Mjög mikið af fallegum hlutum eru á sýningunni.Magnús Hlynur Hreiðarsson „Þetta er mjög fjölbreytt og flott sýning og virkilega vel sett upp og mikil vinna hjá kvenfélagskonum, sem liggur hér að baki að setja svona upp. Það er ekki nóg að fá hugmynd, það þarf að framkvæma hana,“ segir Margrét Guðjónsdóttir, formaður Kvenfélagsins Einingar í Hvolhreppi. Gestir sem mættu á opnun sýningarinnar voru beðnir að koma í þjóðbúningum og urðu nokkrir við þeirri áskorun. „Nú er eiginlega bara mottó hjá okkur á næsta þorrablóti þá eiga allir að vera í heimasaumuðu,“ segir Margrét Tryggvadóttir ákveðinn í bragði. Hópar geta pantað að fá að koma á sýninguna hjá Margrét í gegnum netfangið hennar, sem er mtrygg@ismennt.isMagnús Hlynur Hreiðarsson En hvernig gengur að fá ungar konur í kvenfélagið? „Það mætti ganga betur, ég held að þær fatti ekki bara af hverju þær eru að missa,“ segir formaður Einingar. Sýningin verður opinn um helgar til 9. október og svo geta hópar pantað að koma í heimsókn. Sýningin verður opinn um helgar til 9. október og svo geta hópar pantað að koma í heimsókn.Magnús Hlynur Hreiðarsson
Rangárþing eystra Handverk Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Vitni gefur ekki upp nafn vegna ótta við hefndaraðgerðir Innlent Þurftu að farga 30 þúsund eintökum vegna forsetaframboðs Innlent „Heill vinnustaður er dreginn sundur og saman í háði“ Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Við lögleiðum heróínið en bönnum áfengið. Þetta er galið“ Innlent Lýsa eftir Sigurði Fannari Innlent Álftin breyttist í dreka og rak hundinn upp úr með látum Innlent Fékk ekki að kveðja eiginmanninn fyrir flugið til Nígeríu Innlent Megrunarlyfin nýjasta vopnið gegn hjartasjúkdómum? Erlent Drengurinn er fundinn Innlent Fleiri fréttir 1.715 börn fengið leikskólapláss Fékk ekki að kveðja eiginmanninn fyrir flugið til Nígeríu Vill sjá Latabæ birtast aftur í sjónvarpsstöðvum heims Drengurinn er fundinn Lýsa eftir Sigurði Fannari „Við lögleiðum heróínið en bönnum áfengið. Þetta er galið“ Koma á fót framkvæmdanefnd um málefni Grindavíkur Vonleysi veðmálanna og eiginmanni vísað úr landi Álftin breyttist í dreka og rak hundinn upp úr með látum Sóttu veikan mann á skemmtiferðaskip umkringt hafís Settur forstjóri skipaður forstjóri „Heill vinnustaður er dreginn sundur og saman í háði“ Breyttar forsendur kalli á nýjan unglingaskóla í Laugardal Ævintýralandið Ísland séð úr háloftunum Dæmdir fyrir ofbeldishrinu Hefur áhyggjur af nýfæddum lömbum á Höfða Uppflettingar í sjúkraskrá: Segir málinu alls ekki lokið Ítrekar afsökunarbeiðni til vöggustofubarna og fjölskyldna þeirra Helmingi dræmari kjörsókn nú en í síðustu forsetakosningum Fulltrúar Stígamóta reyna að tryggja öryggi kvennanna í Nígeríu Heimsótti Julian Assange í Belmarsh-öryggisfangelsið Brottvísun hælisleitenda og dræm þátttaka í utankjörfundi Bein útsending: Má ég taka þátt... í lífinu? Vitni gefur ekki upp nafn vegna ótta við hefndaraðgerðir Beint streymi: Uppfinningar og einkaleyfi Landris heldur áfram á sama hraða Þurftu að farga 30 þúsund eintökum vegna forsetaframboðs Friðlýsir hluta Fjaðrárgljúfurs Fjórum nígerískum ríkisborgurum flogið til Frankfurt Nær einróma ánægja en spurningum ósvarað um þjóðleikhússtjóra Sjá meira