Fótbolti

Grótta tyllti sér á topp deildarinnar

Hjörvar Ólafsson skrifar
Kjartan Kári Halldórsson skoraði tvö mörk fyrir Gróttu í kvöld. 
Kjartan Kári Halldórsson skoraði tvö mörk fyrir Gróttu í kvöld.  Mynd/Eyjólfur Garðarsson

Grótta situr á toppi Lengjudeildar karla í fótbolta eftir leiki kvöldsins í 10. umferð deildarinnar. Heil umferð var spiluð í kvöld en fjögur rauð spjöld litu dagsins ljós í leikjunum sex. 

Oliver Dagur Thorlacius, Kristófer Pétursson og Kjartan Halldórsson tvö skoruðu mörk Gróttu sem vann 4-1 sigur gegn Fjölni í leik liðanna á Vivaldi-vellinum á Seltjarnarnesi. Reynir Haraldsson lagði hins vegar stöðuna fyrir gestina úr Grafarvoginum. 

Fylkir gerði út um leik sinn við Þrótt Vogum í fyrri hálfleik en lokatölur í þeim leik urðu 3-0 Árbæingum í vil. Mathias Laursen, Þórður Hafþórsson og Arnór Jónsson voru á skotskónum í þeim leik sem fram fór í Vogunum. 

Það var mikil dramatík þegar HK og Grindavík leiddu saman hesta sína í Kórnum í Kópavogi. Örvar Eggertsson náði þar forystunni fyrir HK strax á annarri mínútu. 

Bjarna Runólfssyni, leikmanni HK, var vísað af velli með beinu rauðu spjaldi um miðbik seinni hálfleiks. Í uppbótartíma leiksins jafnað Tómas Ásgeirsson svo metin úr vítaspyrnu og útlit var fyrir að liðin myndu skipta stigunum á milli sín. 

Bruno Soares var hins vegar ekki á sama máli en hann skoraði sigurmark HK-liðsins á lokaandartökum leiksins.  

Afturelding snéri taflinu sér í vil í leik sínum við Kórdrengi að Varmá og fór með 2-1 sigur af hólmi. Fatai Gbadamosi kom Kórdrengjum yfir en Elmar Kári Enesson Cogic og Javier Ontiveros sáu til þess að Afturelding innbyrtu stigin þrjú.   

Axel Freyr Harðarson sem kom nýverið til Kórdrengja frá Víkingi fékk tvö gul spjöld og þar með rautt á 67. mínútu leiksins. 

 Grótta hefur 19 stig á toppi deildarinnar, Fylkir, Selfoss og HK koma þar á eftir með 18 stig. Vestri er með 15 stig í fimmta sæti, Grindavík og Fjölnir 14 stig í sjötta og sjöunda sæti. 

Afturelding og Kórdrengir eru í áttunda til níunda sæti með 13 stig hvort lið. Þór situr í tíunda sæti með 11 stig, KV er í því næstneðsta með sjö stig og Þróttur Vogum vermir botnsætið með tvö stig. 

Upplýsingar um úrslit, markaskorara og atburði í leikjunum eru fengnar frá urslit.net. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×