Logi Einarsson leiðir lista Samfylkingarinnar

Logi Einarsson.
Logi Einarsson. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Yfirgnæfandi meirihluti kjördæmisráðs Samfylkingarinnar samþykkti framboðslista Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi fyrr í kvöld. Þetta kemur fram í tilkynningu frá flokknum.

Logi Einarsson formaður Samfylkingarinnar, þingmaður og arkitekt, leiðir listann.

„Ég er stoltur af því að leiða áfram lista Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi. Allir frambjóðendur Samfylkingarinnar í kjördæminu eru gríðarlega öflugir, en það sem einkennir efstu fjögur sætin á listanum er ekki síst öflugur bakgrunnur í sveitarstjórnum. Öll höfum við setið í sveitarstjórnum og þekkjum vel mikilvægi nærþjónustunnar og nauðsyn þess að auka samvinnu og traust milli ríkis og sveitarfélaga. Ég hlakka til kosningabaráttunnar með þessum góða hópi,“ er haft eftir Loga Einarssyni.

Annað sætið listans skipar Hilda Jana Gísladóttir bæjarfulltrúi í Akureyrarbæ, formaður SSNE og fyrrverandi sjónvarpsstjóri N4. Í þriðja sæti er Eydís Ásbjörnsdóttir forseti bæjarstjórnar í Fjarðabyggð og framhaldsskólakennari, fjórða sæti skipar svo Kjartan Páll Þórarinsson, íþrótta- og tómstundafulltrúi í Norðurþingi.

„Kristján L. Möller og Svanfríður Jónasdóttir skipa heiðurssæti á listanum en hann er skipaður tuttugu kraftmiklum frambjóðendum, með fjölbreytta reynslu og þekkingu, sem eiga það sameiginlegt að vilja vinna að framgangi jafnaðarstefnunnar og beita sér af fullu afli í þágu íbúa kjördæmisins, sem og alls almennings,“ segir í tilkynningunni.

Framboðslisti Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi:

  1. Logi Einarsson, alþingismaður og formaður Samfylkingarinnar
  2. Hilda Jana Gísladóttir, bæjarfulltrúi og formaður SSNE
  3. Eydís Ásbjörnsdóttir, framhaldsskólakennari og bæjarfulltrúi
  4. Kjartan Páll Þórarinsson, íþrótta- og tómstundafulltrúi
  5. Margrét Benediktsdóttir háskólanemi
  6. Sigurður Vopni Vatnsdal, deildarstjóri á leikskóla
  7. Ísak Már Jóhannesson umhverfisfræðingur
  8. Lilja Guðný Jóhannesdóttir skólameistari
  9. Ólafur Haukur Kárason byggingameistari
  10. Guðrún Einarsdóttir hjúkrunarfræðinemi
  11. Jóhannes Óli Sveinsson framhaldsskólanemi
  12. Nanna Árnadóttir, félagsliði á öldrunarheimili
  13. Baldur Pálsson austurlandsgoði
  14. María Hjálmarsdóttir verkefnisstjóri
  15. Sigríður Huld Jónsdóttir skólameistari
  16. Magni Þór Harðarson ráðgjafi
  17. Björgvin Valur Guðmundsson, leiðbeinandi í grunnskóla
  18. Albertína Friðbjörg Elíasdóttir alþingismaður
  19. Svanfríður Inga Jónasdóttir, f.v. alþingismaður og bæjarstjóri
  20. Kristján L. Möller, f.v. alþingismaður og ráðherra
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert